Erlent

Fyrr­verandi starfs­maður sakar Nicki Mina­j um líkams­árás

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Í umfjöllun TMZ er að finna miður fallegar lýsingar á framferði Minaj í garð starfsmanns síns. Hún segir þær þó ekki réttar.
Í umfjöllun TMZ er að finna miður fallegar lýsingar á framferði Minaj í garð starfsmanns síns. Hún segir þær þó ekki réttar. Jamie McCarthy/Getty

Maður að nafni Brandon Garrett hyggst höfða mál á hendur rapparanum og söngkonunni Nicki Minaj vegna meintrar líkamsárásar liðið vor. Lögmaður stórstjörnunnar segir ásakanirnar úr lausu lofti gripnar.

Það er slúðurmiðillinn TMZ sem greinir frá málinu, og greinir frá því að Garrett, sem segist hafa starfað sem umboðsmaður Minaj í apríl á síðasta ári, hafi þegar lagt fram málshöfðun á hendur henni.

Ástæðan sé sú að Minaj hafi reiðst Garrett vegna starfa hans, ausið yfir hann fúkyrðum og loks slegið hann í höfuðið með opnum lófa, með þeim afleiðingum að hann kastaðist til baka og missti hattinn sinn.

Sakarefnið líkamsárás og tilfinningalegt uppnám

Í kjölfarið hafi öryggisteymi Minaj umkringt Garrett, áður en hún sló hann í höndina þannig að skjöl sem hann hélt á féllu til jarðar. Að svo búnu hafi Minaj gargað og gólað skipanir um að Garrett ætti að „drulla sér út“.

Samkvæmt TMZ hefur Garrett höfðað mál á hendur Minaj og krafist bóta fyrir líkamsárás, og að hafa vísvitandi komið honum í tilfinningalegt uppnám. 

Segir ásakanirnar byggðar á sandi

Í upphaflegri frétt TMZ kom fram að engin svör hefðu fengist fré teymi Minaj við fyrirspurnum miðilsins. Fréttin hefur nú verið uppfærð, eftir að Judd Burstein, lögmaður Minaj, tjáði sig um málið.

„Sem stendur hefur engin kæra verið lögð fram á hendur frú Petty (raunverulegt eftirnafn Minaj), og af þeim sökum könnumst við ekki við hinar umræddu ásakanir. Ef kæran er með þeim hætti sem TMZ fjallar um er hún hins vegar með öllu röng og ástæðulaus. Við erum fullviss um að þetta mál, lagt fram af fyrrverandi aðstoðarmanni, verði leyst greiðlega, Petty í vil.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×