
Suðvesturkjördæmi

Bjarni og Þórður búnir að segja af sér
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, og Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og verðandi framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hafa sagt af sér þingmennsku.

Utankjörfundaratkvæði dagaði uppi á bæjarskrifstofum Kópavogs
Póstsending sem innihélt tólf til fimmtán utankjörfundaratkvæði fór framhjá starfsmönnum afgreiðslu Kópavogsbæjar með þeim afleiðingum að atkvæðin voru ekki talin.

Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð
Jón Gunnarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, mun taka sæti á Alþingi, þar sem ljóst er orðið að Bjarni Benediktsson afsala sér þingmennsku þegar þing kemur saman. Hann segist ekki hafa leitt hugann að formannsframboði en útilokar ekkert.

Jón Gunnarsson kemur inn við brotthvarf Bjarna
Jón Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, mun geta tekið sæti á komandi þingi, nú þegar ljóst er að Bjarni Benediktsson mun ekki taka sæti.

Fjögur mál til landskjörstjórnar vegna alþingiskosninganna
Píratar í Suðvesturkjördæmi fara fram á í kæru sinni til landskjörstjórnar að alþingiskosningarnar verði gerðar ógildar. Formaður landskjörstjórnar segir að alls hafi tvö erindi og tvær kærur borist vegna kosninganna. Búist sé við að Alþingi fái umsögn um málin í næstu viku.

Sjálfstæðismenn í sérflokki hvað útstrikanir varðar
Langoftast var strikað yfir þau Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Bjarna Benediktsson í Suðvesturkjördæmi. Þau eru þau einu sem meira en þrjú prósent kjósenda lista strikuðu yfir í kjördæminu.

Úthluta þingsætum á morgun
Landskjörstjórn kemur saman til fundar á morgun, þriðjudaginn 10. desember, klukkan 11:00 til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar sem fóru fram þann 30. nóvember síðastliðinn.

Engin endurtalning í Kraganum
Niðurstaða skoðunar yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis á framkvæmd talningar eftir nýafstaðnar alþingiskosningar er sú að ekkert bendir til þess að framkvæmd talningar eða kjörfundar að öðru leyti hafi verið ábótavant. Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis telur því ekki þörf á endurtalningu eða frekari staðfestingu niðurstaðna kosninganna.

Allir í viðbragðsstöðu í Kaplakrika vegna endurtalningar
Æfingar barna og unglinga sem fara áttu fram í Kaplakrika, íþróttahúsi FH í Hafnarfirði, á morgun falla að óbreyttu niður vegna endurtalningar atkvæða. Framkvæmdastjóri FH staðfestir að beiðni hafi borist frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis vegna fyrirhugaðrar endurtalningar.

Fresta úthlutun þingsæta
Að beiðni yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi hefur landskjörstjórn ákveðið að fresta fundi til úthlutunar þingsæta sem halda átti á morgun. Ástæðan er meðal annars sautján utankjörfundaratkvæði sem þarf að úrskurða um.

Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu
Starfandi forseti Alþingis segir rangt að yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis geti ekki tekið afstöðu til beiðni um endurtalningu í kjördæminu líkt og formaður hennar hefur haldið fram.

Telja sig hvorki geta hafnað né samþykkt ósk um endurtalningu
Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis lítur svo á að hún geti hvorki hafnað né samþykkt beiðnir um endurtalningu atkvæða þar vegna breytinga sem voru gerðar á þingsköpum rétt fyrir kosningar. Fyrrverandi forseti Alþingis segir breytingunum ekki hafa verið ætlað að breyta verkefnum eða valdsviði yfirkjörstjórna.

Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum
Talningarmenn í Suðvesturkjördæmi hafa verið beiðnir um að vera á tánum. Gestur Svavarsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, segir í samtali við fréttastofu að það sé gert vegna umræðu um að það sé mjótt á munum í einhverjum kjördæmum.

Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut afgerandi bestu kosningu sína í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi formanns og varaformanns flokksins. Willum Þór Þórsson, sem var ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, datt út af þingi.

Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar bættu samtals við sig 24 þingsætum í alþingiskosningunum í gær á meðan ríkisstjórnarflokkar síðasta kjörtímabils guldu sameiginleg afhroð. Vinstri græn þurrkuðust út af þingi en Sjálfstæðisflokkur vann varnarsigur.

Stefnir í að VG þurrkist út af þingi
Vinstri grænir eru með talsvert minna fylgi en í síðustu kosningum 2021 og stefnir í að flokkurinn þurkkist út af þingi.

Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn
Ásmundur Einar Daðason og Willum Þór Þórsson, ráðherrar Framsóknar, segjast ekki vera stressaðir þó einungis annar þeirra, Willum, mælist inni þegar þetta er skrifað og þá mælist formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, heldur ekki inni. Ásmundur Einar segist stoltur af sínum verkum en segir ljóst að uppbyggingarstarf bíði félaga sinna í Framsókn.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum
Sjálfstæðisflokkurinn tapar aðeins tveimur prósentum í Suðvesturkjördæmi samkvæmt fyrstu tölum þaðan og heldur sínum fjórum mönnum inni á þingi. Samfylkingin stóreykur fylgið og nær sömuleiðis fjórum mönnum inn. Rúmlega sex prósent atkvæða detta niður dauð.

Um þriðjungur hefur kosið í flestum kjördæmum
Kjörsókn í Alþingiskosningunum mældist mest í Norðvesturkjördæmi klukkan þrjú en minnst í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir kosningabaráttuna hafa verið snarpa, fjörlega og skemmtilega. Það hafi verið gott að kjósa í dag, í loka hnykknum í baráttunni.

Kjósum breytingar og jákvæðni í þágu almennings og samfélags
Kjördagur er nú runninn upp og því mikilvægt að þú gerir tvennt í dag. Í fyrsta lagi að nýta kosningaréttinn þinn, því lýðræðið og rétturinn til að kjósa er ótrúlega dýrmætur og alls ekki sjálfgefinn eins og við eigum öll að vita.

Auðvelt val þótt hann geti ekki kosið sjálfan sig
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir valið hafa verið auðvelt á kjörstað í morgun, þó hann sé í þeirri skrítnu stöðu að geta ekki kosið sjálfan sig.

Kæru kjósendur í Suðvesturkjördæmi
Við þökkum fyrir samtalið undanfarnar vikur og í raun síðastliðin tvö ár. Við frambjóðendur höfum hlustað og Samfylkingin hefur hlustað.

Að standa vörð um þjóðina
Stjórnmálin standa á krossgötum á Íslandi og það eru viðbrögðin við stöðunni sem ráða framtíðinni. Komandi kosningar snúast um það hvert Ísland vilji stefna. Á öllum helstu mælikvörðum standa lífskjör hér á landi mjög framalega.

Sögulegt tækifæri til breytinga með Samfylkingunni
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, nýtur yfirburðatrausts hjá kjósendum til að leiða næstu ríkisstjórn sem forsætisráðherra. Þetta sýna kannanir. Til þess að það nái fram að ganga verður Samfylkingin að fá sterka kosningu á laugardaginn og verða stærsti flokkurinn að loknum kosningum.

Stórsigur fyrir lífeyrisþega
Fyrir rúmu ári voru fjárlög ársins 2024 til afgreiðslu á Alþingi Íslendinga. Að vana er þar að finna ýmis fylgirit og svokallaða bandorma þar sem gert er fullt af litlum lagabreytingum sem í mörgum tilfellum eru einungis tæknilegs eðlis. Það vildi þó svo til að í einum þessara bandorma var breyting sem var langt frá því að vera ómerkileg vísitöluuppfærsla. Ég á hér við breytingu sem átti að fella niður persónuafslátt hjá íslenskum lífeyrisþegum búsettum erlendis.

Sjálfstæðisflokkurinn – svarið fyrir fjölskyldur og ungt fólk
Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins, og það skiptir máli hver stjórnar þegar kemur að framtíð barna okkar. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja að ungt fólk og barnafjölskyldur fái stuðninginn sem þær þurfa til að blómstra í lífi og starfi.

Willum Þór – fyrir konur
Í tíð Willums Þórs Þórssonar sem heilbrigðisráðherra hefur hann unnið markvisst að kvenheilsumálum, sem hafa oft verið vanrækt í heilbrigðisumræðunni. Þrátt fyrir að kvenheilsa sé grundvallaratriði í lýðheilsu hafa þessi mál ekki fengið þá athygli sem þau eiga skilið.

Rödd friðar þarf að hljóma skærar
Í gær, 22. nóvember, voru 61 ár liðin frá því að John F. Kennedy var myrtur um hábjartan dag í Dallas. JFK var friðflytjandi sem talaði gegn vopnavæðingu, gegn herskárri útþenslustefnu hervelda, gegn afskiptum stórvelda af innanríkismálum annarra þjóða.

Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf
Ein af sérstöðum Íslands er gnægð náttúruauðlinda sem hægt er að nýta til framleiðslu endurnýjanlegar orku- eitthvað sem margar þjóðir öfunda okkur af. Við höfum jarðhita, vatnsorku og vindorku sem við gætum nýtt í mun meiri mæli en gert er í dag. Það er ákaflega mikilvægt er að tryggja orkuöryggi bæði almennings og atvinnugreina með því að auka framboð af endurnýjanlegri orku.