
Enski boltinn

Ofurtölvan spáir United hræðilegri niðurstöðu
Ef reikningar ofurtölvu veðmálafyrirtækisins Bettingexpert rætist endar Manchester United neðar en liðið hefur nokkru sinni endað í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Keane trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá ömurlegan árangur United
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, trúði ekki eigin augum þegar hann sá skelfilegan árangur liðsins undir stjórn Eriks ten Hag á útivelli gegn sterkustu liðum ensku úrvalsdeildarinnar.

Þrír stafir gætu komið Haaland í vandræði hjá aganefndinni
Erling Haaland gjörsamlega trompaðist í blálok leiks Manchester City og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær eftir að dómarinn leyfði ekki hagnað sem hefði væntanlega fært City sigurmarkið í leiknum.

„Það versta sem hægt er að segja um hann“
Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports, sagði frammistöðu enska framherjans Marcus Rashford hafa verið algjörlega óásættanlega í tapi Manchester United gegn Newcastle um helgina.

Klopp staðfesti hnémeiðsli og langa fjarveru Matip
Liverpool vann sterkan endurkomusigur í sjö marka leik á Anfield. Lokatölur urðu 4-3 gegn Fulham, það skyggði þó aðeins á sigursælu liðsins að Joel Matip hafi farið meiddur af velli.

Ótrúlegur endir á stórkostlegum leik
Tottenham tryggði stig úr viðureign sinni gegn Manchester City í uppbótartíma eftir gífurlega fjörugan leik. Allt stefndi í fjórða tapleik Tottenham í röð en þeir neituðu að gefast upp og uppskáru undir lokin 3-3 jafntefli gegn Englandsmeisturunum.

Vitum hversu mikið við leggjum á okkur fyrir hvorn annan
„Frábær sigur í dag. Hefur verið risastór vika fyrir okkur, góð augnablik og sum erfið sem við fórum í gegnum sem lið,“ sagði Anthony Gordon eftir 1-0 sigur Newcastle United á Manchester United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gordon skoraði sigurmark leiksins.

Newcastle upp fyrir andlaust lið Man United
Newcastle United vann Manchester United 1-0 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn var síst of stór.

Jón Daði gerði þrennu í fyrri hálfleik
Jón Daði Böðvarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Bolton Wanderers þegar liðið fékk Harrogate Town í heimsókn í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Jón Daði gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleik en leiknum lauk með 5-1 sigri Bolton.

Skytturnar með fjögurra stiga forystu eftir sigur á Úlfunum
Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Arsenal, var á leið að vinna þægilegan 2-0 heimasigur á Wolves þangað til gestirnir skoruðu undir lok leiks. Nær komust þeir ekki og unnu Skytturnar 2-1 sigur í dag.

Jóhann Berg kom inn af bekknum í stórsigri Burnley
Burnley vann Sheffield United örugglega í nýliðaslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir frá Sheffield voru manni færri allan síðari hálfleik og það nýttu lærisveinar Vincents Kompany sér.

„Við breytum draumnum í martröð“
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, var spurður út í heimavallarárangur liðsins í ensku úrvalsdeildinni á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Fulham um helgina.

Ten Hag: Onana er sterkur karakter
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, kom Andre Onana til varnar á fréttamannafundi í gær.

Ange: Stóru liðin víkja ekki frá sínu plani
Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, segist vera spenntur fyrir viðureign síns liðs gegn Manchester City á Ethiad vellinum á morgun.

Hrár kjúklingur á borðum eftir leik Manchester United
Manchester United liggur undir lögreglurannsókn eftir að fjöldi fólks veiktist eftir viðburð á vegum félagsins þar sem meint er að hrár kjúklingur hafi verið borinn á borð.

Segir stjóra Tottenham gera fótboltann að betri stað
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hrósaði kollega sínum hjá Tottenham, Ange Postecoglou, fyrir stórleik liðanna í Manchester á sunnudaginn.

Everton áfrýjaði þyngsta dómnum
Enska knattspyrnufélagið Everton hefur áfrýjað dómnum sem fól í sér að liðið missti tíu stig á yfirstandandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni.

Hefur ekki fyrirgefið Beckham og Ince fyrir að skemma HM-drauminn
Michael Owen þolir ekki tvo fyrrverandi félaga sína í enska landsliðinu vegna dýrra mistaka þeirra á stórmóti.

Segir Rodgers ömurlega manneskju og versta stjóra sem hann hefur haft
Ítalski fótboltamaðurinn Mario Balotelli skaut föstum skotum að Brendan Rodgers í sjónvarpsviðtali og sparaði ekki stóru orðin.

Liverpool vonast til þess að Alisson nái Man. Utd leiknum
Alisson Becker meiddist um helgina og verður ekki með Liverpool liðinu á næstunni. Hann missir af Evrópuleiknum í kvöld og verður hugsanlega frá í tvær vikur.

Glímdi við fjárhagsáhyggjur fyrir andlátið
Maddie Cusack, varafyrirliði Sheffield United sem lést í september, átti erfitt með að ná endum saman. Móðir hennar segir of mikla pressu á fótboltakonum.

Fá að spila áfram þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot eða heimilisofbeldi
Lið í ensku úrvalsdeildinni hafa haldið áfram að spila leikmönnum vitandi það að þeir hafa fengið á sig ásakanir um kynferðisbrot eða heimilisofbeldi.

Góð innkoma Arnórs þegar Blackburn lagði lærisveina Rooney
Arnór Sigurðsson kom inn sem varamaður í hálfleik þegar Blackburn vann góðan sigur í Championship-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Innkoma Arnórs hafði góð áhrif á lið Blackburn.

Guardiola: Þarf ég að segja þetta aftur?
Það er nánast daglegt brauð að norski framherjinn Erling Haaland bæti einhvers konar markamet enda raðar hann inn mörkum með Manchester City.

Garnacho gaf ungum strák skóna sem hann skoraði undramarkið í
Argentínska ungstirnið Alejandro Garnacho var alveg til í að gefa skóna sína frá því í leiknum á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Gömul hetja vill sjá Garnacho hætta að apa eftir Ronaldo
Alejandro Garnacho skoraði stórkostlegt mark með bakfallsspyrnu í sigri Manchester United á Everton um helgina, mark sem Cristiano Ronaldo hefði verið mjög stoltur af. Þetta var líka mark sem aðeins maður með hæfileika, hroka og sjálfstraust Ronaldo gæti skorað.

Tíu mínútur í kælingu fyrir kjaftbrúk eða taktísk brot
Enska úrvalsdeild karla í knattspyrnu stefnir á að taka upp tíu mínútna kælingu fyrir leikmenn sem fá gult spjald fyrir taktískt brot eða munnsöfnuð. Verður þetta ekki eina breytingin sem tekin verður upp á næstu leiktíð.

Miðjumaðurinn frá keppni þangað til á nýju ári
Fábio Vieira, miðjumaður enska toppliðsins Arsenal, verður frá keppni þangað til á næsta ári. Þetta staðfesti Mikel Arteta, þjálfari liðsins, á blaðamannafundi í dag.

Segir slæma dómgæslu hafa áhrif á orðspor og lífsviðurværi fólks
Knattspyrnustjóri Wolves, Gary O'Neil, var enn og aftur ósáttur við dómgæsluna eftir leik Úlfanna gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Segir að fótboltinn hafi leitt til andláts dóttur sinnar
Enska fótboltafélagið Sheffield United rannsakar nú atburði sem gætu hafa leitt til andláts Maddy Cusack í september.