
Enski boltinn

Tíu menn frá Skírisskógi jöfnuðu metin
Nottingham Forest og Brentford gerðu 1-1 jafntefli sín á milli í leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir að lenda manni og marki undir tókst Forest að sækja stigið.

Sterkur sigur hjá Brighton í fyrsta leik
Brighton vann leik sinn gegn Everton í fyrstu umferð ensku kvenna-úrvalsdeildarinnar og Manchester United vann Aston Villa 2-1 á útivelli.

Fá ekki að dæma fleiri leiki í þessari umferð
Darren England og Dan Cook hafa verið leystur frá störfum sínum sem dómarar í næstu leikjum ensku úrvalsdeildinnar eftir að hafa gerst sekir um slæm mistök í VAR herberginu í leik Tottenham og Liverpool í gær.

VAR dómarinn hélt að markið hefði staðið
Dómarinn í VAR herberginu á leik Tottenham og Liverpool hefur viðurkennt mistök sín að leyfa ekki marki Luis Diaz að standa. Hann segir málið allt byggt á misskilningi.

Arteta segir markið hjá Havertz „breyta öllu“
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, hrósaði leikmönnum liðsins fyrir samkennd sína gagnvart Kai Havertz og vonar að markið sem hann skoraði muni „breyta öllu.“

Chelsea fær loks auglýsingu framan á treyjuna
Chelsea hefur spilað í búningi án auglýsinga allt þetta tímabil, liðið tilkynnti það í júlí að treyja þeirra yrði auglýsingalaus eftir að samstarfssamningur við fjarskiptafyrirtækið 3 UK rann út.

Klopp tjáir sig um dómaramistökin
Jurgen Klopp tjáði sig um dómaramistökin sem áttu sér stað í tapi Liverpool gegn Tottenham í dag.

Fyrsti deildarsigur Luton á tímabilinu
Luton vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið mætti Everton á Goodison Park. West Ham sótti sinn fjórða sigur á tímabilinu gegn Sheffield United. Jóhann Berg var frá vegna meiðsla þegar Burnley tapaði 2-0 gegn Newcastle á St. James Park.

Sannfærandi sigur Arsenal gegn Bournemouth
Arsenal áttu ekki í miklum vandræðum með Bournemouth á útivelli í dag og unnu sannfærandi 0-4 sigur.

Versta byrjun Manchester United í 34 ár
Manchester United tók á móti Crystal Palace í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðin mættust fyrr í vikunni í enska deildarbikarnum en þar vann United 3-0. Palace áttu harma að hefna og náðu því heldur betur í dag.

Tvö rauð spjöld og sjálfsmark í uppbótartíma
Liverpool tapaði 1-2 fyrir Tottenham eftir að hafa misst tvo menn af velli í leiknum. Sigurmarkið kom í uppbótartíma þegar Joel Matip setti boltann í eigið net.

Úlfarnir fyrstir til að vinna Englandsmeistarana
Wolves vann 2 -1 á heimavelli gegn ríkjandi meisturunum frá Manchester í 7. umferð ensku úrvaldsdeildarinnar. Sigurhrina City í upphafi tímabils er lokið og Liverpool getur hrifsað toppsætið af þeim með sigri í dag.

Watkins afgreiddi Brighton á sjö mínútum í stórsigri Aston Villa
Aston Villa fór létt með Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag en Brighton höfðu verið á miklu flugi og unnið þrjá leiki í röð fyrir þennan. Ollie Watkins gerði nánast út um leikinn með tveimur mörkum á sjö mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Saka og Rice ekkert æft í vikunni
Ensku landsliðsmennirnir Bukayo Saka og Declan Rice hafa ekki æft með Arsenal frá Norður-Lundúnaslagnum gegn Tottenham á sunnudaginn.

Mætti ekki í eigið hlaðvarp eftir tapið fyrir Liverpool
Michail Antonio, leikmaður West Ham United, mætti ekki í eigið hlaðvarp eftir tapið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Klopp búinn að finna arftaka Salah?
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur áhuga á að fá leikmann frá gamla liðinu sínu, Borussia Dortmund.

Umdeild U-beygja United: Antony æfir og má spila
Brasilíumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, er mættur til æfinga hjá félaginu og er laus úr banni frá því að spila fyrir liðið. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Samstarfinu lýkur eftir blautbolamálið
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa ætlar að binda endi á samstarfið við íþróttavöruframleiðandann Castore.

Kærkomin þróun hafi átt sér stað með innkomu Arnórs
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson, er að fara ansi hreint vel af stað í sínum fyrstu keppnisleikjum með enska B-deildar liðinu Blackburn Rovers. Þjálfari liðsins, Jon Dahl Tomasson, er afar ánægður með innkomu Arnórs í liðið en vill þó fara varlega af stað með hann.

Sjáðu Arnór skora hjá Rúnari Alex og Rúnar síðan verja frá honum víti
Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn Rovers tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins með 5-2 sigri á Cardiff City í gær.

Manchester United trúir því að félagið sé ekki að brjóta lög
Meðferð Manchester United á leikmanni sínum Jadon Sancho hefur vakið upp spurningum um hvort félagið sé þarna í órétti.

Leikmenn Villa kvíða fyrir að spila í blautbolunum
Leikmenn kvennaliðs Aston Villa kvíða fyrir að spila í nýjum treyjum liðsins í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.

Arteta: Kaupum ekki annan framherja
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að félagið sé ekki í leit að nýjum framherja þrátt fyrir gagnrýni á framherja liðsins í byrjun tímabils.

Klopp um Nunez: Hann er okkur mjög mikilvægur
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, segist ánægður með framfarir Darwin Nunez síðustu vikur.

Dregið í deildabikarnum: Newcastle mætir á Old Trafford
Manchester United mun mæta Newcastle United í 16-liða úrslitum deildarbikarsins.

Szoboszlai með þrumufleyg í sigri Liverpool
Liverpool er komið áfram í deildarbikarnum eftir 3-1 sigur á Leicester á Anfield í kvöld.

Newcastle hafði betur gegn City
Alexander Isak skoraði eina mark leiksins er Newcastle hafði betur gegn Manchester City í deildarbikarnum.

Nelson skoraði eina markið er Arsenal fór áfram
Arsenal er komið áfram í deildarbikarnum eftir 0-1 sigur á Brentford í kvöld en mark Arsenal skoraði Reiss Nelson.

Reece James kærður fyrir ummæli í garð dómara
Reece James hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir meint brot eftir leik Chelsea gegn Aston Villa um helgina. Brotið á að hafa átt sér stað í göngunum sem liggja að búningsherbergjum.

Chelsea væri búið að vinna alla leikina sína ef farið væri eftir XG
Chelsea situr í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sex leiki og nær því ekki að skora eitt mark í leik.