Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 16. október 2026 15:46 Sepp Blatter var ekki lítið umdeildur í starfi forseta en arftakinn Infantino. Hann þrætti fyrir spillingu innan sambandsins árum saman áður en það hrundi eftir rannsókn FBI í Bandaríkjunum. Vísir/AFP Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur iðulega gagnrýnt arftaka sinn Gianni Infantino eftir að sá síðarnefndi tók við störfum af Blatter fyrir rúmum áratug. Hann greip tækifærið í dag eftir kléna afsökunarbeiðni Infantino í gær.
Fyrsti stjórnarfundur FIFA eftir stormasamt sumar var loks haldinn í dag. Þar voru meðal annars til umræðu fordæmalaus undanþága Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna, frá leikbanni á miðju heimsmeistaramóti í sumar, friðarverðlaun FIFA sem Infantino afhenti Donald Trump, og tilraun Infantino til að einkavæða hluta FIFA sem gerði allt vitlaust í fótboltaheiminum. NEW | “We didn’t get answers to anything we had specifically requested…” FA chair Debbie Hewitt says FIFA president Gianni Infantino failed to provide clarity over World Cup sell-off plot at Council meeting, but “apologised for what had happened…” #fifa https://t.co/QNdol3UL01— Dan Roan (@danroan) October 15, 2026 Debbie Hewitt, formaður enska knattspyrnusambandsins sagði eftir fundinn í gær að Infantino hafi beðist afsökunar að hluta en sú beiðni verið klén. Margar spurningar hafi verið lagðar fyrir Infantino eftir vasklegan framgang hans í sumar en hann svarað engum þeirra af viti, eftir því sem Hewitt sagði bið breska fjölmiðla. Sepp Blatter sagði af sér með skömm sem forseti FIFA eftir að skandall skók sambandið árið 2015, sem leiddi til kæra á hendur fjölmörgum stjórnendum hjá sambandinu og lífstíðarbönnum frá íþróttinni. Infantino var ætlað að rétta skipið af og leiða byltingu til bættra stjórnarhátta innan sambandsins. Töluverðar breytingar voru gerðar á blaði, sérstaklega fyrstu árin, en fljótt fór að bera á skrefum aftur á bak. Stanslaus afskipti Infantino af nýjum eftirlitsnefndum sem áttu að vera óháðar röskuðu starfi þeirra og flestir fulltrúar innan þeirra nefnda sögðu af sér, þar á meðal nýjasti handhafi friðarverðlauna Nóbels, Navi Pillay, sem sagði af sér 2017 vegna afskipta forsetans. Blatter hefur undanfarinn áratug gripið hvert tækifæri sem gefist hefur þegar spjót hafa staðið að Infantino til að gagnrýna eftirmanninn. Margur myndi segja það grjótkast úr glerhúsi en færsla hans á samfélagsmiðilinn X í dag hefur varkið sérstaka athygli. Það ræðir Blatter afsökunarbeiðni Infantino í gær en sá síðarnefndi birti einnig opinbera sjónvarpsyfirlýsingu þar sem hann baðst velvirðingar á framferði sínu. Það gerði hann í stað þess að hitta fjölmiðla sem hann hefur alfarið neitað um viðtöl. Gianni Infantino, the Greatest ! An astonishing performance in Zurich: Infantino, apparently a good Catholic, confesses his sins and then promises 25 million. Confession, indulgence and absolution — all in one appearance! The Pope would love it. But in football, as in the Church, credibility cannot be bought. #Fifa #GianniInfantino #indulgence #absolution #ThePope— Joseph S Blatter (@SeppBlatter) October 16, 2026 Í ljósi þess að Infantino ákvað í vikunni að afhenda knattspyrnusamböndum FIFA gríðarlega aukin fjárútlát úr veigamiklum varasjóðum FIFA líkir Blatter framkomu forsetans við syndaaflausn. Í færslu Blatters segir: „Gianni Infantino, sá allra besti! Ótrúleg frammistaða í Zürich: Infantino, að því er virðist góður kaþólikki, játar syndir sínar og lofar síðan 25 milljónum. Skriftir, aflát og syndaaflausn – allt í einni framkomu! Páfinn yrði himinlifandi. En í fótbolta, rétt eins og í kirkjunni, verður trúverðugleiki ekki keyptur. #Fifa #GianniInfantino #aflát #syndaaflausn #Páfinn“
FIFA Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum ÍBV - FH | Fyrsti leikur ÍBV eftir fall Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Gríðarleg barátta á lokasprettinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Sjá meira