KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. ágúst 2026 09:32 Þorvaldur Örlygsson er formaður KSÍ. vísir Knattspyrnusambönd Íslands, Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um vantraust á Gianni Infantino, forseta FIFA.
KSÍ birti yfirlýsingu á heimasíðu sinni nú í morgun sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Þar er lýst yfir alvarlegum áhyggjum af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum FIFA. Í yfirlýsingunni segir að Norðurlöndin standi þétt að baki UEFA og þeim aðgerðum sem aðildarsambönd UEFA hafa lagt til. Einnig er farið fram á fullvissu um að „keppnir á vegum samtakanna verði aldrei aftur opnaðar fyrir einkaeignarhald,“ en nýlega var uppljóstrað um áætlanir Infantino til að selja hlut í keppnum FIFA, meðal annars heimsmeistaramótinu, til einkafjárfesta. Infantino hafði farið leynt með áætlanirnar, og meðal annars komið sínum helsta ráðgjafa hjá FIFA í opna skjöldu, en lofað knattspyrnusamböndum háum fjárhæðum fyrir að þátttöku. Á endanum féll Infantino frá áformunum í ljósi þeirrar miklu mótstöðu sem myndaðist en það dugði ekki til að lægja öldurnar. Á föstudag var greint frá því að Knattspyrnusambönd Evrópu (UEFA), Asíu (AFC) sem og knattspyrnusamband Norður-, Mið-Ameríku og Karíbahafsins (CONCACAF) íhugi að þvinga fram kosningu um vantraust á hendur Gianni Infantino. Sameiginleg yfirlýsing knattspyrnusambanda á Norðurlöndum um FIFA Knattspyrnusambönd Norðurlandanna sex hafa misst traust á forseta FIFA og hafa alvarlegar áhyggjur af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum samtakanna. Norrænu knattspyrnusamböndin standa þétt að baki UEFA og þeim aðgerðum sem aðildarsambönd UEFA hafa sameiginlega lagt til. Við væntum þess að FIFA veiti bindandi fullvissu fyrir því að stjórnarhættir FIFA eða keppnir á vegum samtakanna verði aldrei aftur opnaðar fyrir einkaeignarhald. Jafnframt styðja norrænu samböndin þá kröfu sem sett hefur verið fram af AFC, CONCACAF og UEFA um að fram fari algjörlega óháð úttekt á atburðarásinni í kringum FIFA Forward Enterprise (FFE) tillöguna. Við skorum einnig á FIFA að hefja víðtæka og sjálfstæða úttekt á því hvort stjórnarhættir og skipulag FIFA tryggi það sjálfstæði, aðhald, gagnsæi og þá ábyrgðarskyldu sem stefnt var að þegar umfangsmiklar umbætur á stjórnarháttum FIFA voru boðaðar og innleiddar árið 2016. Yfirlýsingin á ensku: The six Nordic football associations have lost confidence in the FIFA President and have serious concerns about the governance and high-level decision-making of the organisation. The Nordic football associations stand firmly with UEFA and the measures suggested by its National Associations in unison. We expect that FIFA provides binding assurances that FIFA will never again open its governance or competitions to private ownership. We also support the demand put forward by AFC, CONCACAF and UEFA, for a fully third-party review of the events surrounding the FIFA Forward Enterprise proposal. We also call for FIFA to initiate a comprehensive independent review of whether FIFA’s governance framework provides the independence, checks and balances, transparency and accountability, that were intended when FIFA adopted its reform programme in 2016.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira