Ferðaþjónusta

Ferðaþjónustan föst í ruglinu?
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sendir ASÍ vænan skammt af skömmum á visir.is vegna nýrrar skýrslu um framtíð ferðaþjónustunnar sem starfshópur á vegum ASÍ og undir formennsku minni sendi frá sér í liðinni viku.

Neikvæð áhrif hálendisþjóðgarðs á ferðaþjónustu
Í umræðu um stofnun hálendisþjóðgarðs er mikið rætt um ávinning af stofnun stærsta þjóðgarðs í Evrópu og aðdráttarafl hans fyrir ferðaþjónustu. Þá hefur það einnig verið látið í veðri vaka að stofnun hálendisþjóðgarðs sé grundvöllur þess að koma ferðaþjónustunni í gang hér á landi eftir Covid.

Vandræðalegar yfirlýsingar ASÍ um ferðaþjónustu
Starfshópur ASÍ um „framtíð ferðaþjónustunnar” skilaði nýverið skýrslu til miðstjórnar sambandsins um áherslur þess við „uppbyggingu ferðaþjónustunnar”.

54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum
Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni.

66 starfsmenn Hertz endurráðnir
66 starfsmenn bílaleigunnar Hertz á Íslandi, sem sagt var upp störfum í haust, verða endurráðnir.

Starfsmenn Hótel Selfoss „gengu, hjóluðu og hlupu“ til Austurríkis
Starfsmenn Hótel Selfoss sitja ekki með hendur í skauti og bíða eftir því að heimsfaraldrinum ljúki því þeir hafa nýtt tímann til að hreyfa sig og efla starfsandann. Það gerðu þeir með því að ganga, hjóla og hlaupa þrjú þúsund kílómetra í nóvember, eða vegalengdina sem samsvarar því að komast í árlega skíðaferð hópsins til Austurríkis.

Seiglan í íslenskri ferðaþjónustu
Ég er stolt af því að hafa starfað með íslenskri ferðaþjónustu til fjölda ára og kynnt hana á erlendum vettvangi. Síðasta árið hef ég þó gert það með öðrum formmerkjum en áður og á þeim tíma hef ég enn betur áttað mig á því hversu mikil seigla er í því fólki sem starfar í henni á Íslandi.

Förum ekki í sama farið – byggjum upp heilbrigðari atvinnugrein
Nú er beðið eftir að ferðaþjónustan fari á fullt aftur og greiningardeildirnar hamast við að finna tímasetninguna. Verður það næsta sumar eða ekki fyrr en næsta haust? Hvenær verður hægt að endurræsa ferðaþjónustuna?

Hyggst njóta morgunkaffis með útsýni til Öræfajökuls
Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta Hótels á Hellu, er ekki aðeins að reisa hótel á eyðijörðinni Orustustöðum austan Kirkjubæjarklausturs. Hann er jafnframt að byggja einbýlishús þar sem hann hyggst eiga lögheimili.

Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo.

Vilja sameina kosti útsýnis, gróðurs og heita vatnsins úr göngunum í nýjum baðstað
Nýr baðstaður í Eyjafirði er í undirbúningi og er stefnt að opnun hans snemma árs 2022, gangi áætlanir eftir.

Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum
Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar.

Þrettán sagt upp hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu
Þrettán hefur verið sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu.

Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin
Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784.

Dohop fær innspýtingu á besta tíma í faraldrinum
Íslenska ferðatæknifyrirtækið Dohop hefur fengið breskan fjárfestingarsjóð til liðs við sig með rúmlega milljarð króna. Fjárfestingin kemur á besta tíma enda hafa tekjur Dohop hrapað með miklum samdrætti í alþjóðlegu flugi undanfarna mánuði.

Jón Eiríksson Drangeyjarjarl er látinn
Jón Eiríksson Drangeyjarjarl er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki í fyrrinótt.

Vegagerðarmenn gista á Hótel Flókalundi í vetur
Í fyrsta sinn í nærri sextíu ára sögu Flókalundar á Barðaströnd er þar boðið upp á gistingu yfir veturinn. Ástæðan er nýhafin vegagerð á Dynjandisheiði.

Telur ferðaþjónustu lykilinn að hraðri viðspyrnu í vor
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist líta á ferðaþjónustuna sem lykilinn að hraðra viðspyrnu um allt land þegar glitta fer í eðlilegt líf í kórónuveirufaraldrinum í vor. Í ræðu á haustfundi miðstjórnar flokksins boðaði hann einnig mestu framkvæmdir sem landsmenn hefðu upplifað á næstunni.

Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths og mun hún hefja störf í ársbyrjun 2021.

Enginn vafi á því að veira geti legið í leyni og farið svo allt í einu á flug
Sóttvarnalæknir segir það vel þekkt innan faraldsfræða að veira liggi í dvala í ákveðinn tíma áður en hún tekur að greinast í fólki í einhverjum mæli.

Núverandi fyrirkomulag á landamærum gildir til 1. febrúar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að núverandi fyrirkomulag á landamærum gildi áfram til 1. febrúar.

Seðlabankinn telur kreppu ferðaþjónustunnar standa langt fram á næsta ár
Mikið atvinnuleysi og verðbólga vel yfir markmiði Seðlabankans varir lengur samkvæmt nýrri spá peningastefnunefndar en spá nefndarinnar í ágúst gerði ráð fyrir. Ferðaþjónustan taki ekki við sér fyrr en á seinniparti næsta árs.

OECD rassskellir Isavia
Rekstur Keflavíkurflugvallar á vegum Isavia fær vægast sagt hroðalega útreið í nýju samkeppnismati OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Þær fréttir sem birst hafa um gagnrýni OECD á Isavia ná samt rétt að krafsa í yfirborðið.

Völdu aðra af tveimur tillögum Þórólfs um landamæraskimun
Ákveðið hefur verið að fella niður gjaldtöku vegna sýnatöku á landamærum frá og með 1. desember næstkomandi.

Nýtum tímann til að undirbúa framtíðina
Staða menntunar í ferðaþjónustu stendur frammi fyrir miklum áskorunum vegna Covid-19, sem sumir kjósa að kalla „kófið“. Aðsókn hefur minnkað í fagnám og sömuleiðis hefur þeim vinnustöðum fækkað sem geta tekið nema á námssamning.

Horfum á heildarmyndina
Mikið hefur verið ritað og talað um breytt landslag í ferðaþjónustu upp á síðkastið, bæði hvaða leiðir hægt er að fara til að sporna við kostnaði og mögulegu gjaldþroti, og einnig hvað við getum gert til þess að auka samkeppnishæfni okkar og sýnileika úti í hinum stóra heimi.

Telur erfitt að skylda fólk í skimun á landamærum
Dómsmálaráðherra segir að erfitt geti reynst að skylda fólk til að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum, horfa þurfi til annarra ráðstafanna þar. Sóttvarnalæknir segir að verið sé að skoða málið frá mörgum hliðum.

Ferðaþjónustan og fólkið til framtíðar
Í kjölfar gríðarlegra áfalla í ferðaþjónustu undanfarið, einkum og sérílagi vegna Covid-19 faraldursins er ljóst að þorri starfsfólks í ferðaþjónustu stendur frammi fyrir atvinnumissi.

Ekkert samkomulag liggi fyrir um byggingu lúxushótels á Miðbakka Reykjavíkurhafnar
Áform um byggingu lúxushótels undir merkjum Four Seasons-hótelkeðjunnar á Miðbakka Reykjavíkurhafnar stranda ekki aðeins á deiliskipulagi heldur eru viðræður um hótelið á algjöru byrjunarstigi og ekkert samkomulag liggur fyrir af hálfu hótelkeðjunnar.

Kallar eftir fyrirsjáanleika vegna aðgerða á landamærum
Stjórnvöld vinna nú að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna á landamærunum, sem sagt er forsenda efnahagsbata. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar kallar eftir meiri fyrirsjáanleika.