Hjólreiðar

Vinna hafin við göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár
Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist á þessum kafla í Víðidal. Brúarsmíðin er einn verkþátta Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, sem Suðurverk og Loftorka annast.

Fagnar sigri gegn kerfinu eftir fimm ára baráttu
Fimm ára baráttu ungrar konu með sjaldgæfan taugasjúkdóm við kerfið er lokið. Sjúkratryggingar hafa staðfest að hún eigi rétt á hjólastólahjóli, eftir að hafa hafnað henni tvisvar áður.

„Ef fólk hlær ekki af draumum þínum þá eru þeir einfaldlega ekki nógu stórir“
Hafdís Sigurðardóttir hefur verið kosin hjólreiðakona ársins undanfarin tvö ár og fylgdi því eftir frábæru ári með öðru góðu. Hún keppir fyrir Hjólreiðafélag Akureyrar.

Uppáskrifað morfín dregur úr hjólaþjófnaði
Hjólarán eru algeng á Íslandi og tengjast oft neyslu, þjófarnir grípa hluti eins og hjól, eitthvað sem þægilegt er að ferja og reyna að fá þeim skipt fyrir vímuefni, eða koma þeim í verð sem svo fjármagnar neyslu.

Heimsmeistari ákærður fyrir að valda dauða eiginkonu sinnar
Ástralski íþróttamaðurinn Rohan Dennis hefur verið ákærður fyrir að binda enda á líf eiginkonu sinnar Melissa Dennis síðastliðið laugardagskvöld.

Hróður Hjólahvíslarans nær út í heim
Breski miðillinn The Guardian birti í dag viðtal við Bjartmar Leósson, sem betur er þekktur sem Hjólahvíslarinn. Í umfjölluninni fer Bjartmar yfir söguna á bak við hjólahvíslið, og er honum hrósað í hástert af íslensku lögreglunni.

Rafmagnshjól með virðisaukaskattsvindinn í fangið á nýju ári
Með setningu bráðabirgðaákvæðis XXVI við lög nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. lög nr. 154/2019, var tollyfirvöldum gert heimilt við tollafgreiðslu að fella niður virðisaukaskatt upp að hámarki 96.000 kr. við kaup á virkum samgöngutækjum.

Fossvogsbrú á minn hátt
Aldan var vinningstillagan í samkeppni um Fossvogsbrú. Ég skoðaði vinningstillöguna frá Eflu og brúin er gullfalleg. Ég ferðast um brúnna í huganum og skynja hvað gæti verið betra í mínum huga.

Heppni að ekki fór verr
Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður slapp vel þegar leigubíll keyrði á hann við Hringbraut síðdegis í dag. Hjól hans þarfnast viðgerðar en hann segir lærdóminn að vera ávallt á varðbergi í umferðinni – bæði ökumenn og hjólreiðamenn – sérstaklega nú þegar skammdegið er að skella á.

Fossvogsbrúin „fyrst og fremst samgöngumannvirki, ekki útivistarsvæði“
Vegagerðin og Landssamtök hjólreiðamanna segja núverandi hönnun Fossvogsbrúarinnar tryggja öryggi og skjól hjólreiðamanna. Það þurfi ekki að breyta hönnun brúarinnar eins og byggingarverkfræðingur vill gera svo gangandi geti notið sólarlags og útsýnis betur.

Venjuleg gella á hjóli með þrenn skýr skilaboð til bílstjóra
Brynhildur Bolladóttir lögfræðingur segir lífið hafa breyst til hins betra þegar hún eignaðist rafhjól. Nú þýtur hún upp brekkur, kennir bílstjórum að umgangast hjólastíga og segir ekkert kappsmál fyrir henni að vera bíllaus. Hjólið veiti einfaldlega hamingju. Rafhjólin gætu orðið bylting millistéttarinnar.

Goðsögn í Kópavogi fallin frá
Óhætt er segja að Kópavogur sakni eins síns dáðasta drengs. Jóhannes Jónasson, betur þekktur sem Jói á hjólinu, féll frá þann 27. október síðastliðinn. Hann var 81 árs.

Fjöldi kærður og sektaður eftir slys á rafhlaupahjóli
Lögregla hefur á þessu ári kært og sektað um hundrað manns sem hafa dottið á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Aðalvarðstjóri umferðardeildar segir óhæft hversu algeng slysin eru og telur að taka þurfi á málinu.

Dáist að styrk móður sinnar að hafa ekki farið í fóstureyðingu
„Ég fæ aldrei nóg af Íslandi og hef elskað landið frá því ég kom hingað”, segir Chris Burkard ljósmyndari sem í undanfarin ár hefur deilt ljósmyndum frá Íslandi með milljónum fylgjenda sinna. Móðir hans var aðeins sextán ára þegar hún eignaðist hann en þá var blóðfaðir hans nýlega látinn.

Segir sveitarfélög draga lappirnar vegna illa lagðra hlaupahjóla
Hjólreiðaaðgerðarsinni segir illa lögð rafhlaupahjól á hjólreiðastígum höfuðborgarsvæðisins vera orðin eitt helsta vandamálið á stígunum. Hann segir alveg ljóst að sveitarfélög beri ábyrgð á málinu, þó sum hver firri sig ábyrgð og segir þrjá möguleika til betrumbóta.

Minnst milljarður á ári í hjólreiðainnviði
Staðan á hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021 til 2025 var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni. Tíu kílómetrar af sérstökum hjólastígum hafa bæst við frá árinu 2021 og eru þeir orðnir 42 kílómetrar samtals. Fjárfestingar í nýjum hjólreiðainnviðum í Reykjavík eiga að vera að lágmarki fimm milljarðar króna á tímabilinu.

Blöskrar framkoma hjólreiðamanns sem hjólaði dóttur hennar niður
Móðir unglingsstúlku sem slasaðist eftir að hjólað var á hana, og mátti þola skammir hjólreiðamanns í kjölfarið, segir hjólreiðamanninn hafa látið dóttur hennar halda á hjóli hans, á sama tíma og hún var mikið slösuð á úlnlið. Ökumaður sem hafi verið vitni að atvikinu hafi ekkert gert til að aðstoða.

Berlin yfirgefur bensínstöðina
Reiðhjólaverslunin Berlin flutti í nýtt húsnæði í dag, af bensínstöðinni við Háaleitisbraut inn í Miðbæ á sömu götu, Háaleitisbraut 58-60. Eigendur eru spenntir fyrir nýrri staðsetningu, sem þó sé rétt hjá.

Segir hringferðina um Ísland hafa breytt lífi sínu
Yasmine Adriss setti sér það markmið í vor að hjóla hringinn í kringum Ísland og varð þar með fyrsta sádí-arabíska konan til að gera það. Hún tók ákvörðun um að gera það eftir að hún hætti í vinnunni og vissi ekki hvert hennar næsta skref átti að vera.

Nýtur þess að hjóla og taka upp kjánaskap í umferðinni
Á leið sinni í vinnu á hjóli tekur hjólreiðamaðurinn Bragi Gunnlaugsson upp umferðina á myndband og sýnir á samfélagsmiðlum. Árekstrar og ýmsar furðulegar uppákomur eru daglegt brauð að hans sögn.

Könnuðust við gæjann á hjólinu
Nemendur við Davie County high í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum komust í feitt á dögunum þegar þeir skoðuðu sig um á Bessastöðum. Unglingarnir voru að búa sig undir að yfirgefa svæðið þegar maður kom hjólandi í blárri peysu.

Átta Íslendingar taka þátt á HM í hjólreiðum
Átta Íslendingar munu taka þátt fyrir hönd Hjólreiðasambands Íslands á Heimsmeistaramótinu í hjólreiðum sem hófst í Glasgow í gær og mun standa yfir næstu daga.

Tour de France meistarinn Vingegaard: Þetta er það mest þreytandi
Danir ætla að fagna meistaranum sínum Jonas Vingegaard í dag, bæði á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn sem og í Tívolíinu.

Ökumenn beri ábyrgðina
Ökumenn fyrir aftan hjólreiðamenn á vegum úti sem geta ekki tekið fram úr með öruggum hætti verða að hægja á sér þar til aðstæður leyfa segir samskiptastjóri Samgöngustofu. Taki þeir fram úr skulu ökumenn passa að hliðarbil milli bíls og hjóls séu að lágmarki einn og hálfur metri.

Jonas Vingegaard vann Frakklandshjólreiðarnar annað árið í röð
Jonas Vingegaard sigraði Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France. Sá danski varði titilinn en hann vann einnig Frakklandshjólreiðarnar í fyrra.

Maður reyndi að stela reiðhjóli með öxi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tilraun til hjólaþjófnaðar sem átti sér stað við reiðhjólaverslunina Ellingsen á Granda. Öxi var notuð við tilraunina.

Um 1200 hjólreiðakeppendur á Hvolsvelli
Hjólreiðakeppnin „The Rift“ fer fram á Hvolsvelli og nágrenni um helgina. Keppnin var fyrst haldin árið 2019 og hefur farið ört stækkandi. Nú taka þátt 1200 keppendur sem hjóla 100 eða 200 km leið frá Hvolsvelli, inn á Fjallabak og til baka. Mikið umstang fylgir slíkri keppni og þessum 1200 keppendum fylgir annað eins af aðstoðar- og stuðningsfólki. Því er ljóst að margt verður um manninn og mikið líf á Hvolsvelli alla helgina.

Velur fæðinguna fram yfir hjólreiðarnar
Belgíski hjólreiðamaðurinn Wout van Aert hefur ákveðið að fara heim og klárar því ekki síðasta sprettinn í Tour de France mótinu. Ástæðan er sú að eiginkona hans á von á barni og hann vill vera á staðnum þegar það kemur í heiminn.

„Jonas er hreinasti hjólreiðamaður sögunnar“
Danski hjólreiðamaðurinn Jonas Vingegaard hefur verið í miklu stuði síðustu daga í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France.

Seinheppinn Tour de France keppandi lenti líka í árekstri á frídeginum sínum
Belgíski hjólreiðamaðurinn Maxim van Gils er búinn að taka út sinn skammt af árekstrinum í Frakklandshjólreiðunum og gott betur.