
Bólusetningar

Bólusetningar hefjast aftur í Laugardalshöll í dag
Bólusetningarátak hefst í Laugardalshöll í dag og mun fyrsti hluti átaksins standa í fjórar vikur, eða til 8. desember. Bólusett verður frá klukkan tíu til fimmtán mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga og á meðan verður ekki bólusett á Suðurlandsbraut.

Flestir viðbragðsaðilar hafa þegar fengið þriðja skammt
Viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu hafa þegar fengið örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eða klára það á mánudag að sögn yfirlögregluþjóns. Byrjað verður að bjóða almenningi upp á þriðja skammt bóluefnis á mánudag.

Ráðherrar binda vonir við þriðju bólusetninguna og skora á alla að mæta
Harðar sóttvarnaaðgerðir til næstu þriggja vikna taka gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra skorar á alla sem fá boðun að þiggja þriðju bólusetninguna en stefnt sé að því að bólusetja um helming fullorðins fólks fyrir áramót.

Vonbrigði að þessi staða sé uppi þrátt fyrir bólusetta þjóð
Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra segir það gríðarleg vonbrigði að staðan sé jafn slæm og raun ber vitni í kórónuveirufaraldrinum. Metfjöldi hefur greinst smitaður af veirunni nær alla daga þessarar viku og hafa sóttvarnaaðgerðir nú verið hertar til muna vegna stöðunnar .

Austurríkismenn horfa fram á útgöngubann fyrir óbólusetta
Yfirvöld í Austurríki eru sögð örfáum dögum frá því að koma á útgöngubanni fyrir óbólusetta. Metfjöldi greindist með Covid-19 í landinu á síðustu 24 klukkustundum, eða 11.975.

Valið er mjög einfalt þegar kemur að örvunarskömmtum
Ég skal taka örvunarskammti af bólusetningu ef mér býðst hún.

Telur ljóst að grípa þurfi til enn harðari aðgerða
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, gerir ráð fyrir að sóttvarnalæknir muni skila henni minnisblaði með tillögum um hertar innanlandsaðgerðir í dag eða á morgun. Býst hún við að hertar aðgerðir verði boðaðar á næstu dögum.

Met dag eftir dag í „faraldri óbólusettra“ í Þýskalandi
Fleiri en fimmtíu þúsund manns greindust smitaðir af Covid-19 í Þýskalandi í gær og var það fjórða daginn í röð sem nýtt met yfir fjölda smitaðra á einum degi var slegið. Yfirvöld hafa lýst þessari bylgju sem „faraldri óbólusettra“.

Langflestir sem hafa greinst tvisvar með Covid-19 voru óbólusettir
Alls hafa 27 einstaklingar hérlendis smitast tvisvar af kórónuveirunni samkvæmt skrá Almannavarna en af þeim voru 22 óbólusettir. Þetta kemur fram í svari almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Fimmtán liggja inni og þrír eru í öndunarvél
Fimmtán liggja nú inni á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Af þeim fimmtán sem liggja inni eru fimm óbólusettir en meðalaldur inniliggjandi er 59 ár.

Moderna og Heilbrigðisstofnanir Bandaríkjanna deila um „höfundarrétt“ bóluefnisins
Lyfjafyrirtækið Moderna og Heilbrigðisstofnanir Bandaríkjanna (NIH) hafa í eitt ár háð baráttu um það hverjir verðskulda höfundarrétt á bóluefninu gegn Covid-19. Niðurstaða deilnanna gætu haft mikla þýðingu fyrir það hvernig bóluefnið verður notað.

65 ára og eldri fá ekki Covid-passa nema þeir þiggi örvunarskammt
Á næstunni munu taka gildi nýjar reglur í Frakklandi sem kveða á um að einstaklingar 65 ára og eldri þurfa að hafa þegið örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19 til að mega ferðast og heimsækja veitingastaði og söfn.

Efast ekki um að áhættuhópar ættu að þiggja þriðja skammtinn
Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítalans kveðst nokkuð bjartsýnn á að notkun þriðja skammts bóluefnis við kórónuveirunni muni gefa góða raun í baráttunni við faraldurinn.

Allt bendi til þess að þriðji skammturinn stuðli að hjarðónæmi
Sóttvarnalæknir segist vonast til þess að örvunarbólusetning verði til þess að hjarðónæmi gegn kórónuveirunni náist hér á landi. Þetta kom fram í máli hans í Kastljósi í kvöld.

Ráðleggur fólki frá því að ákveða um þriðja skammtinn út frá mótefnamælingu
117 greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Sóttvarnalæknir ráðleggur fólki frá því að ákveða hvort þörf sé á þriðja skammti bóluefnis út frá einfaldri mótefnamælingu. Tvö hágæslurými verða tekin í notkun á Landspítala í desember.

Bindur vonir við að örvunarskammtur auki ónæmi í samfélaginu
Sóttvarnalæknir bindur vonir við að örvunarskammtar bóluefnis gegn kórónuveirunni hjálpi mikið til við að auka ónæmi í samfélaginu gegn veirunni. Til stendur að hefja fjöldabólusetningu með örvunarskammti í næstu viku.

160 þúsund verða boðaðir í örvunarbólusetningu fyrir áramót
Um 160 þúsund manns um land allt verða boðaðir í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Góð reynsla hefur hlotist í Ísrael með almennri þátttöku í örvunarbólusetningum.

Sextán ára og eldri fái örvunarskammt
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mælir með því að allir sextán ára og eldri fái þriðja skammt bóluefnis. Veita eigi þann skammt sex mánuðum frá grunnbólusetningu gegn Covid-19.

Bretar hefja notkun lyfs sem gæti markað þáttaskil í baráttunni við Covid
Bretland er fyrsta ríkið til að heimila notkun veirulyfsins molnupiravir gegn Covid-19 en rannsóknir sýna að notkun þess á fyrstu dögum sýkingar helmingar áhættuna á sjúkrahúsinnlögn og dauða af völdum SARS-CoV-2.

Evrópa aftur orðin miðpunktur kórónuveirufaraldursins
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að Evrópa sé enn á ný orðinn miðpunktur kórónuveirufaraldursins en smitum fer nú mjög fjölgandi í flestum ríkjum.

Safnar gögnum fyrir hópmálsókn gegn íslenska ríkinu
Þrjátíu konur hafa lýst yfir áhuga á að vera hluti af skaðabótamáli á hendur íslenska ríkinu í tengslum við aukaverkanir bóluefna gegn Covid-19. Ekki liggur fyrir hver endanlegur fjöldi verður en allar konurnar eiga það sameiginlegt að hafa lýst breytingum á tíðahring eftir að þær voru bólusettar.

Bólusetning gegn HPV fækkar krabbameinstilvikum um nærri 90 prósent
Bresk rannsókn bendir til þess að bólusetning gegn HPV-veirunni hafi fækkað tilfellum leghálskrabbameins um nærri 90 prósent. Veiran á þátt í nær öllum krabbameinum sem greinast í leghálsi.

Búa sig undir að setja maskínuna aftur í gang
Til skoðunar er að byrja að gefa stórum hópi fólks með undirliggjandi sjúkdóma örvunarskammt af bóluefni gegn kórónuveirunni næsta mánuðinn. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir örvunarskammt bæta ónæmi gegn veirunni umtalsvert.

Til skoðunar að bjóða öllum þriðja skammt bóluefnisins
Líklegt er að fljótlega verði hafist handa hér á landi við að bjóða öllum örvunarbólusetningu með bóluefni Pfizer segir sóttvarnalæknir í pistli sem hann birti á covid.is. Örvunarskammturinn verði veittur að minnsta kosti fimm til sex mánuðum eftir aðra bólusetningu.

Takmarkanir nauðsynlegar næstu mánuði eða ár
Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann vill hæfilegan milliveg til lengri tíma í stað þess að vera sífellt að herða og slaka á klónni.

Hjartavöðvabólga í kjölfar bólusetninga afar fátíð og yfirleitt mild
Nýjustu rannsóknir staðfesta það að hjartavöðvabólga hjá ungmennum í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19 er næstum alltaf mild og gengur til baka á skömmum tíma. Áhættan af því að fá Covid-19 er mun meiri.

„Vax“ orð ársins hjá Oxford-orðabókinni
Orðið „vax“ er orð ársins 2021 samkvæmt Oxford Languages sem gefur út Oxford-orðabókina, Oxford English Dictionary.

Smitaðist beint eftir hjartaaðgerð og kveðst eiga líf sitt bóluefnum að þakka
Maður sem smitaðist af Covid-19 inni á hjartadeild aðeins örfáum dögum eftir stóra aðgerð segist eiga bóluefnum líf sitt að þakka. Það hefði enginn þurft að smitast þarna inni að sögn mannsins, sem gagnrýnir að heimsóknir hafi verið leyfðar á deildinni.

Málefnalegar ástæður fyrir því að 20 starfsmenn Landspítalans hafni bólusetningu
Starfandi forstjóri Landspítalans segir að spítalinn hafi brugðist eins vel við og hann gat þegar hópsmit kom upp á hjartaskurðdeild. Hún kveðst skilja vel að aðstandendur séu sárir vegna málsins.

Heimila bólusetningu ungra barna í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt lyfjafyrirtækinu Pfizer blessun sína til að hefja bólusetningu barna eldri en fimm ára gegn Covid-19 í neyðartilvikum. Allt að 28 milljónir barna gætu fengið bóluefni strax í næstu viku.