Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 … 148 ›
Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir. Innlent 27.10.2026 19:12
Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Innlent 27.10.2026 17:44
Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður. Innlent 27.10.2026 14:42
Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu. Innlent 27.10.2026 10:07
„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 27.10.2026 08:07
Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Innlent 26.10.2026 11:18
Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Jarðskjálfti varð í Bárðabungu klukkan 14.44 og mældist 5,2 að stærð. Innlent 19.10.2026 15:26
„Tárin streymdu niður vangana á mér“ „Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“ Lífið 16.10.2026 09:09
Fangelsi undir Vatnajökli Grímsvötn nefnist nýr leikvangur í hinum heimsfræga tölvuleik Overwatch. Spilarar geta þar etið kappi í skálduðu hámarksöryggisfangelsi í samnefndri eldstöð í Vatnajökulsþjóðgarði. Leikjavísir 7.10.2026 21:31
Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa. Innlent 5.10.2026 18:22
Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð. Innlent 4.10.2026 14:52
Skjálfti upp á 3,4 Jarðskjálfti upp á 3,4 reið yfir rétt austan við Hamarinn á Vatnajökli nú í hádeginu. Innlent 4.10.2026 13:03
Höfuðborgarsvæðið skalf Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin. Innlent 4.10.2026 00:42
Katla skelfur Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju. Innlent 3.10.2026 21:45
Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. Innlent 30.9.2026 21:03
Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík á opnum fundi í Gjánni, í Grindavík í kvöld klukkan 20:00. Fundinum verður streymt í beinni hér á Vísi. Innlent 22.9.2026 19:00
Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 22.9.2026 16:08
Skjálftahrina suðvestur af Eldey Skjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg, um fimmtíu kílómetrum suðvestur af Eldey, klukkan 21:55 í gærkvöldi. Innlent 16.9.2026 07:30
Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Hægt landris mælist áfram við Svartsengi og er jarðskjálftavirkni áfram lítil á Reykjanesskaganum. Hættumat er óbreytt. Innlent 15.9.2026 15:29
Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Stór skjálfti varð í vestanverðum Langjökli klukkan átján mínútur yfir tvö í dag. Skjálftinn mældist 4,2 að stærð og hafa nokkrir eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Innlent 15.9.2026 14:58
Fékk nóg og er hættur á Facebook Jón Frímann Jónsson sem haslað hefur sér völl með skeleggum skrifum um jarðhræringar á samfélagsmiðlinum Facebook hefur ákveðið að segja skilið við miðilinn. Hann segir fréttir af gervigreind og auglýsingasölu fyrirtækisins þar sem kynferðisofbeldi gegn börnum bregði fyrir sé um að kenna. Jón vonar að lesendur muni fylgja honum yfir á nýja samfélagsmiðla. Innlent 12.9.2026 16:25
„Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. Innlent 7.9.2026 09:39
Hátt í áttatíu eftirskjálftar Tugir skjálfta hafa mælst í Brennisteinsfjöllum frá því að þriggja stiga skjálfti reið þar yfir í gærkvöldi. Innlent 5.9.2026 08:17
Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Jarðskjálfti varð við Brennisteinsfjöll klukkan 20:18 í kvöld og mældist hann 3,0 að stærð. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst og fannst skjálftinn í byggð. Innlent 4.9.2026 20:48
Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Hlýrra og lygnara er í Grindavík í kjölfar náttúruhamfara sem riðið hafa yfir bæinn undanfarin misseri. Norðanáttin er nú hægari og hlýrri en áður og hafgolan virðist einnig hafa breyst. Veður 2.9.2026 16:07
Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Rafleiðni í Múlakvísl hefur síðustu daga mælst há miðað við árstíma. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að leiðnin hafi mælst í kringum 250-270 μS/cm síðan 30. ágúst. Aukin rafleiðni er vísbending um jökulhlaup. Innlent 1.9.2026 09:00
Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni. Erlent 30.8.2026 22:09
Allt bendi til lítils jökulshlaups Rafleiðni í Múlakvísl hefur undanfarna sólarhringa aukist jafnt og þétt á ný. Það er vísbending um að lítil jökulhlaup sé í gangi. Innlent 29.8.2026 09:36
Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Ýmis líkindi eru á milli aðstæðna sem virðast hafa valdið mannskæðu skyndiflóði í Nepal og Tíbet og á Íslandi þó að umhverfið sé gerólíkt. Íslenskur jarðfræðingur segir að stórar flóðbygjur geti komið úr jökullónum ef skriður falla í þau. Innlent 29.8.2026 07:00
Hundrað skjálfta hrina við Eldey Tæplega hundrað jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu við Eldey í nótt. Hrinan hófst á stórum skjálfta klukkan 03:38. Fyrsti skjálftinn var 4,1 að stærð en sumir eftirskjálftar hafa verið yfir 3,0. Innlent 25.8.2026 07:19