Úkraína
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 81 ›
Eldflaugum rignir áfram yfir Úkraínu á meðan diplómatar ræða um frið Mikilvægir innviðir skemmdust í Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun, í loftárásum Rússa. Yfirvöld þar sögðu eld hafa kviknað í kjölfarið en greiðlega virðist hafa gengið að slökkva hann. Íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls ef og þegar loftvarnaflautur fara í gang. Erlent 16.2.2023 08:30
Lavrov segir Vesturlönd hafa ráðist á Rússland Atlandshafsbandalagið og Evrópusambandið hétu í dag auknum og áframhaldandi stuðningi við varnir Úkraínu gegn innrás Rússa. Utanríkisráðherra Rússlands sakar Bandaríkin og undirsáta þeirra um að grafa undan sjálfstæðri utanríkisstefnu Rússlands með það að markmiði að tortíma landinu. Erlent 15.2.2023 20:00
Gagnrýndi aðra bakhjarla fyrir hægagang með skriðdreka Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi aðra bakhjarla Úkraínu á fundi í Brussel í gær. Gagnrýnin sneri að því að þeir hefðu um margra vikna skeið þrýst á Þjóðverja um að heimila sendingar Leopard skriðdreka til Úkraínu og í kjölfarið væru þeir sjálfir með hægagang varðandi hergagnaflutninga. Erlent 15.2.2023 14:23
Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi Að minnsta kosti 6.000 börn frá Úkraínu hafa verið send í svokallaðar „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi, með það að markmiði að heilaþvo þau með rússneskum áróðri. Hundruð barna var haldið í búðunum í margar vikur eða mánuði. Erlent 15.2.2023 06:54
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. Erlent 14.2.2023 14:00
Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar Úkraínumenn segja Rússa hafa misst mikinn fjölda atvinnuhermanna í árásum á bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Í raun hafi Rússar misst heilt stórfylki (Brigade) landgönguliða í árásum á bæinn en árásirnar hafa litlum sem engum árangri skilað. Erlent 13.2.2023 15:17
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. Erlent 10.2.2023 08:34
Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner Yevgeny Prigozhin, eigandi rússneska málaliðahópsins Wagner Group, sagði frá því í dag að hann væri hættur að ráða málaliða úr fangelsum Rússlands. Föngum hefur um nokkurra mánaða skeið boðist að ganga til liðs við Wagner og þjóna í sex mánuði í Úkraínu í skiptum fyrir frelsi. Erlent 9.2.2023 22:34
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. Erlent 9.2.2023 20:06
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. Erlent 9.2.2023 08:58
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. Erlent 8.2.2023 23:06
Órjúfanleg vinátta þjóðanna tveggja Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Bretlands í dag og fundaði með forsætisráðherra og konungi landsins. Þá ávarpaði hann breska þingið og þakkaði því stuðning í baráttunni við Rússa. Erlent 8.2.2023 20:00
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. Erlent 8.2.2023 19:15
Selenskí í óvæntri heimsókn til Bretlands í dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti mun í dag heimsækja Bretland í fyrsta sinn síðan Rússar réðust inn í heimaland hans fyrir tæpu ári síðan. Heimsóknin er óvænt en við því er búist að Selenskí muni á morgun ferðast til Brussel til fundar við Evrópusambandið. Erlent 8.2.2023 10:40
Rússar hóta að auka árásir sínar vegna vopnasendinga Bandaríkjamenn eru byrjaðir að senda Bradley bryndreka til Úkraínu en hafa einnig lofað að senda þangað öflugri skriðdreka ásamt nokkrum ríkjum Evrópu. Varnarmálaráðherra Rússlands segir að með þessu séu bandalagsþjóðirnar að reyna að lengja í stríðinu. Erlent 7.2.2023 19:50
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. Erlent 6.2.2023 22:41
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Varnarmálaráðherra Úkraínu látinn taka pokann sinn Oleksii Reznikov hefur verið skipt út sem varnarmálaráðherra Úkraínu. Kyrylo Budanov, yfirmaður GUR leyniþjónustunnar, leysir hann af hólmi. Erlent 5.2.2023 21:47
Klitschko reiður vegna Rússa á ÓL: Með gullmedalíu í að nauðga konum Einn frægasti íþróttamaður í sögu Úkraínu sparaði ekki stóru orðin þegar hann gagnrýndi fréttirnar af því að Alþjóðaólympíunefndin, IOC, vilji finna leið fyrir Rússa og Hvít-Rússa til að taka þátt í Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 2.2.2023 09:31
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Tékklandsforseti vill Úkraínu í Nató um leið og stríðinu lýkur Nýkjörinn forseti Tékklands segist þeirrar skoðunar að Úkraína eigi að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 1.2.2023 07:38
„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag. Innlent 31.1.2023 19:44
Sameinuð með tónlist og himinháum kostnaði Slagorð Eurovision keppninnar sem haldin verður í Liverpool í ár, hefur verið afhjúpað og útlit keppninnar sömuleiðis. Kostnaður Breta við keppnina gæti numið meira en þremur milljörðum íslenskra króna. Tónlist 31.1.2023 11:45
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Rússar safna í nýjan herafla á Krímskaga Rússar gerðu stórfelldar loftárásir á borgir og raforkuinnviði í Úkraínu í morgun. Þeir segja ákvörðun Vesturlanda um að senda skriðdreka til landsins marka beina þátttöku vestrænna ríkja í vörnum Úkraínu og ögrun við öryggi Rússlands. Erlent 26.1.2023 19:21
Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. Erlent 26.1.2023 13:50
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. Erlent 26.1.2023 08:32
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. Erlent 25.1.2023 19:21