FIFA

Fréttamynd

Kallar eftir af­sögn Infantino og skaut á Blatter

Norska knatt­spyrnu­sam­bandið, með for­mann sinn Lise Kla­veness í farar­broddi, krefst þess að Gianni Infantino segi af sér sem for­seti FIFA. Um leið minnir Lise, Sepp Blatter for­vera Infantino í em­bætti á hans fortíð en Blatter stakk upp á því að Lise yrði næsti for­seti sam­bandsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Mexíkó og Argentína styðja Infantino

Barátta Gianni Infantino fyrir framtíð sinni á forsetastóli FIFA virðist rétt að byrja. Hann hlýtur aukinn stuðning í kjölfar neyðarfundar meðal stjórnenda FIFA í vikunni.

Fótbolti
Fréttamynd

Kok­hraustur eftir neyðarfund

Gianni Infantino, forseti FIFA, neitar að segja af sér. Eftir neyðarfund í kvöld kom hann bæði með afsökunarbeiðni til FIFA-ráðsins og hótun í garð gagnrýnenda sambandsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Figo hraunar yfir Infantino

Knattspyrnugoðsögnin Luis Figo hefur greint frá því að Gianni Infantino, forseti FIFA, „verði að fara“. Þrýstingur eykst á forseta FIFA í skugga neyðarfundar sem hann hefur kallað til í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Sakar Infantino um fjár­kúgun

Ali Bin Al Hussein, prins og forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, tekur Gianni Infantino, forseta FIFA, fyrir í langri ræðu sem hann ritar opinberlega. Hann segir FIFA eiga ógreiddar skuldir og sakar Infantino um fjárkúgun fyrir stuðning.

Fótbolti
Fréttamynd

Infantino sagður biðla til Trump um hjálp

Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar hafa riðið á vaðið með því að draga formlega stuðning sinn við forseta FIFA til baka en forsetinn umdeildi vill nú að sjálfur Bandaríkjaforseti komi sér til bjargar.

Fótbolti
Fréttamynd

Infantino hættir við allt saman

Gianni Infantino, forseti FIFA, tilkynnti í kvöld að hann væri hættur við umdeilda áætlun sína um að selja hlut í stórmótum sambandsins í kjölfar mikillar andstöðu meðal aðildarsambandanna.

Fótbolti
Fréttamynd

Konurnar fyrsta fórnar­lambið eftir út­spil Infantino

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið en stelpurnar okkar eru í dauðafæri að breyta því í vetur. Nú virðist hins vegar vera komið upp mál sem gæti leitt til þess að sá draumur verði ekki að veruleika.

Fótbolti
Fréttamynd

FIFA heldur settri stefnu

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem því er lofað að mjög svo umdeildum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar verði fylgt eftir. Ekki sé verið að selja fótboltann frá sambandinu. Fjölmiðlar hafi truflað kynningarferlið.

Fótbolti