Erlent
168 169 170 171 172 173 174 175 176 … 334 ›
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. Erlent 14.3.2023 14:01
Tólf og þrettán ára grunaðar um að hafa myrt jafnöldru sína Síðastliðinn laugardag hvarf tólf ára gömul stúlka í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Stúlkan fannst látin daginn eftir en talið er að hún hafi verið myrt. Tvær jafnöldrur stúlkunnar eru grunaðar um morðið. Erlent 14.3.2023 13:17
Að minnsta kosti fimm börn getin með stolnu sæði Læknir á sjúkrahúsinu í Halmstad í Svíþjóð tók sæði frá mönnum sem höfðu skilað inn sýnum vegna frjósemisrannsókna og notaði til að gera konur þeim ókunnugar þungaðar. Frá þessu var greint í Uppdrag granskning fyrir helgi. Erlent 14.3.2023 13:15
Sérfræðingar uggandi og Kínverjar æfir vegna AUKUS Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í gær formlega um samkomulag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu um þróun og framleiðslu kjarnorkuknúinna herkafbáta. Erlent 14.3.2023 10:21
Kirkjugarður í Wales varð að vígvelli Nýlega opinberað myndband sýnir hvernig hópur manna barðist með hömrum, kylfum, hnífum, öxum og sveðjum í Morriston kirkjugarðinum í Swansea í Wales í fyrra. Þrettán hafa verið dæmdir vegna átakanna en þau leiddu til þess að nokkrir særðust alvarlega, jarðarfarir voru truflaðar og legsteinar skemmdir. Erlent 14.3.2023 09:54
Kínverjar opna fyrir erlendum gestum Kínverjar hafa ákveðið að opna landamæri sín fyrir erlendum ferðamönnum á ný eftir kórónuveirufaraldurinn og taka breytingarnar gildi strax á morgun miðvikudag. Erlent 14.3.2023 07:38
Tveir látnir í Kanada eftir að ekið var á gangandi vegfarendur Tveir menn eru látnir og níu særðir eftir að pallbíl var ekið á gangandi vegfarendur í bænum Amqui, norður af borginni Quebec, í Kanada. Lögregla hefur handtekið 38 ára ökumann bifreiðarinnar og verið er að rannsaka hvort hann ók viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 07:22
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. Erlent 13.3.2023 23:39
Glitter sendur aftur í fangelsi Barnaníðingurinn Gary Glitter var kallaður aftur til afplánunar í fangelsi rétt rúmum mánuði eftir að hann var látinn laus til reynslu. Bresk fangelsisyfirvöld segja að hann hafi rofið skilmála lausnarinnar. Erlent 13.3.2023 20:46
Tæplega hundrað látnir eftir fellibyl í Malaví Fellibylurinn Freddy skall á suðurhluta Malaví í dag og létu 99 manns lífið. Að minnsta kosti 134 dvelja nú á spítala eftir fellibylinn. Erlent 13.3.2023 20:43
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. Erlent 13.3.2023 15:23
Ísland efst á meðal þjóða sem geta tekist á við offituvandann Ísland er í fjórða efsta sæti á lista yfir lönd sem eru best sett til að takast á við offituvandann. Erlent 13.3.2023 14:57
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. Erlent 13.3.2023 14:30
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13.3.2023 13:44
Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“. Erlent 13.3.2023 11:09
Biden sagður munu leggja blessun sína yfir umfangsmikla olíuborun New York Times hefur eftir embættismönnum innan stjórnkerfis Bandaríkjanna að stjórnvöld muni í dag samþykkja umfangsmiklar olíuboranir í Alaska, sem munu mögulega gefa af sér 600 milljón tunnur af hráolíu á 30 ára tímabili. Erlent 13.3.2023 10:23
Segja Rússa viljandi láta Wagner blæða í Bakhmut Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War telur ósættið milli stjórnvalda í Rússlandi og Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner málaliðahópsins, hafa náð hámarki. Erlent 13.3.2023 07:13
Fjölskyldu Pence ógnað vegna orða Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, segir Donald Trump fara með fleipur um innrásina sem gerð var á þinghúsið í Washington 6. janúar 2021. Árásin hafi ekki verið neitt annað en svívirðileg. Erlent 12.3.2023 10:20
Kviknaði í 21 bíl eftir árekstur í Ungverjalandi Að minnsta kosti 36 slösuðust eftir árekstur á hraðbraut í Ungverjalandi þar sem kviknaði í 21 bíl. Erlent 11.3.2023 19:31
Önnur tilraun til að skjóta upp fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni Starfsmenn fyrirtækisins Relativity Space munu reyna að skjóta fyrstu eldflauginni sem er nánast öll þrívíddarprentuð út í geim. Eldflaugin notar einnig metan sem eldsneyti, sem er ekki hefðbundið. Fyrri tilraun til að skjóta eldflauginni mistókst. Erlent 11.3.2023 19:13
Fótboltasérfræðingur settur á bekkinn fyrir að líkja stjórnvöldum við nasista Breska ríkisútvarpið hefur sent einn vinsælasta sjónvarpsmann landsins í tímabundið leyfi vegna gagnrýni hans á útlendingafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu skrifar innanríkisráðherra að hann geti ekki fullyrt að frumvarpið samræmist mannréttindasáttmála Evrópu. Erlent 11.3.2023 16:40
BBC neitar ásökunum um ritskoðun Ákvörðun breska ríkisútvarpsins BBC, um að sýna ekki lokaþátt úr Wild Isles, nýrri þáttaröð Davids Attenborough hefur vakið hörð viðbrögð. Umræddur þáttur fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum og orsakir þeirra en samkvæmt heimildum The Guardian var hætt við að sýna þáttinn þar sem forsvarsmenn BBC óttuðust gagnrýnisraddir frá Íhaldsflokknum og hægri sinnuðum fjölmiðlum. Erlent 11.3.2023 14:31
Fyrrverandi sambýlishvalur Keiko er dauður Háhyrningurinn Kiska, sem deildi tanki með Keiko þegar þeir dvöldu hér á landi, er dauður, 47 ára að aldri. Hann var oft þekktur sem „Mest einmana hvalur í heimi“ en Kiska bjó ein frá því árið 2011 til hennar dauðdaga. Erlent 10.3.2023 23:56
Réttarhöldum yfir meintum þjóðarmorðingja frestað Réttarhöldum yfir Félicien Kabuga við Stríðsglæpadómstólinn í Haag var í dag frestað þar sem lögmenn hans segja hann vera með elliglöp. Kabuga er sagður hafa hvatt til þjóðarmorða gegn Tútsis-þjóðflokknum í Rúanda. Erlent 10.3.2023 23:41
Xi líklega við völd í Kína til æviloka Xi Jinping forseti Kína sór embættiseið að stjórnarskránni fyrir sitt þriðja fimm ára kjörtímabil sem forseti landsins við athöfn á Alþýðuhöllinni í Peking í dag. Margir telja að Xi ætli sér að sitja að völdum til dauðadags. Erlent 10.3.2023 19:30
DeSantis sagður ræða um framboð bak við tjöldin Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er sagður ræða um að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna á bak við tjöldin. Hann er nú á ferðalagi um ríki sem greiða fyrst atkvæði í forvali Repúblikanaflokksins og verið er að smyrja fjáröflunarvél hans. Erlent 10.3.2023 16:20
BBC sýnir ekki Attenborough af ótta við hægrimenn Breska ríkisútvarpið BBC er sagt hafa ákveðið að sýna ekki þátt úr nýrri náttúrulífsþáttaröð Davids Attenborough af ótta við viðbrögð Íhaldsflokksins og hægrisinnaðra fjölmiðla. Þátturinn fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum. Erlent 10.3.2023 15:39
Íranar og Sádar taka aftur upp stjórnmálasamband Fulltrúar Írans og Sádi-Arabíu tilkynntu að ríkin tvö ætluðu að taka aftur upp stjórnmálasamband og opna sendiráð sem var lokað í áralöngum illdeilum þeirra í dag. Kínverjar höfðu milligöngu um samningaviðræður ríkjanna. Erlent 10.3.2023 15:24
Byssumaðurinn sagði skilið við söfnuðinn í illu Karlmaður á fertugsaldri sem skaut sex manns og ófætt barn til bana í ríkissal votta Jehóva í Hamborg í gærkvöldi sagði skilið við söfnuðinn í illu fyrir einu og hálfu ári, að sögn þýska yfirvalda. Lögregla ræddi við manninn í janúar þegar henni barst ábending um að hann hefði sýnt reiði í garð trúaðra. Erlent 10.3.2023 14:23
Vatnið á jörðinni eldra en sólkerfið sjálft Rannsóknir stjörnufræðinga á efnisskífu í kringum fjarlæga frumstjörnu rennir stoðum undir þá tilgátu að vatnið á jörðinni sé enn eldra en sólkerfið sjálft. Talið er að vatnið hafi orðið til í geimnum á milli stjarnanna og á endanum borist til jarðarinnar með halastjörnum. Erlent 10.3.2023 13:29