Efnahagsmál

Spá þúsund milljarða framkvæmdum á næstu þremur árum
Á næstu þremur árum er því spáð að framkvæmdir við opinbera innviði, atvinnuhúsnæði og íbúðir muni nema samtals rúmlega 1.000 milljörðum króna

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður óbreytta stýrivexti
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum

Glitnir greiðir tvo milljarða til ríkisins
Eignarhaldsfélagið Glitnir HoldCo, sem var stofnað eftir að slitabú Glitnis lauk nauðasamningum í árslok 2015, hefur gengið frá greiðslu upp á tvo milljarða króna til íslenska ríkisins.

Kaupþing getur keypt hlut ríkisins í Arion banka á um 23 milljarða
Ef Kaupþing nýtir sér kauprétt að 13% hlut ríkisins þarf félagið að greiða um 23 milljarða. Það jafngildir genginu 0,8 miðað við eigið fé bankans. Bréfin yrðu seld á sama gengi til lífeyrissjóða. Kaupþing vill svar frá sjóðunum fyrir helgi.

Konur í forystu í einungis ellefu prósentum fyrirtækja hér á landi
Á sama tíma voru tveir ef hverjum þremur nemendum sem útskrifuðust úr HÍ og HR í fyrra konur en einungis þriðjungur karlar.

Veðlán til sjóðsfélaga hafa farið úr níu milljörðum í 132 milljarða
Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem fjallaði um umsvif lífeyrissjóðanna í íslensku efnahagslífi.

Vill draga úr umsvifum lífeyrissjóða í íslensku efnahagslífi
Starfshópur um hlutverk lífeyrissjóða í atvinnulífinu leggur til að sjóðirnir auki fjárfestingar sínar í útlöndum og að almenningur fái auknar heimildir til að nýta iðgjöld til greiða niður húsnæðislán. Formaður hópsins segir nauðsynlegt að draga úr umsvifum sjóðanna hér á landi.

Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík
Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar.

Hægðist mjög á fjölgun ferðamanna
Samtals fjölgaði erlendum ferðamönnum hér á landi um 24 prósent milli ára, en árið á undan því var fjölgunin 40 prósent.

Færist ofar á lista Forbes og er nú metinn á 185 milljarða
Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir, tók stökk á milli ára á lista Forbes yfir milljarðamæringa og eru eignir hans nú metnar á 1,8 milljarð Bandaríkjadala, eða rúmlega 185 milljarða króna. Situr hann í 1.161 sæti og er eini Íslendingurinn þar.

Gjaldeyrisforði minnkaði og krónan veiktist um 0,7 prósent
Gengi krónunnar veiktist um 0,7 prósent frá upphafi og til loka 2017 og dróst velta á millibankamarkaði saman um 42 prósent frá fyrra ári. Þá minnkaði gjaldeyrisforði vegna uppgreiðslu á erlendum lánum ríkissjóðs og kaupa á aflandskrónueignum.

Þúsund efnamestu eiga nær allt
Þúsund eignamestu einstaklingarnir í íslensku viðskiptalífi eiga nærri allt eigið fé einstaklinga í íslenskum fyrirtækjum, eða yfir 98 prósent.

Vöruskiptahalli aldrei meiri í krónum talið
Vöruskiptahalli var 172 milljarðar í fyrra en samt er útlit fyrir um 100 milljarða viðskiptaafgang. Innflutningur neysluvara hefur aukist mikið. Hagfræðingur segir aukna skuldsetningu heimila aðeins skýra hluta af vexti einkaneyslu.

Borgin greiðir 14,6 milljarða til Brúar lífeyrissjóðs
Reykjavíkurborg greiddi Brú lífeyrissjóði 14,6 milljarða króna undir lok síðasta árs til að gera upp áfallnar lífeyrisskuldbindingar upp á 3,5 milljarða og áætlaðar framtíðarskuldbindingar upp á 10 milljarða. Þá var lagt framlag í varúðarsjóð upp á einn milljarð.

Nítján milljarða greiðsla ríkissjóðs inn á lífeyrisskuldbindingar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti í dag samkomulag við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR) um framsal eigna fyrir 19 milljarða króna. Framsalið er gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2017 sem Alþingi samþykkti 30. desember síðastliðinn.

Atvinnuleysi 1,7 prósent
Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,2 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7 prósent í nóvember.

Fjölmenningarlegt samfélag að rísa á Suðurnesjum
Samkvæmt spám verða íbúar Suðurnesja helmingi fleiri eftir aðeins þrettán ár. Þar sem manna þarf fjölmörg ný störf gerir Reykjanesbær ráð fyrir fjölda útlendinga í bæinn og nýju fjölþjóðlegu samfélagi.

Fjármálaráðherra: Ríkissjóður hefur aldrei tekið lán á hagstæðari kjörum
Íslenska ríkið hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði 61,5 milljarði íslenskra króna, sem bera 0,5 prósent fasta vexti og eru gefin út til fimm ára á ávöxtunarkröfunni 0,56 prósent.

Óbreyttir stýrivextir
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25%.

Seðlabankastjóri: Búum við þá blessun að vera ekki með "óheyrilega lága vexti“
Raunhæft er að langtímavextir lækki enn frekar, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Íslendingar búi samt sem betur fer við þá "blessun“ að vera ekki með jafn lága vexti og í viðskiptalöndum okkar. Svigrúm til að lækka eigið fé bankanna minna en af er látið.

Gylfi Zoëga kemur fjármálaráðherra til varnar í Stóra-seðlamálinu
Gylfi segist skilja hugmyndina sem liggur að baki tillögunni og ver ráðherrann og hugmyndina í nýrri grein sem hann skrifar í tímaritið Vísbendingu.

Krónan flýtur í svikalogni
Krónan heldur áfram að styrkjast gagnvart helstu gjaldmiðlum. Forsvarsmenn atvinnulífsins hafa þungar áhyggjur

Tugir starfsmannaleiga og erlendra verktakafyrirtækja með starfsfólk á Íslandi
Þensla ríkir á íslenskum vinnumarkaði og hefur atvinnuleysi ekki verið minna frá því löngu fyrir hrun.

„Súrnun sjávar ógnar efnahag Íslands“
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent frá sér ályktun varðandi súrnun sjávar.

Ingólfur og Hreiðar sæta áfram farbanni
Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð héraðsdóms yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi. Kvöldið áður staðfesti Hæstiréttur farbann yfir Hreiðari Má Sigurðssyni. Samkvæmt úrskurðunum er þeim óheimilt að yfirgefa landið þangað til 28. maí.

Hilton-keðjan velur íslenskt
Hótelkeðjan Hilton Worldwide hefur ákveðið að íslenska flöskuvatnið Icelandic Glacial verði í hávegum haft á meira en 750 hótelum sínum um víða veröld.

Seðlabankinn stígur ný skref eftir efnahagshrunið
Forsendur skapast til að draga úr gjaldeyrishöftum og lækka stýrivexti frekar í kjölfar samkomulags Seðlabanka Íslands og Lúxemborgar um kaup á íslenskum skuldabréfapakka sem setið hefur fastur ytra frá falli gamla Landsbankans í október 2008. Már Guðmundsson seðlabankastjóri undirritaði samninginn ásamt Yves Mersch, kollega sínum í Lúxemborg, í gær.

Efnaðir geta valið sér lyf en fátækir ekki
Það kerfi sem heilbrigðisyfirvöld hafa sett á laggirnar til að ákveða hvaða lyf eru niðurgreidd í hverjum flokki hefur þegar leitt til mismununar í heilbrigðiskerfinu, segir Olgeir Olgeirsson, framkvæmdastjóri Portfarma.

Ævisparnaður hjá Kaupþingi varð að fimm þúsund krónum
Stór hluti starfsfólks gamla Kaupþings tapaði svo gott sem öllum viðbótarlífeyrissparnaði sínum sem það átti í séreignarsjóði Kaupþings fyrir starfsmenn. Sjóðurinn fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Í lok september 2008 voru í sjóðnum tveir milljarðar króna. Þegar skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók lyklavöldin yfir í Kaupþingi í annarri viku október 2008 varð viðbótarlífeyrissparnaðurinn að engu.

Stjórnvöld vilja stytta leigutíma Magma á auðlindum
Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur eignast 98,53 prósenta hlut í HS Orku. Sænskt dótturfélag þess keypti hlut Geysis Green Energy í fyrirtækinu. Stjórnvöld höfðu óskað eindregið eftir því að beðið væri með undirskrift þar til eftir ríkisstjórnarfund í dag, ekki var orðið við þeirri ósk.