Úkraína
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 78 ›
Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. Erlent 4.7.2022 07:19
Sex látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á Slóvíansk Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Árásin er sú stærsta sem borgin hefur þurft að þola til þessa segir bæjarstjóri borgarinnar. Erlent 3.7.2022 14:21
Sakar Úkraínumenn um að beina flugskeytum að Hvíta-Rússlandi Alexander Lukasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, heldur því fram að Úkraínumenn hafi reynt að skjóta flugskeytum á herstöðvar landsins fyrir þremur dögum en að varnarkerfi þeirra hafi stöðvað flugskeytin í öll skiptin. Erlent 2.7.2022 23:14
Segja íbúa verjast af hörku en saka Rússa um að varpa fosfórsprengjum Úkraínskir hermenn berjast af hörku við rússneskar hersveitir í norðurhluta Úkraínu en ekkert lát er á árásum Rússa í austurhlutanum. Úkraínski herinn hefur meðal annars sakað Rússa um að varpa fosfór sprengjum á Snákaeyju. Talsmaður hersins segir Rússa óttast mótspyrnu heimamanna. Erlent 2.7.2022 20:41
Fordæma mögulega dauðarefsingu bresku hermannanna Bresk stjórnvöld hafa fordæmt það að tveir Bretar, Dylan Healy og Andrew Hill, skyldu fá dauðadóm í Rússlandi. Skýrsla frá rússneskum dómstólum var lekið í gær en samkvæmt henni verða mennirnir dæmdir til dauða. Erlent 2.7.2022 15:51
Úkraínuforseti segir ESB aðild ekki mega dragast í mörg ár Forseti Úkraínu segir aðildarferli landsins að Evrópusambandinu ekki mega taka einhver ár eða áratugi. Tuttugu og einn almennur borgari féll, þeirra á meðal tvö börn, og tæplega fjörutíu manns særðust í eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús og sumarbúðir í Odessa héraði í gærkvöldi. Erlent 1.7.2022 19:20
Úkraínuforseti skorar á Vesturlönd að hætta orkuinnflutningi frá Rússlandi Zelenskyy Úkraínuforseti segir Evrópu verða að hætta öllum gas- og olíuinnfluttningi frá Rússlandi en Rússar noti ágóðann bæði í stríðinu í Úkraínu og til að sundra Evrópu. Nítján óbreyttir borgarar, þar af eitt barn, féllu í tveimur eldflaugaárásum Rússa á bæ nálægt hafnarborginni Odessa í Úkraínu í gærkvöldi. Erlent 1.7.2022 13:43
Vaktin: Tala látinna fer hækkandi eftir loftárás Rússa í Odesa Tala látinna fer hækkandi eftir loftárásir Rússa sem lentu á íbúðabyggingu og tómstundamiðstöð í úkraínsku borginni Odesa í nótt. Staðfest tala látinna er nú 21 en þar af eru tvö börn. Auk þess voru 38 fluttit á sjúkrahús eftir árásina. Erlent 1.7.2022 08:35
Rússar hafa nánast lagt Luhansk hérað undir sig Rússar eru við það að ná fullum yfirráðum yfir síðustu borginni í Luhansk héraði eftir harða bardaga undanfarnar vikur. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að útvega Úkraínumönnum þau vopn sem dugi til að þeir vinni stríðið í Úkraínu. Erlent 30.6.2022 21:00
Putin segir sókn Rússa stöðuga og samkvæmt áætlun Putin Rússlandsforseti þvertekur fyrir að ráðist sé á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Sókn rússneskra hersveita væri stöðug og gengi samkvæmt áætlun. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að auka stuðning sinn við Úkraínumenn og sjá til þess að þeir gersigri rússneska innrásarliðið. Erlent 30.6.2022 11:53
Vaktin: Pútín hafnar því að Rússar haldi úkraínskum flutningaskipum föstum Vladímír Pútín Rússlandsforseti hafnar því að Rússar haldi flutningaskipum föstum í úkraínskum höfnum. Einnig gerði hann lítið úr áhrifum kornskorts á heimsmarkað og sagði refsiaðgerðir Vesturlanda valda hækkandi matarverði. Erlent 30.6.2022 08:57
Bergmál úr fortíðinni Allt frá upphafi Úkraínustríðsins þegar Rússland þverbraut alþjóðalög enn á ný og réðist inn í Úkraínu, hafa þingmenn og stjórnvöld verið einhuga um algjöra samstöðu með Úkraínu og með öðrum lýðræðisríkjum. Það er jákvætt enda eiga fáar þjóðir meira undir því en við Íslendingar að brot á alþjóðalögum séu ekki liðin. Á þeim tíma sem liðinn er frá innrásinni hafa úrtöluraddir og samúð með rússneskum stjórnvöldum sem betur fer farið mjög lágt hér á landi. Skoðun 30.6.2022 08:01
Bandaríkjamenn telja Pútín enn vilja ná stórum hluta Úkraínu á sitt vald Öryggisyfirvöld í Bandaríkjunum telja Vladimir Pútín Rússlandsforseta enn vilja ná stórum hluta Úkraínu á sitt vald. Þau segja hersveitir Rússa hins vegar orðnar svo rýrar að þær séu eingöngu færar um hægfara sókn. Erlent 30.6.2022 06:58
Vaktin: Myndskeið sýnir árásina á verslunarmiðstöðina Sergei Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, segir aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu skapa óstöðugleika og að í augum stjórnvalda í Rússlandi sé um að ræða neikvæða þróun. Erlent 29.6.2022 08:56
„Þetta er 1937 augnablikið okkar,“ segir yfirmaður breska hersins Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir leiðtoga G7-ríkjanna hafa verið sammála um að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þeir þurfa til að snúa stríðinu sér í hag. Þetta sé það sem Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hafi óskað eftir. Erlent 28.6.2022 12:31
Vaktin: NATO hafi áhyggjur yfir tengslum Kínverja og Rússa Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir bandalagið ekki líta á Kínverja sem andstæðinga sína en þau hafi áhyggjur af sterkum tengslum Rússa og Kínverja og því að Kínverjar dreifi fölskum áróðri um bæði NATO og Vesturlönd. Erlent 28.6.2022 08:58
Að minnsta kosti sautján látnir eftir árás Rússa á verslunarmiðstöð Ljóst er að sautján hið minnsta létust þegar Rússar gerðu eldflaugaárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk í miðhluta Úkraínu í gær. Erlent 28.6.2022 07:21
Tilraun til að taka Krímskaga leiði til þriðju heimsstyrjaldarinnar Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og náinn bandamaður Vladímír Pútín, segir að ef ríki sem er í Atlantshafsbandalaginu sæki í átt að Krímskaga leiði það til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Erlent 27.6.2022 23:34
Fundur G7 ríkjanna: Selenskí vill stöðva átökin fyrir veturinn Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti biðlar til leiðtoga G7 ríkjanna að stöðva átökin í Úkraínu áður en vetur skellur á. Erlent 27.6.2022 16:22
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ Erlent 27.6.2022 08:31
„Síðan vöknum við við sprengingar klukkan sex í morgun“ Einn lét lífið eftir að Rússar vörpuðu í morgun sprengjum á að minnsta kosti tvær íbúðablokkir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu. Íslendingur sem býr í borginni segir óþægilegt að vakna upp við sprengingar á ný. Hann er orðinn langþreyttur á stríðinu sem hann segir verða blóðugra með hverjum deginum. Erlent 26.6.2022 15:29
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. Erlent 26.6.2022 07:53
Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53
Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05
Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. Erlent 24.6.2022 15:25
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Segir umboðsmenn leikmanna reyna að græða á ástandinu í Úkraínu Sergei Palkin, framkvæmdastjóri úkraínska knattspyrnufélagsins Shakhtar Donetsk, hefur ásakað hina ýmsu umboðsmenn um að reyna græða á ástandindu í Úkraínu. Fótbolti 24.6.2022 07:00
„Þetta er sigur“ Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, fagnaði þeim tíðindum sem bárust í dag um að Úkraína væri formlega orðið umsóknarríki að aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 21:27
Úkraína og Moldóva formlega orðin umsóknarríki Leiðtogaráð Evrópusambandsins hefur samþykkt að veita Úkraínu og Moldóvu formlega stöðu umsóknarríkja um aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 18:58
Endanlega staðfest að Eurovision verði ekki í Úkraínu Samband evrópskra sjónvarpsstöðva hefur endanlega staðfest að Úkraína muni ekki fá að halda Eurovision á næsta ári. Sambandið sendi frá sér tilkynningu nú síðdegis þar sem segir að ekki verði hægt að tryggja öryggi allra sem koma myndu að keppninni þar í landi. Innlent 23.6.2022 16:52