Erlent
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Kynlífssvall og svefnleysi banar pokaköttum Niðurstöður nýrrar ástralskrar rannsóknar benda til að karlkyns pokakettir fórni svefni til að tryggja sér kynlíf og að þessi forgangsröðun spili stóran þátt í ótímabærum dauða þeirra. Rannsóknin bendir til að karldýrin ferðist langar vegalengdir í von um að finna kvendýr og sleppi því að sofa á meðan. Erlent 1.2.2023 13:37
Allt í volli í dýragarðinum í Dallas: Dýr að sleppa og grunsamlegur dauðdagi hrægamms Dularfull hvörf og grunsamlegur dauðdag hrægamms í dýragarðinum í Dallas eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í borginni. Í gær komst í ljós að tveimur keisaratamarin öpum hafði verið stolið úr garðinum en skömmu fyrir það fannst hrægammur sem lést dularfullum dauðdaga. Erlent 1.2.2023 10:24
Þingmaðurinn ljúgandi hættir við nefndasetu Bandaríski þingmaðurinn George Santos mun ekki taka sæti í tveimur þingnefndum sem hann hafði verið skipaður í. Hann segist vilja bíða þar til búið væri að hreinsa hann af ásökunum um lygar í ferilskrá sinni og hefur beðið samflokksmenn sína afsökunar á „fjölmiðlafárinu“ sem myndast hefur í kringum hann. Erlent 1.2.2023 09:17
Vilja flytja út norskt gjafasæði til Íslands Livio í Noregi hefur sóst eftir því að hefja útflutning á norsku gjafasæði og horfir sérstaklega til Íslands og Svíþjóðar. Erlent 1.2.2023 09:01
Leit að geislavirkri nál í heystakki bar árangur í Ástralíu Yfirvöld í Ástralíu segjast nú hafa fundið agnarsmátt geislavirkt hylki sem týndist á dögunum. Erlent 1.2.2023 07:54
Neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum saksóknara Donald Trump neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum sem lagðar voru fyrir hann við yfirheyrslur vegna rannsóknar yfirvalda í New York. Þetta sést á myndskeiði af yfirheyrslunni sem CBS News hefur undir höndum. Erlent 1.2.2023 07:44
Tékklandsforseti vill Úkraínu í Nató um leið og stríðinu lýkur Nýkjörinn forseti Tékklands segist þeirrar skoðunar að Úkraína eigi að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 1.2.2023 07:38
Leggja til að fangar fái að gefa líffæri gegn styttri afplánunartíma Tveir þingmenn í Massachusetts í Bandaríkjunum hafa lagt fram frumvarp sem kveður á um að fangar fái dóma sína mildaða gegn því að gefa beinmerg eða líffæri. Afplánunartíminn gæti þannig styst um 60 til 365 daga. Erlent 1.2.2023 07:03
Reyna að vekja dódó-fuglinn til lífsins Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu vilja vekja hinn útdauða dódó-fugl aftur til lífs en tegundin dó út á 17. öld. Með nýjum aðferðum við raðgreiningu erfðaefnis og nýjungum í genabreytingartækni telja vísindamennirnir að hægt sé að koma aftur upp stofni af dódó-fuglum. Erlent 31.1.2023 23:50
49 börn drukknuðu í skólaferð 51 manns létu lífið er bát hvolfdi á Tanda Dam-vatninu nærri borginni Kohat í Pakistan, þar af 49 börn. Börnin voru ásamt kennurum og skipstjóra í skólaferð á vatninu. Erlent 31.1.2023 23:08
Eldsvoði í Nuuk rannsakaður sem manndráp Lögreglan í Nuuk á Grænlandi hefur til rannsóknar andlát konu sem lét lífið í eldsvoða snemma í morgun. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 31.1.2023 22:34
Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. Erlent 31.1.2023 21:46
Árásarmaður Pelosi: „Ég hefði átt að vera betur undirbúinn“ Maðurinn sem kærður hefur verið fyrir að hafa ráðist á Paul Pelosi í október síðastliðnum hringdi í fjölmiðla eftir birtingu myndbanda af árásinni. Í símtalinu virðist hann biðjast afsökunar á að hafa ekki staðið sig betur við verknaðinn. Erlent 31.1.2023 20:48
Íslendingurinn sem var stunginn í Noregi kominn til meðvitundar Íslensk kona sem var stungin af fyrrverandi eiginmanni sínum í Noregi fyrr í mánuðinum er komin til meðvitundar. Maðurinn, sem einnig er Íslendingur, er grunaður um tilraun til manndráps og hefur játað á sig árásina. Erlent 31.1.2023 19:07
Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við. Erlent 31.1.2023 14:36
Staðfest að 87 hafi látist í sprengingunni í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa nú staðfest að 87 hafi látist í árás sjálfsvígssprengjumanns í mosku í pakistanska héraðinu Peshawar í gær. Erlent 31.1.2023 07:52
Fleiri en 600 handteknir í aðgerðum gegn heimilisofbeldi Fleiri en 600 einstaklingar hafa verið handteknir og ákærðir eftir fjögurra daga lögregluaðgerð í Ástralíu sem beindist gegn heimilisofbeldi. Meðal handteknu voru 164 einstaklingar sem lögregla segir hafa verið „mest eftirlýstu“ ofbeldismenn landsins. Erlent 31.1.2023 07:22
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Fyrrverandi heimsmeistari annar þeirra látnu Kyle Smaine, fyrrverandi heimsmeistari í skíðum í hálfpípu (e. half-pipe), er annar þeirra sem létust í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Smaine var 31 árs gamall og hafði ekki keppt í skíðaíþróttum í fimm ár. Erlent 30.1.2023 16:36
Fjöldi lögregluþjóna dó í sprengjuárás í mosku Minnst 44 dóu og 150 særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Flestir hinna látnu eru lögregluþjónar, þar sem moskan er við lögreglustöð. Erlent 30.1.2023 16:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Þrír letibirnir frusu í hel á belgískum flugvelli Þrír letibirnir frusu í hel eftir að þeir voru skildir eftir í flugvél á flugvellinum í Liège í Belgíu um helgina 21. og 22. janúar síðastliðinn. Erlent 30.1.2023 14:53
Tveir létu lífið í snjóflóði í Japan Tveir karlmenn létu lífið í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Mennirnir voru hluti af fimm manna hóp sem var að skíða í Hakuba Norikura-fjallinu en hinir þrír komust undan flóðinu. Erlent 30.1.2023 14:48
Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. Erlent 30.1.2023 11:52
Þak mosku hrundi er maður sprengdi sig í loft upp Minnst 27 eru látnir og 147 særðir eftir sprengjuárás í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Maður er sagður hafa sprengt sig í loft upp á bænartíma þegar moskan var full af fólki. Erlent 30.1.2023 10:56
Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. Erlent 30.1.2023 10:29
Blinken heimsækir Miðausturlönd Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken er mættur til Egyptalands þar sem þriggja daga heimsókn hans til Miðausturlanda hefst. Erlent 30.1.2023 09:29
Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma. Erlent 30.1.2023 08:14
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Átta hundruð slösuðust í jarðskjálfta Átta hundruð slösuðust og þrír létust í jarðskjálfta af stærðinni 5,9 í Íran í gær. Jarðskjálftinn skall á rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Erlent 29.1.2023 21:48