Lífið

Skrítnar verðmerkingar, ómalbikaðir vegir og gefins ávextir fyrir börn
Bandaríska blaðakonan Talia Lakritz fór í fimm daga ferðalag til Íslands í júní síðastliðnum en þetta var í fyrsta sinn sem hún kom hingað til lands.

Fékk nýra úr frænku sinni og öðlaðist nýtt líf um leið
Ísfirðingurinn Glóð Jónsdóttir öðlaðist nýtt líf fyrir tæpu ári þegar frænka hennar Svanlaug Björg Másdóttir gaf henni nýra. Reynslan hefur tengt þær stöllur órjúfanlegum böndum og 30. maí hefur nú ávallt sérstaka merkingu í huga Glóðar.

„Skylda mín að lifa lífinu fyrir hann“
Tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn vissi snemma hvert hann vildi stefna. Fyrirmyndina fékk hann frá bróður sínum sem lést langt um aldur fram. Hann hleypur nú heilt maraþon í minningu bræðra sinna.

Týndi syni sínum í Nice: „Ég gat ekki hætt að gráta“
Haraldur Þorleifsson, eigandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, týndi sex ára syni sínum um stund í borginni Nice í Frakklandi í dag. Hann sagði uppákomuna þá mest ógnvekjandi í lífi hans í Twitter færslu í dag.

Setja einstaka lóð á Arnarnesinu á sölu
Hjónin Alexandra Ívarsdóttir búðareigandi og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnukappi hafa sett einstaka lóð við Mávanes 5 á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu.

Spara eigi stóru orðin gagnvart fólki í allsnægtarfréttum
Siðfræðingur segir að varla sé hægt að tala um aukna efnishyggju sem staðreynd í íslensku samfélagi. Fjölmiðlar skapi ákveðið gildismat með fréttaflutningi sínum. Mikilvægt sé að passa sig á að ganga ekki of harkalega með siðavöndinn og hneykslast. Hið versta sem gæti gerst sé að óbrúanleg gjá myndist milli fólks með ólíkt gildismat.

Ananas varð ofan á pepperóní hjá hluthöfum Íslandsbanka
Þrátt fyrir að það sé umdeilt hvort ananas eigi heima á pizzu þá fékk ávöxturinn næst flest atkvæði þegar kosið var um pizzuálegg á hluthafafundi Íslandsbanka í dag. Skinka fékk flest atkvæði en pepperóní lenti í þriðja sæti. Beikon fékk lang fæst atkvæði.

Fortíðin og flugeldar renna í eitt á nýrri plötu Auðar
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, gaf út plötuna Útvarp úlala á miðnætti. Platan inniheldur fimm lög úr ólíkum áttum sem Auður samdi og tók upp.

Eigandi Vera design selur hönnunarperlu
Skartgripahönnuðurinn og athafnakonan, Íris Björk Tanya Jónsdóttir, stofnandi og eigandi Vera design, hefur sett eign sína á sölu. Um er að ræða stórglæsilega og mikið endurnýjaða 195 fm íbúð á tveimur hæðum við Miðleiti. Ásett verð fyrir íbúðina eru 169 milljónir.

Fyrsti bassaleikari the Eagles er látinn
Randy Meisner, fyrsti bassaleikari og einn stofnenda hljómsveitarinnar the Eagles, lést á miðvikudag.

Nicki Minaj og Snoop Dogg mögulegar drápsvélar í skotleik
Rappararnir Snoop Dogg og Nicki Minaj bætast við sem karakterar í nýjustu seríu tölvuleikjanna Call of Duty: Modern Warfare II og Call of Duty: Warzone 2.

Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra orðin hjón
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, gengu í hnapphelduna hjá Sýslumanninum í Kópavogi í gær.

BBQ kóngurinn: Allt undir kíló er bara álegg
Í fimmta þætti af BBQ kónginum eldar Alfreð Fannar steik sem er eitt og hálf kíló.

Bréf dóttur upphafið að ógleymanlegu bónorði
Dóra Dúna Sighvatsdóttir ljósmyndari og Guðlaug Björnsdóttir förðunarfræðingur eru orðnar hjón. Þær trúlofuðu sig á Ítalíu í fyrra eftir rómantískt bónorð sem byrjaði á fallegu bréfi dóttur Guðlaugar sem fékk gesti til að fella tár. Nánustu vinir og fjölskylda fögnuðu með hjónunum í Fríkirkjunni í Reykjavík um helgina.

Hættu saman í laumi örfáum dögum eftir þáttinn
Love Island stjörnur úr nýjustu þáttaröðinni af bresku veruleikaþáttunum vinsælu hættu saman einungis örfáum dögum eftir að hafa dottið úr leik.

Gekk um staðinn eins og hann væri heima hjá sér
Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay var óvæntur gestur á veitingastaðnum OTO á Hverfisgötu í gærkvöldi. Eigandinn vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann sá nafn kokksins á lista yfir bókanir.

Bylgjulestin verður á Húsavík næsta laugardag
Lokaáfangastaður Bylgjulestarinnar þetta sumarið er Húsavík en þær ætlar Bylgjubíllinn að koma sér vel fyrir á hafnarsvæðinu næsta laugardag, 29. júlí.

Segist sjá eftir því að hafa farið í lýtaaðgerð
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner greinir frá því í nýjasta þættinum af The Kardashians að hún hafi farið í lýtaaðgerð. Áður hefur Jenner sagt að hún hafi einungis fengið sér fyllingar í varirnar en nú segist hún hafa farið í lýtaaðgerð fyrir nokkrum árum síðan.

Einar Örn: Hennar framlag var að vera alltaf Sinéad O‘Connor
Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður segir að Sinéad O'Connor verði helst minnst fyrir að hafa alltaf verið hún sjálf. Hún hafi verið á undan sinni samtíð í gagnrýni á kaþólsku kirkjuna fyrir illa meðferð á börnum og konum og verið refsað fyrir það á sínum tíma.

Frumsýning á Vísi: GKR og Nossan sleppa neikvæðninni
Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR hefur gefið út nýtt tónlistarmyndband við lag sitt AHA AHA en í þetta skiptið er norski rapparinn Nossan með í för. Myndbandið er frumsýnt á Vísi og má horfa á hér að neðan.

Frussuskemmtileg ræma um þekktasta dúkkumerki veraldar
Kvikmyndarýnirinn, blaðamaðurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Tómas Valgeirsson liggur sjaldnast á skoðunum sínum. Hann sér nær allar myndir sem rata á hvíta tjaldið og deilir skoðunum sínum með áhugasömum hlustendum og lesendum.

„Hún var nógu klikkuð til að segja já“
Bandaríski fjölbragðaglímukappinn Hulk Hogan og jógakennarinn Sky Daily eru nú trúlofuð en rúmt ár er síðan þau byrjuðu saman. Hogan bar upp spurninguna á veitingastað í borginni Tampa í Flórída í Bandaríkjunum en um er að ræða þriðju trúlofun glímukappans.

Dúós: Keyrði í sýndarveruleika og hnerraði í gleraugun
Pétur Jóhann Sigúfsson er ekki mikill leikjaspilari en hann fékk Óla Jóels til að aðstoða sig við að læra. Í sjöunda þætti Dúós kíktu strákarnir á bílaleikinn Gran Turismo í sýndarveruleika.

Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni
Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir varð ófrísk með níu mánaða millibili. Hún segir magnað að hafa fylgst með aðlögunarhæfni líkamans en viðurkennir að meðgöngurnar hafi tekið verulega á og sitt stærsta verkefni hafi verið að ná að nærast.

Fjöldi hugmynda að fjölbreyttara kynlífi
Nýjungar og fjölbreytni í kynlífi er mikilvægt til að halda neistanum í sambandinu að sögn breska kynlífsráðgjafans Tracey Cox. Hún birtir lista yfir tuttugu atriði á vefsíðu sinni sem gæti veitt pörum innblástur í tilhugalífið.

Sinéad O’Connor er látin
Írska stórsöngkonan Sinéad O’Connor er látin, aðeins 56 ára að aldri.

Ekki sjálfgefið að elska slíka stærð af manni
Edda Björgvinsdóttir, leikkona segir mikilvægt að opna umræðuna um sjálfsvíg, geðheilbrigðismál og hvernig haldið er utan um aðstandendur fórnarlamba sjálfsvíga. Hún segir það að missa aðstandanda úr sjálfsvígi eitt erfiðasta áfall sem hægt sé að takast á við. Sem hluta af bataferlinu skráði Edda sig í nám í sálgæslu við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan í vor.

Risastórir gulir Crocs skór
Listahópurinn MSCHF hefur vakið töluverða athygli á síðustu árum fyrir óvenjulegar vörur sínar sem eru oftar en ekki ádeila á tísku og fleira. Nýjasta varan frá hópnum er gerð í samstarfi við skóframleiðandann Crocs en um er að ræða risastóra gula Crocs skó.

Fálkaorðuhafi setur sjarmerandi íbúð á sölu
Tónlistarkennararnir Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir hafa sett afar sjarmerandi hæð sína í Norðurmýrinni í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 102,9 milljónir.

Hjólar í eigin aðdáendur
Tónlistarkonan Doja Cat hefur vakið töluverða athygli fyrir ummæli um aðdáendur sína sem hún lét falla á samfélagsmiðlum. Hún virðist ekki vera mjög hrifin af sínum hörðustu aðdáendum og segir þeim að hætta í símanum og byrja að vinna.