
Eldgos og jarðhræringar

Þorbjörn kominn heim eftir átta mánaða fjarveru
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur snúið aftur til húsakynna sína í Grindavík eftir átta mánaða fjarveru þar sem aðsetur sveitarinnar var fært til Njarðvíkur vegna jarðhræringanna.

Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að styrkja búseturétthafa í Grindavík um 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra. Búseturétthöfum í um þrjátíu íbúðum í bænum stendur nú til boða að losna undan samningi án uppsagnarfrestar.

„Við erum bara að reyna að lifa af“
Eigandi fyrirtækis, sem sérhæfir sig í brúðkaupsskipulagningu fyrir ferðamenn, segir bókanir hafa dregist saman um tuttugu prósent á þessu ári. Vont veður og fréttir af eldgosi hjálpa ekki til í rekstrinum sem er strembinn fyrir.

Líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum
Landris undir Svartsengi hefur verið stöðugt síðustu daga og kvikuflæði heldur þar áfram. Líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á svæðinu á næstu vikum eða mánuðum.

Fjórir skjálftar stærri en 3 við Kolbeinsey
Fjórir jarðskjálftar stærri en 3 að stærð mældust við Kolbeinseyjarhrygg í gær. Skjálftarnir voru staðsettur um 200 kílómetra norður af landi.

Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi
Ekki er að sjá að dregið hafi úr kvikuinnstreymi í Svartsengi frá því að eldgosi lauk í síðasta mánuði. Þá hefur skjálftavirkni á Svartsengi verið mjög lítil og fáir smáskjálftar mælst á hverjum degi.

Skjálfti suðvestur af Reykjanestá
Jarðskjálfti varð níutíu kílómetrum suðvestur af Reykjanestá um hádegisleytið í dag. Stærð skjálftans var 3,4 að stærð, en hann mældist klukkan 12:20.

Skjálfta varð vart á höfuðborgarsvæðinu
Klukkan 07:17 varð jarðskjálfti rétt vestan við Lambafell í Þrengslum í Svínahrauni af stærðinni 3,1.

Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn
Grindvíkingarnir Ómar Davíð Ólafsson og Þormar Ómarsson sem reka báðir fyrirtæki í Grindavík segja bæinn miklu heillegri en almenningur haldi. Þeir hvetja yfirvöld til að fjarlægja lokunarpósta og hleypa fólki inn í bæinn.

Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos
Kvikuflæði heldur áfram undir Svartsengi en hraði landriss mælist nú meiri en fyrir síðasta eldgos á Reykjanesinu sem hófst þann 29. maí og lauk 22. júní. Í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum eða mánuðum.

Öflugur skjálfti í Bárðarbungu
Nokkuð öflugur jarðskjálft, af stærðinni 3,4, mældist í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni í morgun.

Býst ekki við nýju eldgosi
Eldfjallafræðingur telur meiri líkur en minni á að það hefjist ekki nýtt gos í Sundhnúksgígaröðinni á næstunni. Hægt hafi á flæði inn í dýpri kvikugeymsluna undir Svartsengi upp á síðkastið.

Þórkatla tekið við 400 eignum
Fasteignafélaginu Þórkötlu hefur borist umsóknir 900 Grindvíkigna um sölu á eignum til félagsins. Gengið hefur verið frá nærri 740 þinglýstum kaupsamningum, um 82 prósent þeirra sem sótt hefur verið um. Þegar hefur verið tekið við 400 eignum.

Nýtt eldgos líklegt
Gera má ráð fyrir nýju kvikuinnskoti og/eða eldgosi á næstu vikum á Sundhnjúkasvæðinu. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofunnar.

Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna.

Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur látinn
Ragnar Kristján Stefánsson jarðskjálftafræðingur lést í gær á Landspítalanum. Ragnar var landsþekktur sem helsti jarðskjálftafræðingur þjóðarinnar og var einnig áberandi í félagsstörfum af ýmsu tagi.

Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn
„Við finnum það að þetta nýtist vissulega vel í þessa umræðu um Ísland. Það er búin að vera mjög viðkvæm umræða um Ísland og eldvirknina. Það birtust fjölmargar greinar um Ísland í erlendum fjölmiðlum með röngum upplýsingum og fólk varð smeykt að ferðast til Íslands.“

Eldgosinu lauk á laugardaginn
Eldgosinu við Sundhnúk lauk á laugardaginn. Landris við Svartsengi er þegar hafið á ný og að mati náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni er atburðarásin svipuð þeirri sem áður hefur sést milli gosa.

Skjálftinn við Brennisteinsfjöll líklega ótengdur gosstöðvunum
Jarðskjálfti sem reið yfir í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi er ekki talinn tengjast atburðunum í Sundhnúkagígum. Landris heldur áfram við Svartsengi og útlit fyrir að sama ferli sé að hefjast og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa.

Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok
Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi.

Af hættustigi niður á óvissustig
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum.

Eldgosinu líklegast lokið
Eldgosinu sem hófst 29. maí virðist vera lokið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands.

Vonast til að geta stöðvað flæði yfir varnargarð fyrir lok dags
Enn er glóð í gíg eldgossins við Sundhnúk. Hraunflæðið er nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarðana við orkuverið í Svartsengi en síðustu daga hefur runnið nokkuð stöðugt yfir varnargarðinn á nokkrum stöðum.

Enn glóð í gígnum og unnið að hraunkælingu
Enn er glóð í gígnum í eldgosinu við Sundhnúk. Órói hefur minnkað en hraunflæðið virðist nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarða.

„Landrisið er hægara en það hefur verið“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ólíklegt að gosið við Sundhnjúka nái sér upp aftur. Hann segir landris sem mælst hefur vera hægara en það hefur áður verið.

Unnið dag og nótt við varnargarðana
Hraunkæling við varnargarðana við Svartsengi hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi með góðum árangri. Slökkviliðið og aðrir á svæðinu fagna því að eldgosið virðist vera að syngja sitt síðasta í bili.

Minnkandi virkni í gígnum bendi til gosloka á næstunni
Á myndum sem teknar voru í morgun í drónaflugi Almannavarna sést að virkni í gígnum við Sýlingarfell fer minnkandi.

Hraunið fer hægt yfir en hraunkælingu haldið áfram í dag
„Hraunkælingin hélt áfram í nótt og vinnuvélarnar héldu áfram í nótt. Og það er bara verið að leita allra leiða til að koma í veg fyrir og hægja á rennslinu.“

Samhæfingarstöðin virkjuð, hraunkæling hafin og fundað klukkan 8
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð í gærkvöldi og gripið til hraunkælingar á ný vegna hraunspýja sem voru farnar að vella yfir varnargarða við Svartsengi.

Enn stöðugt streymi í Svartsengi
Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí hefur nú staðið í rétt rúmar þrjár vikur og áfram gýs úr einum gíg rétt austan Sundhnúks. Landris helst stöðugt í Svartsengi og því ljóst að meiri kvika flæðir inn í kvikuhólfið en gýs upp úr því.