Innlent

„Fullt út úr dyrum“ á öllum fundum Samfylkingarinnar
Vali á lista Samfylkingarinnar verður hagað með uppstillingu. Þetta var staðfest á fundum kjördæmisráðs í kvöld en formaður framkvæmdastjórnar segir fullt út úr dyrum á öllum fundum flokksins.

Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka
Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað.

Stillt upp á alla lista Viðreisnar
Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins.

„Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“
Drengur sem hefur verið lagður sextán sinnum inn á Stuðla á einu ári segir betrun þeirra sem fara þangað inn litla sem enga. Faðir hans kallar úrræðið geymslu fyrir börn í vanda þar til þau verða átján ára.

Starfsstjórn tekin við stjórnartaumunum
Starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er tekin við völdum. Þetta var tilkynnt að loknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum í kvöld.

Sögulegur fundur á Bessastöðum og átakanleg saga af Stuðlum
Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan sex, þar sem ráðherrar Vinstri grænna biðjast formlega lausnar úr embætti. Við verðum í beinni útsendingu frá sögulegum fundi á Bessastöðum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Alma hættir sér ekki í oddvitabaráttuna
Alma Möller landlæknir gefur kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún fer í leyfi frá störfum sem landlæknir þegar listinn verður birtur og tekur Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir við embættinu á meðan.

Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman
Landsréttur hefur þyngt dóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt hann í þriggja og hálfs árs fangelsi vegna málsins, en vildi meina að háttsemi hans hefði ekki verið nauðgun. Landsréttur segir að um nauðgun sé að ræða og dæmir hann í fimm ára fangelsi.

Sá elsti vonar að draumur um ráðherrasæti rætist
Tómas A. Tómasson segist lifa æskudrauminn. Hann vonast til að verða næsti forseti Alþingis og segir að það hafi tekið tíma að læra að taka fréttir af blundum hans í þingsal ekki inn á sig.

Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni.

Vilhjálmur blandar sér í baráttuna í Kraganum
Enn bætist í fjölda þeirra sem vilja sæti ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður flokksins, gefur kost á sér í annað til fjórða sæti listans.

Sara sækist eftir fyrsta sæti í Reykjavík hjá Pírötum
Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata sækist eftir því að leiða lista Pírata í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Fyrr í dag tilkynnti Lenya Rún Taha Karim um það sama. Áður hafa oddvitar kjördæmanna og þingmenn flokksins, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunnarsson, gefið það út að þau ætli að halda áfram. Það er því ljóst að slagur verður um efstu sætin í prófkjöri Pírata.

Líneik Anna lætur af þingmennsku
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi Alþingiskosningum.

Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu
Kosið verður til Alþingis þann 30. nóvember. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. Ábendingar má senda á ritstjorn@visir.is.

Skrifar sundurlyndið ekki bara á Vinstri græn
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra og væntanlegur innviðaráðherra á ný, mætti pollrólegur í Samtalið hjá Heimi Má sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14. Mikið hefur gengið á í stjórnmálunum og á ríkisstjórnarheimilinu undanfarna daga eins og vart ætti að þurfa að fara yfir.

G. Sigríður vill annað sætið í Norðvestur
G. Sigríður Ágústsdóttir hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík.

Lárus leiðir uppstillingarnefnd Framsóknar í Reykjavík
Lárus Sigurður Lárusson lögmaður leiðir kjörnefnd í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Framsóknarflokkinn. Með honum í nefndinni eru þau Haukur Logi Karlsson, Fanný Gunnarsdóttir, Ásta Björg Ólafsdóttir, Teitur Erlendsson, Björn Ívar Björnsson og Unnur Þöll Benediktsdóttir

Bjarni hættur í Vinstri grænum
Bjarni Jónsson þingmaður hefur sagt sig úr Vinstri grænum og sagt skilið við þingflokkinn. Hann segir flokkinn hafa sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans.

Hætt hjá SFS og til liðs við Miðflokkinn
Laufey Rún Ketilsdóttir er hætt sem upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og hefur gengið til liðs við Miðflokkinn.

Örn í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps
Örn Geirdal Steinólfsson, 48 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir manndrápstilraun í vesturbæ Reykjavíkur í janúar síðastliðnum. Þá þarf hann að greiða karlmanni sem hlaut hættulega áverka 2,2 milljónir króna í miskabætur.

Kennarar í MR samþykkja verkfall
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Menntaskólanum í Reykjavík liggur fyrir. Mikill meirihluti styður boðun verkfalls. Þar með hafa verið boðaðar aðgerðir í tíu skólum í lok mánaðar og byrjun næsta mánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandinu.

Forsetaframbjóðandi vill leiða lista Pírata
Viktor Traustason, sem bauð sig fram í forsetakosningunum í júní síðastliðinn, hefur boðið sig fram í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi.

Alma Möller skellir sér í pólitíkina
Alma Möller landlæknir hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Píratar halda prófkjör
Kjörstjórn Pírata fyrir alþingiskosningar 2024 hefur boðað til prófkjörs dagana 20.–22. október næstkomandi þar sem kosið verður um sæti á framboðslista flokksins í öllum kjördæmum.

Rósa sækist eftir þriðja sætinu
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði gefur kost á sér í 3. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Rósa sagði í gær í samtali við Vísi vera að íhuga málið alvarlega.

Sigurður Ingi mætir í Samtalið á ólgutímum
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Seinna í dag liggur leið hans á Bessastaði til að taka einnig við innviðaráðuneytinu í minnihluta starfsstjórn.

Starfsstjórn með minnihluta á Alþingi tekur við síðdegis
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem mynduð var í apríl verður formlega leyst frá völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag, tveimur dögum eftir að forseti Íslands samþykkti lausn hans og annarra ráðherra þeirrar ríkisstjórnar úr embætti og skipaði alla ráðherrana í starfsstjórn. Ný minnihluta-starfsstjórn tekur við völdum á Bessastöðum síðdegis.

„Kennarar eru ekki eyland í kjarabaráttunni“
Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu. Kennarar séu ekki eyland, fleiri hópar eigi eftir að klára sína samninga. Þá segir hann að samanburður einkageirans og hins opinbera sé snúinn því margir kostnaðarliðir, umfram laun, hvíli á herðum opinberra vinnuveitenda.

Jón Magnús gefur kost á sér
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.

Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík
Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar.