Lífið

Spenna í loftinu fyrir Hlustendaverðlaununum 2024
Hlustendaverðlaunin 2024 verða haldin í kvöld klukkan 20:00 í Gamla Bíói en þetta er í ellefta skipti sem hátíðin fer fram. Hún verður jafnframt sýnd í beinni útsendingu á Vísi en margir af stærstu listamönnum landsins stíga á svið í tónlistarveislu.

Geir H. Haarde og Friðrik Dór í banastuði
Margt var um manninn þegar heimilistækjaverslunin Eirvík frumsýndi nýjan sýningarsal í verslun sinni á Suðurlandsbraut á dögunum.

M. Emmet Walsh látinn
Bandaríski leikarinn M. Emmet Walsh er látinn, 88 ára að aldri. Hann lék meðal annars í myndunum Blade Runner og Christmas with the Kranks, en hann lék 233 hlutverk á leikaraferli sem hófst á sjöunda áratugnum.

„Þegar þau fóru að keyra vildi Kobbi keyra bílinn“
Selurinn Kobbi eyddi nokkrum mánuðum með Gísla Daníel Reynissyni og fjölskyldu hans árið 1996 eftir að Kobbi hafði orðið viðskila við móður sína og Gísli ákvað að bjarga honum.

Hitti yngsta sóknarprest landsins
Magnús Hlynur Hreiðarsson skellti sér á dögunum í Vík í Mýrdal og hitti þar yngsti sóknarprestinn á Íslandi og ræddi við hann í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Tímamótavika hjá Bjögga Takefusa og Sólveigu
Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur eignuðust sitt fyrsta barn saman 14. mars síðastliðinn. Auk þess hefur Sólveig sett sjarmerandi eign sína í miðbæ Reykjavíkur á sölu.

Sviptir hulunni af heimildarmynd og sér um föstudagskvöldin á RÚV
Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður til margra ára segir fyndið símtal hafa orðið til þess að hann ákvað að taka að sér framleiðslu heimildarmyndar um Ásgeir Elíasson, einn sigursælasta fótboltaþjálfara landsins. Logi er nú að vinna í gerð fleiri heimildamynda og er í ritstjórn spurningaþáttanna Er þetta frétt? sem sýndir eru á föstudagskvöldum á RÚV.

Hlustendaverðlaunin 2024: Patr!k svaraði hraðaspurningum
Tónlistarmaðurinn Patr!k lét sér ekki bregða þegar einn af hans bestu vinum og félögum útvarpsmaðurinn Gústi B. lagði fyrir hann laufléttar hraðaspurningar. Patr!k svarar því til að mynda hver er sinn uppáhalds tónlistarmaður á Íslandi.

Morgunrútína Söru Snædísar sem eykur afkastagetu og orku
Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara, segist hafa tileinkað sér góða morgunrútínu til að viðhalda góðum venjum dag frá degi. Hún hafi í kjölfarið orðið afkastameiri, fundið fyrir jafnari orku og liðið almennt betur.

Dró Eyþór niður á jörðina að verða tvítugur tveggja barna faðir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson segir það hafa dregið sig niður á jörðina að verða óvænt tveggja barna faðir þegar hann var tvítugur. Hann segist eiga sér fá áhugamál fyrir utan tónlistina og veltir fyrir sér hvernig ímynd hann sé fyrir dóttur sína.

Frumsýning á X: Villi Neto mætti með mömmu að endimörkum sólkerfisins
Dulmagnaða og hrollvekjandi spennuleikritið X var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á laugardagskvöld. Þar var ákaflega góðmennt og mættu margir þekktir Íslendingar til að berja verkið augum í fyrsta sinn.

Hefur alltaf verið með bullandi bíladellu
Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Magnea Björg Jónsdóttir hefur birst landsmönnum á skjánum í þáttunum LXS. Hún er nú að fara af stað með nýja bílaþætti sem heita 0 upp í 100. Blaðamaður ræddi við Magneu um bíladelluna.

Daði Freyr og Laufey spila á Lollapalooza
Tveir Íslendingar munu koma fram á Lollapalooza tónlistarhátíðinni í Chicago-borg í Bandaríkjunum í sumar, Daði Freyr og Laufey.

140 þúsund krónur á mánuði í fatnað
Í síðasta þætti af Viltu finna milljón var ráðist í heljarinnar verkefni, að taka til í almennri neyslu og það í desembermánuði.

Skotheld ráð kynfræðings að góðum prófíl á þínu uppáhalds stefnumótaforriti
Ókei, í draumaheimi erum við ekki að „dæma bókina út frá kápunni” og viljum öll þykjast gera betur en það, en ég meina, við skulum öll vera hreinskilin. Á stefnumótaforritum erum við einmitt öll að gera nákvæmlega það og þá er eins gott að kápan okkar sé eins góð og hún getur verið!

Syndsamlega góð bananasnickersstykki
Helga Gabríela heilsukokkur og þriggja barna móðir deildi hollri uppskrift af frosnum bananasnickersstykkjum á samfélagsmiðli sínum sem gott er að grípa í úr frystinum þegar mann langar í eitthvað smá sætt.

Martin og Anna María eignuðust dreng
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfubolta og Anna María Bjarnadóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau soninn Manúel fimm ára.

Heimir Hallgrímsson frumsýnir kærustuna
Heimir F. Hallgrímsson lögmaður, fasteignasali og ævintýramaður frumsýndi kærustuna, Dagmar Silju Kristjönu Svavarsdóttur nema við Háskólann í Reykjavík, á Instagram í gær þar sem þau voru að njóta lífsins í skíðaferð í Austurríki.

Hlustendaverðlaunin 2024: „Er Bent í alvörunni svona massaður?“
Það styttist óðfluga í Hlustendaverðlaunin 2024 sem fram fara næsta fimmtudag. Í tilefni af því fékk útvarpsmaðurinn Gústi B. rapparann knáa Bent með sér í ræktina. Þar sýndi Bent úr hverju hann er gerður í bekkpressu.

Skilin
Skilnaður Ariönu Grande og Dalton Gomez er genginn í gegn. Hjónin sóttu um skilnað síðasta haust eftir þriggja ára hjónaband.

Sætustu skvísur landsins allar á einum stað
Skvísur landsins mættu í verslun íslenska húðvörumerkisins BIOEFFECT á Hafnatorgi síðastliðinn föstudag og skáluðu fyrir nýjum andlitshreinsi fyrritækisins.

Tíu ár af fyndnum dýralífsmyndum
Ljósmyndasamkeppnin Comedy wildlife photography awards 2024 er hafin. Um árlega keppni er að ræða þar sem fólk um allan heim sendir inn þúsundir fyndnar ljósmyndir sem það fangar í náttúrunni.

„Fólk er að koma út með allskonar og allir með hlaðinn disk af eigin skít“
Hera Björk er á leiðinni til Malmö í Svíþjóð og tekur þar þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision þar sem hún mun flytja lagið Scared of Heights í maí.

Hildur María og Sigurður nefndu dótturina
Fyrrverandi fegurðardrottningin og handboltakonan Hildur María Leifsdóttir og kærastinn hennar Sigurður Jakob Helgason lögmaður, skírðu dóttur sína við hátíðlega athöfn um helgina. Stúlkunni var gefið nafnið Lína María.

Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli
Myndband af Katrínu Middleton prinsessu af Wales og Vilhjálmi bretaprins að spóka sig á sveitabýli í Windsor hefur vakið athygli á netmiðlum. Samkvæmt breska götublaðinu The Sun var myndbandið tekið upp síðasta laugardag, þegar hún er sögð hafa sést meðal almennings.

Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni
Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast.

Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir
Þegar Björn Páll Pálsson, 34 ára, kláraði stúdentinn frá Menntaskólanum á Akureyri komst bara eitt að, hann vildi út í heim til að ferðast.

Kveðja eftir 117 ára góðgerðarstarf
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri heyrir nú sögunni til. Á aðalfundi í liðinni viku var samþykkt að leggja félagið niður.

Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa
Fyrrum CrossFit heimsmeistarinn og afreksíþróttakonan Katrín Tanja nýtur lífsins í Norður-Idaho í Bandaríkjunum þar sem hún er búsett ásamt unnusta sínum, íþróttamanninum Brooks Laich. Parið festi nýverið kaup á svörtum Land Rover Defender jeppa og birti Katrín Tanja mikla gleðifærslu á Instagram í tilefni af því.

Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp
Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa sést víða saman á opinberum vettvangi nýverið og virðast láta vel að hvort öðru.