Enski boltinn

Baðst afsökunar á blóti Haalands í fögnuðinum
Erling Haaland stalst til að trufla sigurviðtal á Sky Sports í meistarafögnuði Manchester City á Etihad-leikvanginum í gær, til að lýsa yfir aðdáun á liðsfélaga sínum Jack Grealish.

Myndband: Bikarinn fór á loft í Manchester
Englandsmeistararatitillinn fór á loft í Manchesterborg í dag eftir sigur Englandsmeistara Manchester City á Chelsea.

Dagný skoraði og Chelsea á titilinn vísan
Dagný Brynjarsdóttir skoraði fyrir West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag í 2-1 sigri liðsins á Leicester. Chelsea á meistaratitilinn vísan eftir mikilvægan sigur á Arsenal.

Evrópusæti í höfn í fyrsta skipti í sögunni
Brighton tryggði sér í dag sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili í fyrsta sinn í sögunni. Liðið vann öruggan 3-1 heimasigur á föllnu liði Southampton.

Leeds áfram í fallsæti eftir tap í Lundúnum
Leeds United verður í fallsæti fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðið tapaði 3-1 á útivelli gegn West Ham í dag.

Englandsmeistararnir unnu Chelsea
Englandsmeistarar Manchester City unnu í dag 1-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Julian Alvarez skoraði eina mark leiksins á 12.mínútu.

Carragher: Arsenal klúðraði þessu og þurfa meiri gæði
Jamie Carragher segir að Arsenal hafi skort breidd í leikmannahópnum til að komast lengra í ensku úrvalsdeildinni en raun bar vitni. Hann segir Mikel Arteta þurfa að bæta gæðaleikmönnum inn í hópinn.

Tilfinningaþrungin stund þegar Anfield kvaddi fjóra leikmenn
Það var tilfinningaþrungin stund á Anfield í gær þegar fjórir leikmenn Liverpool léku sinn síðasta heimaleik fyrir félagið. Einn vinsælasti leikmaður félagins skoraði í lokaleik sínum á heimavelli.

Arsenal setið lengst á toppnum án þess að vinna titilinn
Arsenal er það lið í sögu efstu deildar Englands sem setið hefur lengst á toppi deildarinnar á einu og sama tímabilinu án þess að standa uppi sem sigurvegari.

„Sófameistararnir“ fögnuðu við óhefðbundnar aðstæður
Manchester City varð í dag Englandsmeistari í knattspyrnu án þess þó að spila leik. Tap Arsenal gegn Nottingham Forest sá til þess að titillinn fór í bláa hluta Manchesterborgar og því varð City svokallaður „sófameistari.“

Manchester City Englandsmeistari
Manchester City varð í dag Englandsmeistari. Þetta varð ljóst eftir 1-0 tap Arsenal gegn Nottingham Forest á útivelli. Ekkert lið á nú möguleika á því að skáka Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Jöfnunarmark í uppbótartíma gæti reynst Everton dýrmætt
Yerri Mina tryggði Everton gríðarlega mikilvægt stig í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma gegn Wolves. Fulham og Crystal Palace gerðu einnig jafntefli í dag.

Firmino kvaddi Anfield með marki sem dugir líklega skammt
Roberto Firmino skoraði jöfnunarmark Liverpool gegn Aston Villa í síðasta heimaleik sínum fyrir félagið. Jafnteflið dugir Liverpool þó líklega skammt í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Í beinni: Nott.Forest-Arsenal | City gæti orðið sófameistari
Fallbaráttu lið Nottingham Forest tekur á móti Skyttunum í Arsenal klukkan 16:30 í ensku úrvalsdeildinni. Tapi Arsenal í dag verður Englandsmeistaratitillinn endanlega kominn í hendurnar á Manchester City.

Frábært mark Casemiro kemur United í lykilstöðu
Manchester United steig stórt skref í átt að sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili þegar liðið vann 1-0 sigur á útivelli gegn Bournemouth í dag.

Mbuemo allt í öllu í endurkomu Brentford gegn Spurs
Brentford er áfram með í baráttunni um sæti í Evrópukeppni eftir 3-1 útisigur á Tottenham í dag. Bryan Mbuemo var maðurinn á bakvið endurkomu Brentford.

Boltastrákurinn sem Hazard sparkaði í á meðal þeirra ríkustu í Bretlandi
Fyrrum boltastrákur hjá Swansea, sem komst í fréttirnar fyrir tíu árum síðan eftir að knattspyrnumaðurinn Eden Hazard sparkaði í hann, er nú kominn í sviðsljósið á nýjan leik.

Splæsti í lúxusíbúð í miðborg Oslóar
Lífið leikur við Erling Haaland þessa dagana. Á dögunum sló hann markamet ensku úrvalsdeildarinnar og í vikunni tryggði Manchester City sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það gengur sömuleiðis vel hjá Haaland á öðrum vígstöðum.

Jón Daði og félagar úr leik
Bolton Wanderers er úr leik í umspili um sæti í Championship deildinni á næsta tímabili eftir 1-0 tap gegn Barnsley nú í kvöld.

Man. City getur orðið meistari á morgun án þess að spila
Manchester City er með fjögurra stiga forskot á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á einnig leik inni á Arsenal menn.

Klopp dæmdur í bann og verður á skilorði í heilt ár
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, verður ekki á hliðarlínunni hjá liðinu sínu í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Newcastle tók stórt skref í átt að Meistaradeildinni
Newcastle vann í kvöld góðan sigur á Brighton þegar liðin mættust á St. James Park í kvöld. Newcastle er nú í lykilstöðu að ná sæti í Meistaradeildinni að ári.

Saman í D-deildinni árið 2018 en berjast nú um sæti í ensku úrvalsdeildinni
Coventry City og Luton Town mætast í því sem hefur verið kallað verðmætasti leikur fótboltans. Um er að ræða úrslitaleik umspils B-deildar á Englandi en sigurvegarinn tryggir sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Martinelli missir af síðustu leikjum Arsenal á leiktíðinni
Brasilíumaðurinn Gabriel Martinelli mun ekki spila meira með Arsenal á leiktíðinni. Missir hann af síðustu tveimur leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni þegar enn er tölfræðilegur möguleiki fyrir liðið að verða Englandsmeistari.

„Líður eins og þú sért einn í heiminum“
David Raya, markvörður Brentford í ensku úrvalsdeildinni, segir að markmannsstaðan sé sú erfiðasta á knattspyrnuvellinum vegna þess hversu strembin hún er andlega.

Chelsea á toppinn þegar tvær umferðir eru eftir
Englandsmeistarar Chelsea eru komnar á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Dagnýju Brynjarsdóttur og stöllum í West Ham United. Einnig vann Arsenal 4-1 sigur á Everton.

Toney í átta mánaða bann
Framherjinn Ivan Toney, leikmaður Brentford í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið dæmdur í átta mánaða bann vegna 232 brota á veðmálareglum deildarinnar.

Risaleikur í kvöld: „Mín arfleifð er þegar orðin einstök“
Manchester City hefur komið sér í frábært færi á að vinna þrennuna, og þar með Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn. Eitt allra þyngsta prófið á lokasprettinum þreytir liðið í kvöld, í sannkölluðum stórleik gegn ríkjandi Evrópumeisturum Real Madrid.

Gary Neville las mikið í hnefafagn Klopp í leikslok
Liverpool gefur ekkert eftir í eltingarleik sínum við Meistaradeildarsæti og vann sinn sjöunda deildarleik í röð í gærkvöldi.

Spiluðu í fyrsta skipti samskipti dómara í vafasömum atvikum
Howard Webb, formaður dómarasamtakanna PGMOL í Englandi, var gestur í þættinum Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöldi. Þætti sem var afar áhugaverður fyrir hinn almenna knattspyrnuáhugamann sökum þess að þar voru í fyrsta skipti opinberuð samtöl dómara og VAR-dómara í nokkrum af vafasömustu atvikum yfirstandandi tímabils í ensku úrvalsdeildinni.