Arnór laus úr prísund Blackburn Valur Páll Eiríksson skrifar 17. febrúar 2025 16:55 Arnór Sigurðsson í leik með Blackburn Rovers Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson hefur komist að samkomulagi um starfslok við enska B-deildarliðið Blackburn Rovers. Hann er því laus allra mála og getur fundið sér nýtt lið.
Arnór hefur glímt við mikil meiðsli og veikindi í vetur og ekki komið mikið við sögu hjá Blackburn. Hann fékk þá vænan skell eftir að félagsskiptaglugginn lokaði um síðustu mánaðarmót þegar forráðamenn félagsins tjáðu honum að hann væri ekki í leikmannahópi liðsins í ensku B-deildinni. 📰 We have reached a mutual agreement with @arnorsigurdsson to terminate his contract.Everyone at #Rovers thanks Siggy for his efforts with us and wishes him all the very best in his future career 💙🤍🔵⚪️— Blackburn Rovers (@Rovers) February 17, 2025 Arnór hafði verið orðaður við einhver lið í janúar en hélt kyrru fyrir. Blackburn hafði bætt við sig leikmönnum í glugganum og kom í ljós þegar skrá átti 25 manna hóp til leiks fyrir síðari hluta tímabilsins að ekki væri pláss við meiddan Skagamann. Félagsskiptaglugginn hafði þá lokað og Arnór læstur inni. Enda lýsti hann þessu sem svo við Vísi að Blackburn hefði sett hann „í skítastöðu“. Síðdegis var aftur á móti tilkynnt að Blackburn og Arnór hefðu komist að samkomulagi um að slíta samningi hans. Félögum er heimilt að fá leikmenn á frjálsri sölu þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn hafi lokað um áramót og ætti Arnór því að geta fundið sér nýjan vettvang til knattspyrnuiðkunnar.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira