Innlent
274 275 276 277 278 279 280 281 282 … 334 ›
Slysið á hárgreiðslustofunni í Kópavogi fær áheyrn Mál konu sem slasaðist við fall úr stól á hárgreiðslustofu í Kópavogi árið 2017 fær áheyrn hjá Hæstarétti. Rétturinn telur málið hafa fordæmisgildi og féllst á áfrýjunarbeiðni konunnar. Innlent 12.12.2023 13:42
Beðið milli vonar og ótta eftir lokayfirlýsingu COP 28 Lokadagur COP 28 loftslagsráðstefnunnar í Dubai er runninn upp og stefnt er að því að lokayfirlýsing ráðstefnunnar verði birt síðdegis. Formaður íslensku sendinefndarinnar segir að fundað hafi verið langt fram á nótt vegna deilna um orðlag um framtíð jarðefnaeldsneytis. Ríki hafi gengið svo langt að hóta því að segja sig frá ráðstefnunni. Innlent 12.12.2023 13:20
Stöðva ekki starfsemi Intuens Heilbrigðisráðuneytið telur ekki forsendur til þess að stöðva rekstur Intuens Segulómunar. Það er vegna þess að fyrirtækið gerði grundvallarbreytingar á starfsemi sinni í framhaldi af samskiptum sínum við ráðuneytið og embætti landlæknis. Innlent 12.12.2023 13:03
Banaslys við Hvalfjarðargöng: Var á örvandi efnum og tvöföldum hámarkshraða Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Akrafjallsvegi í grennd við Hvalfjarðargöng þann 22. júlí í fyrra reyndist hafa verið á örvandi efnum sem gerði það að verkum að hann var óhæfur til aksturs. Þá er sennilegt að hann hafi hraðast ekið um á tvöföldum leyfðum hámarkshraða. Innlent 12.12.2023 12:16
Ísland styður tillöguna um tafarlaust vopnahlé Ísland er á meðal fjölmargra þjóða sem ætla að styðja tillögu tveggja Afríkuríkja á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Þetta staðfestir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. Innlent 12.12.2023 12:00
Miklar breytingar framundan í Sundhöllinni Nýtt laugarker, endurgerðir pottar, tveir nýir gufuklefar aðstaða fyrir laugarverði eru meðal þeirra breytinga sem gerðar verða í Sundhöll Reykjavíkur á næstunni. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð borgarinnar samþykkti breytingarnar á fundi sínum fyrir helgi. Möguleg gætu stökkbretti innilaugarinnar horfið. Innlent 12.12.2023 11:56
Svandís gerir ráð fyrir 20 prósenta afföllum Í frumvarpi til laga um lagareldi, sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var að leggja fram til kynningar í Samráðsgáttinni, er ráð fyrir 20 prósent „afföllum“, sem þýðir að einn af hverjum fimm eldislöxum mun drepast í sjókvíunum. Innlent 12.12.2023 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um deilu flugumferðastjóra og Isavia en þeir fyrrnefndu lögðu niður störf í sex tíma í nótt og í morgun þannig að allt flug til og frá landinu lamaðist og innanlandsflugið líka. Innlent 12.12.2023 11:39
Greindi frá árás Steinþórs á sofandi Tómas nokkrum vikum fyrr Frændi Tómasar Waagfjörð segir Steinþór Einarsson hafa ráðist á frænda sinn sofandi um tveimur mánuðum áður en Tómas lést af völdum stungusára. Steinþór sætir ákæru fyrir manndrápið en málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Innlent 12.12.2023 11:26
Samkeppniseftirlitið segir aðhaldskröfur ekki standast neina skoðun Samkeppniseftirlitið er harðort í viðbótarumsögn sinni um nýtt fjárlagafrumvarp og segir eftirlit með samkeppni á Íslandi í grafalvarlegri stöðu. Framlög til eftirlitsins séu lækkuð á sama tíma og umsvif í efnahagslífinu aukist. Innlent 12.12.2023 11:22
Stungusárin líklega ekki fyrir slysni Læknir sem fór yfir krufningarskýrslu Tómasar Waagfjörð í Ólafsfjarðarmálinu svokallaða segir ólíklegt að tvö stungusár sem eru talin hafa orðið Tómasi að bana hafi orðið fyrir tilstilli slysni. Innlent 12.12.2023 11:12
Skora á RÚV og vilja Ísrael út Stjórn Félags tónskálda og textahöfunda hefur sent áskorun til útvarpsstjóra og stjórnar Ríkisútvarpsins þess efnis að taka ekki þátt í Eurovision-söngvakeppninni á næsta ári nema Ísraelum verði vikið úr keppni. Innlent 12.12.2023 08:44
Laun flugumferðarstjóra um 1,4 milljónir króna Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands eru flugumferðarstjórar með regluleg meðalheildarlaun upp á 1,4 milljónir króna. Neðri fjórðungsmörk launa flugumferðarstjóra eru um ein milljón króna. Innlent 12.12.2023 08:08
Víða hált á vegum landsins Víða er hált á vegum landsins og eru ökumenn beðnir að keyra varlega. Innlent 12.12.2023 07:36
Kæfðu eldinn með stærðarinnar eldvarnarteppi Stærðarinnar eldvarnarteppi var notað til þess að slökkva eld sem kviknaði í bíl í Skerjafirði í gær. Innlent 12.12.2023 07:23
Tveir fluttir á slysadeild eftir útafakstur á Kaldárselsvegi Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítalans til skoðunar eftir að bíll fór út af Kaldárselsvegi, ekki langt frá Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði, klukkan rúmlega eitt í nótt. Innlent 12.12.2023 06:42
Verkfall flugumferðarstjóra skollið á Verkfall flugumferðarstjóra skall á klukkan fjögur í nótt eftir að fundi samninganefnda Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins lauk án samnings í gærkvöldi. Vinnustöðvunin raskar flugi þúsunda ferðalanga. Innlent 12.12.2023 06:24
Í annarlegu ástandi og með ógnandi hegðun Tilkynnt var um mann sem var með ógnandi hegðun og í annarlegi ástandi í hverfi 101 í Reykjavík seinni partinn í gær. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna ástands síns. Innlent 12.12.2023 06:04
Einhliða viðskiptaþvinganir gegn Ísrael þjóni engum tilgangi Utanríkisráðherra telur ekki ráðlegt að Ísland ráðist ein þjóða í þvingunaraðgerðir gegn Ísrael til að knýja á um vopnahlé á Gaza. Almennt fari Ísland ekki þá leið að slíta stjórnmálasambandi við aðrar þjóðir, ekki einu sinni Rússa. Innlent 11.12.2023 23:53
Fauk í Guðlaug Þór á þinginu: „Nei, nei, við segjum nei!“ Umhverfisráðherra byrsti sig í óundirbúnum fyrirspurnartíma um orkumál á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan hafði kynt undir ráðherra með gagnrýni á aðgerðir ríkisstjórnarinnar í orkumálum áður en fyrirspurn þingmanns Pírata um rafmagnsreiðhjól fyllti mælinn. Innlent 11.12.2023 23:21
Ökumaður ók út af veginum á Kjalarnesi Ökumaður ók bíl út af veginum á nýja kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar en áverkar hans voru ekki alvarlegir og var hann með meðvitund. Innlent 11.12.2023 22:47
Fundi flugumferðarstjóra og SA frestað til morguns Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, sem semja fyrir hönd Isavia, í Karphúsinu er lokið. Boðað hefur verið til nýs fundar klukkan 15 á morgun. Innlent 11.12.2023 22:08
„Það er ekki heimilt að ganga í gámana hjá okkur“ Færst hefur í aukana að fólk geri sér ferð á eina af endurvinnslustöðvum Sorpu til að stela úr gámum. Samskiptastjóri Sorpu segir slíkar uppákomur nokkrum sinnum hafa endað með átökum og dæmi um að lögregla hafi verið kölluð til. Innlent 11.12.2023 21:37
Dularfulls blóðugs jógabolta sárt saknað Jógabolti hefur verið miðlægur í aðalmeðferð Ólafsfjarðamálsins svokallaða, sem varðar andlát Tómasar Waagfjörð sem Steinþór Einarsson er grunaður um að hafa orðið að bana í Ólafsfirði í október á síðasta ári. Fyrri hluti aðalmeðferðarinnar fór fram í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Innlent 11.12.2023 21:01
Dagskrá íbúafundar fyrir Grindvíkinga Íbúafundur verður haldinn fyrir Grindvíkinga á morgun klukkan 17 í anddyrinu á nýju Laugardalshöllinni. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum vegna jarðhræringa í og við Grindavík og mun íbúum gefast tækifæri til að bera fram spurningar á fundinum. Innlent 11.12.2023 20:54
Verkfallsaðgerðir raski plönum mörg þúsund farþega Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Enn er fundað í Karphúsinu og bendir því allt til að það verði af fyrirhugaðri vinnustöðvun í nótt sem mun hafa áhrif á mörg þúsund farþega. Innlent 11.12.2023 20:10
Vilja að Ísrael verði vikið úr Eurovision Hátt í sjö þúsund manns hafa skorað á Ríkisútvarpið að neita þátttöku í Eurovision nema Ísrael verði vísað úr keppni. Útvarpsstjóri hefur sagt að ekki standi til að Ísland dragi sig úr keppni í mótmælaskyni. Almenningur virðist nokkuð sammála um að Ísrael eigi ekki að fá að keppa. Innlent 11.12.2023 19:27
Sendir annarri konu kröfubréf vegna ummæla um nauðgun Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hefur sent konu kröfubréf vegna ummæla sem hún lét falla um hann á netinu árið 2022. Heimildin greinir frá og hefur eftir lögmanni Ingólfs að ekki sé útilokað að kröfubréfunum fjölgi á hendur fólki sem hafi tjáð sig með meiðandi hætti um tónlistarmanninn. Innlent 11.12.2023 19:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Íslensku flugfélögin eru tilbúin með áætlanir um breytingu á flugferðum á morgun vegna aðgerðanna. Innlent 11.12.2023 18:01
„Eins og að ganga inn í sláturhús“ Myndbandupptökur af tveimur lögregluskýrslum sem lögregla tók í fangelsinu Hólmsheiði af eiginkonu Tómasar Waagfjörð voru spilaðar í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag þar sem aðalmeðferð í Ólafsfjarðarmálinu svonefnda hófst. Innlent 11.12.2023 16:18