Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Bandaríkin – Baráttan um Demókrataflokkinn
Kosningabaráttan fyrir prófkjör Demókrata fyrir forsetakosningar næsta árs er í fullum gangi. Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, er enn á toppnum en öldungadeildarþingmennirnir Bernie Sanders og Elizabeth Warren, og borgarstjórinn Pete Buttigieg, fylgja fast á hæla Bidens.

Ætla að ákæra Trump fyrir embættisbrot
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í dag að fulltrúadeildin myndi greiða atkvæði um að ákæra Donald Trump forseta fyrir embættisbrot.

Harris hættir við forsetaframboð sitt
Hún segir erfiðleika í fjáröflun vega mest í ákvörðun hennar, sem hún segir eina þeirra erfiðustu sem hún hefur tekið.

Fullnægingarleikþáttur Trumps var kornið sem fyllti mælinn
Fyrrverandi starfsmaður Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, tjáði sig í fyrsta skipti opinberlega á sunnudag um ófrægingarherferð Bandaríkjaforseta gegn henni, sem náði hápunkti með „fullnægingarleikþætti“ í október síðastliðnum.

Minnka umfjöllun sína um frambjóðendur Demókrata
Í ljósi forsetaframboðs Michael Bloomberg, sem sækist eftir útnefningu Demókrataflokksins, verða gerðar breytingar á samnefndum fjölmiðli hans, Bloomberg.

Bloomberg tilkynnir um forsetaframboð sitt
Fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, Michael Bloomberg, hefur ákveðið að sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins fyrir bandarísku forsetakosningarnar sem fara fram að ári.

Segir Bloomberg tilbúinn til þess að eyða „hverju sem er“ til að sigra Trump
Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóri New York sem nú liggur undir feldi og hugleiðir hvort hann eigi að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna mun hvorki taka við styrkjum né þiggja laun sem forseti bjóði hann sig fram og verði kjörinn. Allt útlit er fyrir að hann muni bjóða sig fram.

Bandaríkin: Þingið þjarmar að Trump
Hið svokallaða Úkraínumál er viðfangsefni fyrsta þáttar Bandaríkjanna, nýs hlaðvarps fréttastofu um bandarísk stjórnmál.

Bloomberg færist nær forsetaframboði
Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg hefur skilað inn tilskyldum gögnum sem þarf til þess að bjóða sig fram í forkosningum demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári

Segir ásakanir um afskipti Úkraínu skáldskap
Fiona Hill, fyrrverandi sérfræðingur Hvíta hússins varðandi Rússlands, skammaði þingmenn Repúblikanaflokksins í upphafsræðu sinni í vitnaleiðslum vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á meintum embættisbrotum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Hefur aldrei barist gegn spillingu í Úkraínu: „Forsetanum er drullusama um Úkraínu“
Bandamenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa ítrekað haldið því fram að honum sé annt um að berjast gegn kerfisbundinni spillingu í Úkraínu. Með því að halda aftur af tæplega 400 dollara neyðaraðstoð, sem þingið hafði samþykkt, hafi forsetinn verið að kanna vilja yfirvalda Úkraínu til að berjast gegn spillingu. Markmiðið hafi ekki verið að beita Úkraínumenn þrýstingi.

Sagði Trump líklega spilltasta forseta sögunnar
Alls tóku tíu sem sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi bandarískra Demókrata þátt í kappræðum í Atlanta í nótt.

„Allt hvíldi á rannsóknum“
Sérstakur erindreki Donalds Trump Bandaríkjaforseta greindi starfandi sendiherranum í Úkraínu að allt sem úkraínsk stjórnvöld sóttust eftir frá Bandaríkjastjórn hengi á því að þau létu rannsaka pólitíska andstæðinga Trump.

Bloomberg stefnir á forsetaframboð
Auðkýfingurinn Michael Bloomberg ætlar mögulega að sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna.

Sluppu með naumindum við að verða við kröfum Trump
Úkraínumenn sluppu með naumindum við að verða við kröfum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að lýsa opinberlega yfir að þeir ætluðu að hefja rannsókn á pólitískum andstæðingi Trump.

Demókratar fögnuðu sigri
Demókratar í Bandaríkjunum fögnuðu sigri í kosningum sem fram fóru í gær en kosið var um ríkisstjóra og þingmenn á nokkrum ríkisþingum landsins.

Segir O‘Rourke hafa „hætt eins og hundur“
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sagði í gær að fyrrverandi forsetaframbjóðandinn, Beto O'Rourke hafi "hætt eins og hundur,“ aðeins nokkrum klukkustundum eftir O'Rourke tilkynnti að hann hygðist hætta við framboð til forseta.

O'Rourke dregur framboð sitt til baka
Fyrrverandi fulltrúadeildarþingmanninum frá Texas tókst aldrei að fanga sömu stemmingu og myndaðist í kringum framboð hans til öldungadeildarsætis Texas í fyrra.

Núverandi starfsmaður Hvíta hússins ber vitni
Offurstinn Alexander Vindman, sem situr í þjóðaröryggisráði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, lýsti tvisvar sinnum yfir áhyggjum vegna viðleitni ríkisstjórnar Trump og utanaðkomandi aðila sem tengjast Trump til að fá yfirvöld Úkraínu til að rannsaka pólitískan andstæðing forsetans.

„Það er enginn Mitt Romney á meðal þeirra“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill að samflokksmenn hans í Repúblikanaflokknum herði sig og berjist fyrir forsetann sinn á sama tíma og Demókratar vinna að því að ákæra forsetann fyrir embættisbrot í starfi.

Demókratar tókust á um heilbrigðismál
Sjúkratryggingar voru enn efst á baugi þegar Demókratar mættust í kappræðum í nótt.

„Vanhugsað“ að refsa trúfélögum fyrir mismunun gegn hinsegin fólki
Beto O'Rourke, einn frambjóðenda í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2020, sagði að þau trúfélög sem ekki myndu ráða hinsegin fólk né veita þeim þjónustu ættu ekki að vera undanþegin skatti.

„Warren er kapítalisti, ég er það ekki"
Bandaríski öldungadeildaþingmaðurinn frá Vermont, Bernie Sanders, sem er á meðal þeirra sem sækist eftir tilnefningu Demókrataflokksins til forsetakosninganna á næsta ári, gagnrýndi mótherja sinn, þingkonuna Elizabeth Warren.

Svar Warren við spurningu um „gamaldags hjónabönd“ sló í gegn
Elizabeth Warren sló í gegn á meðal áhorfenda þegar pallborðsumræður CNN um málefni hinsegin fólks fóru fram.

Segir Trump hafa svikið Bandaríkin
Joe Biden hefur í fyrsta sinn kallað eftir því að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, verði ákærður fyrir embættisbrot.

Trump lýsir yfir stríði við þingið
Ríkisstjórn Donald Trump ætlar ekki á nokkurn hátt að starfa með þingmönnum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á nokkurn hátt og lögmaður forsetans segir ákæruferlið gegn forsetanum vera ólögmætt.

Varpa frekara ljósi á starfsemi „Tröllaverksmiðju“ Rússa
Þingmenn bæði Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins kalla eftir því að þingið, Hvíta húsið og tæknifyrirtæki Bandaríkjanna komi í veg fyrir að samfélagsmiðlar verði notaðir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári.

Krefja Pence varaforseta um gögn vegna þrýstings á Úkraínu
Rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Trump forseta er hafin af fullum þunga.

Staðfest að Bernie Sanders fékk hjartaáfall
Frambjóðandinn í forvali Demókrata kenndi sér meins fyrir brjósti á þriðjudag. Hann segist ætla að hvíla sig í stuttan tíma áður en hann kemur aftur til starfa.

Íranskir hakkarar sagðir hafa beint spjótum sínum að bandarísku forsetaframboði
Microsoft greindi frá árásunum en tilgreindi ekki hverjir hefður orðið fyrir þeim með nafni.