Enski boltinn

„Okkar fljótasti og harðasti maður á­kvað að fara“

Sindri Sverrisson skrifar
Kyle Walker kveðst þakklátur fyrir allar leiðbeiningarnar frá Pep Guardiola.
Kyle Walker kveðst þakklátur fyrir allar leiðbeiningarnar frá Pep Guardiola. Getty/Martin Rickett

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, virðist alls ekki ánægður með þá niðurstöðu að enski landsliðsmaðurinn Kyle Walker sé farinn að láni til AC Milan á Ítalíu út leiktíðina.

Í lánssamningnum er möguleiki fyrir Milan á að kaupa þennan 34 ára gamla varnarmann í sumar.

Walker verður fjórði Englendingurinn í liði Milan á eftir Tammy Abraham, Ruben Loftus-Cheek og Fikayo Tomori. Fyrsti leikur hans gæti orðið gegn Parma á morgun.

City verður hins vegar að spjara sig án Walkers þegar liðið tekur á móti Chelsea síðdegis í dag, og hann gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Guardiola var spurður út í þetta á blaðamannafundi:

„Hann ákvað að fara,“ sagði Spánverjinn og bætti síðar við:

„Harðasti, fljótasti og sterkasti leikmaðurinn sem maður hefur ákveður að fara frá félaginu.“

Walker sendi frá sér langa yfirlýsingu á Instagram þar sem hann þakkaði meðal annars Guardiola fyrir tímann hjá félaginu, en Walker lék með City frá árinu 2017 og vann meðal annars sex Englandsmeistaratitla, Evrópumeistaratitil og tvo bikarmeistaratitla.

„Við Pep Guardiola vil ég segja; Takk fyrir að hafa trú á mér og leggja svona mikið á þig til að fá mig hingað 2017. Saman fögnuðum við 17 titlum og undir þinni handleiðslu varð ég að þeim leikmanni sem ég er í dag. Ég verð að eilífu þakklátur,“ skrifaði Walker.

Hann hefur leikið 319 leiki fyrir City en lék sinn síðasta leik gegn West Ham 4. janúar og lét Guardiola í kjölfarið vita að hann vildi fara frá félaginu.

City hefur verið líflegt á félagaskiptamarkaðnum í janúar og fest kaup á þremur nýjum leikmönnum, eða þeim Omar Marmoush frá Frankfurt, Vitor Reis frá Palmeiras og Abdukodir Khusanov frá Lens.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×