Erlent „
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
„Ég las heila bók í fyrsta sinn í sex ár“ Ungt fólk ver að meðaltali 5 klukkustundum á dag með nefið ofan í farsímanum sínum. Það reiðir sig í æ minna mæli á fréttir úr hefðbundnum fjölmiðlum og fyllist kvíða og vanlíðan ef það er lengi án farsímans. Erlent 1.10.2022 14:31
Lyman er í höndum Úkraínumanna Úkraínumenn hafa rekið Rússa á brott frá bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Talsmaður úkraínska hersins sagði í morgun að allt að 5.500 rússneskir hermenn hefðu verið umkringdir þar en meirihluti þeirra virðist hafa flúið áður en borgin var umkringd. Erlent 1.10.2022 12:30
Trump hótaði McConnell lífláti undir rós Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hótaði Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, lífláti undir rós í gærkvöldi. Samhliða því fór hann rasískum orðum um Elaine Chow, eiginkonu McConnells. Erlent 1.10.2022 10:11
Hækkandi sjávarstaða og möguleiki á skyndiflóðum víða vegna Ian Fellibylurinn Ian kom til Georgetown í Suður-Karólínu um klukkan 18:00 á íslenskum tíma og hefur þegar látið til sín taka. Íbúar í Flórída eiga enn við afleiðingar veðursins sem geisaði þar þegar fellibylurinn átti leið hjá. Erlent 30.9.2022 21:45
Ekki lengur sent í sóttkví við komuna til Ástralíu Ástralía mun hætta að senda ferðalanga sem koma til landsins í sóttkví við komu frá og með 14. október næstkomandi. Landið hefur verið þekkt fyrir einar ströngustu reglur og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum. Erlent 30.9.2022 20:31
Putin segir Vesturlönd sækja að Rússum með skemmdarverkum og úrkynjun Úkraína hefur óskað eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu með hraði eftir að Rússlandsforseti setti á svið innlimun fjögurra héraða í landinu með athöfn í Kreml í dag. Utanríkisráðherra segir ekkert mark takandi á svo kölluðum kosningum í þessum héruðum þar sem varla fannst maður á móti innlimuninni. Erlent 30.9.2022 19:21
Svíar á svæðinu sólarhring áður en meint skemmdarverk átti sér stað Fjórir lekar fundust á Nord stream 1 og 2 gasleiðslurnar í Eystrasalti á dögunum og telur Atlantshafsbandalagið að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Norrænir jarðskjálftamælar urðu varir við tvær sprengingar á svæðinu. Sænski sjóherinn sinnti eftirliti á svæðinu þangað til sólarhring áður en meintu skemmdarverkin áttu sér stað. Erlent 30.9.2022 18:37
„Þetta sýnir ekki styrk. Þetta sýnir veikleika“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir ólöglega innlimun Rússlands á fjórum héruðum Úkraínu vera mikla stigmögnun í tengslum við innrás Rússa hingað til. Ákvörðun Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, hefði þó ekki áhrif á eðli átakanna eða stuðning NATO við Úkraínu. Erlent 30.9.2022 17:09
Ian stefnir hraðbyri að Suður-Karólínu Íbúar við strendur Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hafa flúið heimili sín og leitað á hærri svæði í aðdraganda þess að fellibylurinn Ian nær þar landi. Fellibylurinn hefur þegar valdið gífurlegum skaða á Kúbu og í Flórída en hefur safnað krafti á nýjan leik og veðurfræðingar búast við miklum flóðum í Charleston og víðar. Erlent 30.9.2022 16:31
Meðlimir sértrúarsafnaðar flúðu úr haldi í Mexíkó Um tuttugu meðlimir gyðinglegs sértrúarsafnaðar í Mexíkó flúðu úr haldi lögreglu. Húsleit var gerð í búðum safnaðarins fyrir helgi vegna gruns og mansal og alvarleg kynferðisbrot. Erlent 30.9.2022 15:38
Óska eftir skjótri inngöngu í NATO Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tilkynnti nú fyrir skömmu að ríkisstjórn hans hafi formlega sótt um skjóta inngöngu í Atlantshafsbandalagið (NATO). Það er í kjölfar þess að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði undir ólöglega innlimun fjögurra héraða Úkraínu. Erlent 30.9.2022 14:56
Bölsótaðist út í Vesturlönd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að þau héruð Úkraínu sem hann innlimaði einhliða og ólöglega í rússneska sambandsríkið í dag tilheyri Rússlandi. Þau hafi tilheyrt rússneska keisaraveldinu og Sovétríkin hafi rekið Þjóðverja þaðan í seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 30.9.2022 14:22
Ekki útilokað að Lula sigri strax í fyrstu umferð Skoðanakönnun sem var birt fyrir síðustu sjónvarpskappræður frambjóðenda í forsetakosningunum í Brasilíu benda til þess að Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti, gæti unnið endanlegan sigur strax í fyrstu umferð. Taugar eru þandar fyrir kosningarnar en Jair Bolsonaro forseti hefur ítrekað gefið í skyn að hann muni ekki viðurkenna úrslitin ef hann tapar. Erlent 30.9.2022 14:07
Umkringdir rússneskir hermenn sagðir hörfa frá Lyman Úkraínumenn eru sagðir hafa nánast umkringt hóp rússneskra hermanna í borginni Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Rússar eru sagðir undirbúa það að hörfa frá bænum á sama tíma og forseti Rússlands lýsir yfir innlimun héraðsins. Erlent 30.9.2022 12:16
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. Erlent 30.9.2022 11:24
Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar Í hádeginu fer fram athöfn í Kreml þar sem Vladimir Putin forseti Rússlands undirritar formlega yfirlýsingu um innlimun fjögurra héraða í Úkraínu í rússneska sambandslýðveldið. Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan gjörning. Erlent 30.9.2022 11:24
NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. Erlent 30.9.2022 10:27
Lekinn í Eystrasalti lítill hluti af losun manna á metani Þrátt fyrir að þúsundir tonna af jarðgasi velli út um göt á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur er lekinn lítill í samanburði við aðra losun manna á metani. Áætlað er að ef allt gasið í leiðslunum læki út í andrúmsloftið næmi það um 0,1% af heildarlosun á metani í heiminum. Erlent 30.9.2022 09:35
Að minnsta kosti nítján látnir eftir árás á skóla í Kabúl Að minnsta kosti nítján eru látnir og á þriðja tug slasaðir eftir að sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á Kajj námsmiðstöðina í höfuðborg Afganistan í morgun. Nemendur voru í prófi þegar sprengingin varð en á svæðinu en enginn hefur tekið ábyrgð á árásinni enn sem komið er. Erlent 30.9.2022 08:05
23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga. Erlent 30.9.2022 07:50
Fjöldi látinna í Flórída á reiki eftir fellibylinn Ian Fellibylurinn Ian sem gekk á land í Flórída á miðvikudag stefnir nú á Suður-Karólínu en fjölmargir íbúar flúðu úr stærstu borg ríkisins, Charleston, í gær. Ríkisstjóri Flórída segir ljóst að fellibylurinn, sem er einn sá stærsti í sögu Bandaríkjanna, hafi verið mannskæður en verið er að staðfesta fjölda látinna. Erlent 30.9.2022 07:30
Ian gæti orðið sá mannskæðasti í sögu Flórída Fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar og óttast er að hann sé mannskæðasti fellibylur í sögu Flórída. Íbúðarhús eru víða gjörónýt, þak fauk af spítala, vegir skemmdust og brýr hrundu. Erlent 29.9.2022 20:10
Liz Truss gefur ekkert eftir varðandi skattalækkanir Liz Truss forsætisráðherra Bretlands varði í dag nýlegar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem meðal annars fela í sér miklar skattalækkanir á hina efnameiri. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við stefnunni og áhrifum hennar á alþjóðlega markaði og hvatti bresku stjórnina í vikunni til að draga þær til baka. Erlent 29.9.2022 19:41
Hafi beðið Taívan um milljarð dala til þess að tryggja bandalagið Forseti Paragvæ, Mario Abdo Benítez er sagður hafa beðið taívönsk stjórnvöld um að fjárfesta í bandalagi ríkjanna tveggja fyrir einn milljarð dollara eða rúmlega 147 milljarða króna. Fjárfestinguna er hann sagður biðja um til þess að fá hvata til að láta ekki undan þrýstingi og gerast bandamaður Kína. Erlent 29.9.2022 15:20
Sást til rússneskra herskipa nærri lekastaðnum í vikunni Evrópskar öryggisstofnanir eru sagðar hafa fylgst með ferðum rússneskra herskipa nærri staðnum þar sem lekar komu á Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti í vikunni. Atlantshafsbandalagið telur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Erlent 29.9.2022 14:04
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. Erlent 29.9.2022 14:00
Drottningin lést úr elli Elísabet II. Bretlandsdrottning lést úr elli, 96 ára að aldri. Dánarvottorð hennar var gefið út í dag. Erlent 29.9.2022 13:35
Fellibylurinn í myndskeiðum: Ian skilur eftir sig mikla eyðileggingu í Flórída Útlit er fyrir að fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hafi valdið gífurlegum skemmdum í sjávarbyggðum þar. Myndbönd frá Flórída sem tekin voru í gær og í nótt sýna að sjór gekk langt inn á land og olli mikilli eyðileggingu. Erlent 29.9.2022 11:38
Ætlar að innlima héruðin á morgun Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að skrifa undir innlimun fjögurra héraða Úkraínu á morgun, föstudag. Þetta tilkynnti Kreml nú fyrir skömmu og sagði að klukkan þrjú á morgun, að staðartíma, myndi Pútín skrifa undir innlimun héraðanna í rússneska sambandsríkið og halda ræðu í kjölfarið. Erlent 29.9.2022 10:13
Tvær milljónir án rafmagns og fólk innlyksa eftir Ian Fjöldi fólks er innlyksa í húsum sínum vegna flóða og tvær milljónir manna eru án rafmagns á suðvestanverðum Flórídaskaga í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ian gekk þar yfir í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum. Erlent 29.9.2022 09:05