![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)
Ellefu rússneskir vetraríþróttamenn hafa verið dæmdir í lífstíðarbann frá Ólympíuleikunum.
Alþjóðaólympíunefndin ætlar að gera allt í valdi sínu til að tryggja hreina Ólympíuleika í Pyeongchang í Suður-Kóreu en vetrarleikarnir verða settir þar í febrúar á næsta ári.
Það er afar sárt fyrir sálina hjá íþróttafólki þegar það meiðist skömmu fyrir stórmót og hvað þá rétt fyrir Ólympíuleika sem eru bara á fjögurra ára fresti.
Ríkisstjórn Venesúela sættir sig ekki við meðferðina á besta skíðagöngumanni þjóðarinnar þó að hann sé nú kallaður sá versti í heimi.
Frammistaða Venesúelamannsins Adrian Solano á heimsmeistaramótinu í skíðagöngu hefur vakið heimsathygli en ástæðan eru þó ekki hæfileikar kappans á gönguskíðum.
Rússneskir íþróttamenn gætu verið útilokaðir frá keppni á næstu Vetrarólympíuleikum og Vetrarólympíumóti fatlaðra sem fara fram í Pyeongchang í Suður-Kóreu eftir rúmt ár.
Sumarólympíuleikarnir í Ríó eru núbúnir en nú styttist í næstu vetrarólympíuleika sem fara fram í PyeongChang í Suður-Kóreu árið 2018.
Alþjóðaólympíunefndin mun ákveða það á sunnudaginn hvort að útiloka eigi allra rússneska keppendur frá Ólympíuleikunum í Ríó sem hefjast í næsta mánuði.
Skýrsla sem kom út í dag um ólöglega lyfjanotkun í rússneskum íþróttum er mikið áfall fyrir allan íþróttaheiminn enda sannast þar að Rússar hafi með skipulögðum hætti aðstoðað íþróttamenn sína við að svindla á lyfjaprófum.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Evrópumeistara Þýskalands, hefur valið 21 manna æfingahóp fyrir komandi Ólympíuleika í Ríó sem fara fram í ágúst.
Brasilíumenn hlaupa þessa dagana með Ólympíueldinn út um allt landið sitt en aðeins 59 dagar eru þangað til að 31. Ólympíuleikarnir verða settir í Ríó.
Alþjóðaólympíunefndin sagði heiminum frá því í síðustu viku að upp hafi komist að 31 íþróttamaður hafi notað ólögleg lyf á Ólympíuleikunum í Peking 2008 án þess að það uppgötvaðist þá. Nú er komið í ljós að 14 þeirra voru frá Rússlandi og hverjir þessir fjórtán eru.
Alþjóða Ólympíunefndin hefur gefið það út að 31 keppandi á Ólympíuleikunum í Peking hafi komist upp með það að nota ólögleg lyf á leikunum í Kína.
Ólympíunefndin tilkynnti í dag að Vetrarólympíuleikarnir 2022 færu fram í Peking en aðeins Peking og Almaty í Kasakstan stóðu til boða eftir að fjórar evrópskar borgir drógu umsóknir sínar til baka.
Sævar Birgisson var í fyrra fyrsti Íslendingurinn í tuttugu ár til að taka þátt í skíðagöngu á Ólympíuleikum og hann gerir sér vel grein fyrir mikilvægi sínu sem fyrirmynd í sportinu sem honum þykir svo vænt um.
Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC, er viss um að Sepp Blatter, forseti FIFA, standi við orð sín og skelli ekki HM í fótbolta 2022 ofan í Vetrarólympíuleikana 2022.
Norðmenn monta sig nú af því að þeir hafi undanfarinn aldarfjórðung náð betri árangri á Heimsmeistaramótinu á gönguskíðum en nágrannar þeirra frá Svíþjóð.
Áhugi Evrópuþjóða á því að halda Ólympíuleika virðist nú vera í sögulegu lágmarki og evrópska Ólympíunefndin hefur mikinn áhuga á því að rannsaka ástæður þess eftir að allar Evrópuþjóðirnar hættu við að vilja halda 2022-leikana.
Áhrifamenn í fótboltaheiminum mæla með því að HM í Katar árið 2022 fari fram í janúar og febrúar en ekki yfir sumartímann þegar hitinn er mikill í Katar.
Pólska skautahlauparinn Natalia Czerwonka lenti í slæmu slysi í heimlandi sínu í gær þegar hún var að undirbúa sig fyrir komandi skautatímabil og það er óvíst hvort hún getið nokkurn tímann keppt aftur á skautum.
Lyfjaeftirlitsmenn eru vonandi búnir að fá góðan liðstyrk í baráttunni við ólögleg lyf í íþróttaheiminum því rannsóknarfólk í Bandaríkjunum telur sig vera búið að finna upp mun öflugri lyfjapróf. Þetta kemur fram í frétt á BBC.
Erna Friðriksdóttir varð aftur í níunda sæti á vetrarleikunum í Sotsjí en hún tók þátt í stórsvigi sitjandi í dag.
Jóhann Þór Hólmgrímsson afrekaði það sem mörgum tókst ekki í stórsvigi sitjandi á ÓL í Sotsjí en það var að komast niður í báðum ferðum í mjög erfiðri braut.
Japaninn Takeshi Suzuki er einn af fjölmörgum gullverðlaunahöfum á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sotsjí í Rússlandi en sigur hans hefur þó kannski kallað fram fleiri gleðitár en aðrir á leikunum.
Jóhann Þór Hólmgrímsson komst ekki niður brekkuna í svigi í flokki sitjandi á Vetrarólympíumótinu í Sotsjí.
Erna Friðriksdóttir endaði í 9. sæti í svigi í flokki sitjandi á Vetrarólympíumótinu í Sotsjí.
Erna Friðriksdóttir var ánægð eftir fyrri ferðina í svigi í flokki sitjandi á Vetrarólympíumótinu í Sotsjí.
Erna Friðriksdóttir, Ólympíumótsfari, ræsir fyrst í seinni ferðinni í svigi í sitjandi flokki á ÓL í Sotsjí.
Kynleiðréttingar íþróttamanna voru teknar fyrir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og heyrðu þeir í Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdarstjóri ÍSÍ.
Erna Friðriksdóttir keppir á morgun í svigi á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sotsjí en ekki á föstudaginn eins og áætlað var. Þetta kemur fram á heimasíðu Íþróttasambands fatlaðra.