Íslenski boltinn

„Maður sá atburði sem maður á ekki að sjá inni á vellinum“
Guðni Eiríksson, annar þjálfara FH, var ekki sáttur með frammistöðu síns liðs gegn Þór/KA, sérstaklega ekki í fyrri hálfleik. FH tapaði leiknum, 0-1.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Þór/KA 0-1 | Akureyringar upp fyrir FH-inga
Þór/KA komst upp fyrir FH í 4. sæti Bestu deildar kvenna með 0-1 sigri í leik liðanna í Kaplakrika í kvöld. Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði eina mark leiksins á 58. mínútu.

„Þegar það er verið að mismuna stelpum þá þarf að segja eitthvað“
„Þetta er búinn að vera minn skemmtilegasti tími í þjálfun í fótboltanum. Ég mæli með því að fleiri þjálfarar taki sig til og þjálfi kvennaliðin,“ segir Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, í ítarlegu spjalli við Helenu Ólafsdóttur í upphitun fyrir 15. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Bleikar línur, búningar og hornfánar í Vesturbæ í kvöld
Bleiki liturinn verður áberandi á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld þegar grannliðin KR og Grótta mætast í Lengjudeild kvenna í fótbolta.

Brynjar Björn tekinn við Grindvíkingum
Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Grindavíkur í fótbolta. Hann samdi við félagið út næsta tímabil.

Dipló Gummi leysti deiluna með óvæntu útspili
„Það er ósætti í þættinum, og búið að vera í allan dag,“ sagði Guðmundur Benediktsson sposkur á svip í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld, þegar kom að því að tilkynna um mann leiksins í stórsigri Víkings gegn ÍBV.

Sjáðu mörkin: Tryggvi klobbaði tvo KR-inga og Björn bjargaði FH
Valsmenn tóku KR-inga í aðra kennslustund í sumar og FH vann Keflavík í spennuleik, í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi. Öll mörkin má nú sjá á Vísi.

Ágúst sagður taka við eftir brottreksturinn: „Held að Gústi smellpassi“
Ágúst Gylfason, sem fyrr í sumar var rekinn frá Stjörnunni, mun að öllum líkindum snúa aftur í Bestu deildina í fótbolta sem þjálfari Fram. Þetta kom fram í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Valur 0-4 | Valur valtaði aftur yfir KR
Valur vann 4-0 stórsigur á KR fyrr í kvöld. Valur minnkar forskot Víkinga á toppnum niður í sex stig en KR fellur niður í 6. sæti deildarinnar eftir sigur FH gegn Keflavík.

Umfjöllun: Keflavík - FH 2-3 | Fyrirliðinn sá til þess að FH komst aftur á sigurbraut
FH marði Keflavík í kaflaskiptum leik á HS Orku vellinum í Bestu deild karla í kvöld. Leikurinn endaði 3-2 þar sem fyrirliði FH, Björn Daníel Sverrisson, reyndist hetja liðsins þegar hann skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins. Eftir þrjú töp í röð náði FH loks að sigra og lyftir sér upp í fjórða sætið í Bestu deild karla en Keflavík vermir botnsætið sem áður.

Erkifjendurnir í Val mæta vestur í bæ: „Alltaf örlítið meira blóð á tennurnar“
Theódór Elmar Bjarnason, einn reynslumesti leikmaður Bestu deildar liðs KR í fótbolta, segist alltaf fá meira blóð á tennurnar fyrir leiki gegn erkifjendunum í Val en liðin mætast á Meistaravöllum í stórleik umferðarinnar en KR-ingar eiga harma að hefna eftir skell í fyrri leik liðanna á Origovellinum

Loforð leystu FH úr banninu
Karlalið FH í fótbolta er laust úr félagaskiptabanni eftir að það hafði staðið frá sunnudeginum 16. júlí. En hvernig losnaði félagið úr banninu? Það var að minnsta kosti án aðkomu eða með vitund Mortens Beck Guldsmed, leikmannsins sem kærði sína gömlu vinnuveitendur.

Vatnaskil hjá KR eftir útreiðina á Hlíðarenda
Gengi KR tók stakkaskiptum eftir að liðið steinlá fyrir Val, 5-0, í Bestu deild karla í byrjun maí.

Höttur fékk rúmar fimmtán milljónir úr mannvirkjasjóði KSÍ í ár
Höttur á Egilsstöðum fékk langmest af öllum félögum þegar KSÍ úthlutaði úr mannvirkjasjóði fyrir árið 2023.

Helgi hættir með Grindavík
Helgi Sigurðsson verður ekki þjálfari karlaliðs Grindavíkur í fótbolta lengur.

Tveir nýir til taks hjá FH í kvöld eftir félagaskiptabannið
FH-ingar biðu ekki boðanna eftir að hafa losnað úr félagaskiptabanni og eru tveir nýir leikmenn komnir með staðfest félagaskipti til FH fyrir leikinn við Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

„Asnalegt að segja en ég er hrikalegur stoltur af liðinu“
Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara ÍBV, fannst úrslitin gegn Víkingi ekki gefa rétta mynd af leiknum. Eyjamenn töpuðu leiknum, 6-0.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - ÍBV 6-0 | Leikur kattarins að músinni
Víkingur náði níu stiga forskoti á toppi Bestu deildar karla í fótbolta með stórsigri á ÍBV í Víkinni í dag, 6-0.

Umfjöllun og viðtöl: KA - HK 1-1 | Sjóðheitir KA-menn kældir ögn niður
KA og HK gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum á Akureyri í dag í 17. umferð Bestu deildar karla. KA spilaði einum manni færri eftir að Dusan Brkovic fékk rétt spjald strax í upphafi leiks. KA komst yfir manni færri en gestirnir jöfnuðu í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 1-1 | Allir daprir í Kópavogi
Stjarnan komst upp í 4. sæti Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld þrátt fyrir að missa niður forskotið í 1-1 jafntefli við Breiðablik. Blikar misstu hins vegar af tækifæri til að fara upp fyrir Val í 2. sæti deildarinnar.

„Gæðin í þessum leik ekki upp á marga fiska“
„Viltu ekki bara spyrja mig um leikinn?“ spurði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, og vildi ekkert tjá sig um hvöss orðaskipti á milli þeirra Þórs Sigurðssonar, styrktarþjálfara Stjörnunnar, eftir 1-1 jafntefli liðanna í Bestu deildinni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Valur 1-7 | Meistararnir með stórsigur í Eyjum
Valskonur gerðu góða ferð til Eyja í dag og unnu yfirburðasigur á ÍBV. Flóðgáttirnar opnuðust í seinni hálfleik þar sem sex mörk voru skoruð.

„Fæturnir voru þungir, við vorum ryðgaðar og þurfum að komast í takt aftur“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki sáttur með hvernig liðið byrjaði leikinn gegn FH í Kaplakrika í dag. Honum lyktaði með 1-1 jafntefli.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Tindastóll 2-1 | EM-farinn bjargaði Stjörnunni
Sædís Rún Heiðarsdóttir, nýkomin heim af EM U19-landsliða, sá um að tryggja Stjörnunni 2-1 sigur gegn Tindastóli í Bestu deildinni í fótbolta í dag með sannkölluðu draumamarki.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Breiðablik 1-1 | Jafnt í stórleiknum
FH og Breiðablik skildu jöfn, 1-1, í fyrsta leik dagsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.

Óvænt úrslit í Lengjudeildinni
Lengjudeildin heldur áfram að bjóða upp á óvænt úrslit. Í þremur leikjum af fjórum vann liðið sem var neðar í töflunni. Í fjórða leiknum voru liðin jöfn að stigum.

Úrslitaleikirnir á Rey Cup sýndir á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport sýnir beint frá úrslitaleikjunum á Rey Cup á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert.

Fram ekki farið í formlegar viðræður við aðra þjálfara
Agnar Þór Hilmarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir það afar þungbæra ákvörðun fyrir félagið að binda enda á samstarf sitt við Jón Þóri Sveinsson sem þjálfari karlalið félagsins í Bestu deildinni. Jón hafi tekið fréttunum af fagmennsku en engar formlegar viðræður hafa átt sér stað við mögulega arftaka Jóns í starfi til frambúðar.

Kynntu nýjan samning Birnis með Wolf of Wall Street myndbandi
Fótboltamaðurinn Birnir Snær Ingason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking.

Óvissa um framtíð Jóns í starfi: „Neita að tjá mig um það“
Daði Guðmundsson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fram, neitar að tjá sig um það hvort þjálfaramál karlaliðs félagsins séu til skoðunar. Í bili hið minnsta eins og hann tjáði Vísi.