Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. maí 2025 16:24 Benóný blés nýju lífi í sóknarleikinn og skoraði sitt fjórða deildarmark í dag. stockport Benóný Breki Andrésson kom inn af varamannabekknum og skoraði jöfnunarmark Stockport í 1-3 sigri gegn Wycombe í lokaumferð League One deildarinnar á Englandi. Með sigrinum tryggði Stockport sér þriðja sæti deildarinnar, framundan er umspil um sæti í Championship deildinni.
Stockport var í vandræðum framan af leik, lenti undir í fyrri hálfleik og fékk á sig vítaspyrnu á sextugustu mínútu, sem Corey Addai, markmaður Stockport, varði. Tveimur mínútum síðar trítlaði Benóný Breki inn á völlinn og á sjötugustu mínútu jafnaði hann leikinn, með góðri afgreiðslu eftir fyrirgjöf á fjærstöngina frá Ryan Rydel. Þetta var fjórða mark Benónýs í ellefu deildarleikjum en hann hefur aðeins byrjað tvo leiki. Stockport blés til sóknar eftir að hafa jafnað og komst yfir aðeins sjö mínútum síðar. Oliver Norwood skoraði markið úr vítaspyrnu. Will Collar gulltryggði svo sigurinn með þriðja markinu á 81. mínútu. Þetta var lokaumferð deildarinnar og sigurinn tryggði Stockport þriðja sætið. Framundan er umspil upp á sæti í Championship deildinni, með Wrexham og Birmingham. Stockport mætir Leyton Orient í undanúrslitum og fær seinni leikinn á sínum heimavelli. Sigurvegarinn fer svo í hreinan úrslitaleik á Wembley við sigurvegarann úr hinu undanúrslitaeinvíginu, Chartlon eða Wycombe. Birmingham beint upp Willum Þór Willumsson byrjaði á hægri kantinum hjá Birmingham í 1-2 sigri gegn Cambridge. Alfons Sampsted var utan hóps. Birmingham hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og sæti í Championship deildinni á næsta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira