Efnahagsmál
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 69 ›
Lagði til frumlega leið til að draga úr upplýsingaóreiðu Jakob Birgisson grínisti lagði orð í belg í Íslandi í dag á miðvikudaginn var um þau alvarlegu tíðindi að verðbólguvæntingar fari þrátt fyrir alla viðleitni Seðlabankans enn versnandi. Lífið 28.2.2023 08:26
Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 27.2.2023 22:42
Efling vill að stjórnvöld þrýsti SA að samningaborðinu Efling krefst þess að stjórnvöld þrýsti á Samtök atvinnulífsins að draga boðað verkbann samtakanna til baka. Félagið boðaði til fjölmenns samstöðufundar í dag og hafði síðan uppi mótmæli við forsætisráðuneytið og Alþingi. Innlent 23.2.2023 19:56
Samstöðufundur Eflingar í Iðnó í hádeginu Verkbann Samtaka atvinnulífsins á félaga í Eflingu mun hafa víðtæk áhrif á nánast hvert einasta fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Efling boðar til samstöðufundar í Iðnó í hádeginu og mótmælagöngu þar á eftir. Félagar í Eflingu hafa nú þegar orðið af um 130 til 212 þúsund króna launahækkun. Innlent 23.2.2023 11:33
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 22.2.2023 22:45
„Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“ Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar. Lífið 21.2.2023 09:16
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Sólveig Anna segir aðgerðir Eflingar hafa skilað árangri Forystufólk Eflingar og Samtaka atvinnulífsins kom nokkuð jákvætt til leiks hjá ríkissáttasemjara í morgun í upphafi þriggja daga samningalotu í skjóli frá verkfallsaðgerðum og vona að þessir dagar dugi til að komast langt. Formaður Eflingar segir aðgerðir félagsins hafa skilað árangri. Innlent 17.2.2023 11:57
Segir að þetta hús lyfti upp norðanverðum Vestfjörðum Stærsta og afkastamesta laxvinnsla landsins rís núna í Bolungarvík á vegum Arctic Fish og á hún að taka til starfa í júní. Ráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að bara á síðari helmingi þessa árs verði unninn þar lax fyrir yfir fimmtán milljarða króna. Viðskipti innlent 16.2.2023 23:40
Bæjarstýran hlýtur að vera ánægð að fá hafnargjöldin Mikil umsvif hafa verið í Ísafjarðarhöfn og Dýrafirði undanfarnar vikur í kringum norskt fiskvinnsluskip, sem fengið var tímabundið til Vestfjarða til laxaslátrunar. Útflutningsverðmæti afurðanna úr þessu eina verkefni nemur þremur og hálfum til fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 15.2.2023 22:42
Verðbólga og aðrir uppvakningar Kerfisumbætur eru á forræði hins opinbera og gætu lagt lóð á vogarskálarnar til að ná tökum á verðbólgunni. Á alþjóðavettvangi hefur verið vaxandi umræða um kerfisumbætur á framboðshliðinni til að leysa úr læðingi krafta hagkerfisins. Markmið nýrrar framboðsstefnu beinist að því að sameina hina hefðbundnu áherslu á að draga úr hömlum á atvinnulífinu, en leggja á sama tíma kraft í félagslega þætti vinnumarkaðarins til að efla atvinnu og atvinnuöryggi. Umræðan 9.2.2023 14:25
Fjármálaráðherra segir Seðlabankann hafa vanmetið verðbólguna Fjármálaráðherra segir Íslendinga vera að taka út lífskjör sem ekki væru langtíma forsendur fyrir sem birtist meðal annars í mikilli einkaneyslu. Seðlabankinn sitji sennilega uppi með að hafa hækkað vexti of hægt og vanmetið verðbólguna of oft. Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina stinga höfðinu í sandinn og hún bjóði ekki upp á neinar aðgerðir gegn verðbólgunni. Innlent 9.2.2023 12:08
Óskiljanlegar boltalíkingar ekki Seðlabankanum sæmandi Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gerir athugasemdir við röksemdir Seðlabankans fyrir vaxtahækkunum. Það standist ekki skoðun að nýgerðir kjarasamningar séu ástæða hækkunar, þar sem seðlabankastjóri hafi lýst ánægju með þá fyrir skömmu. Viðskipti innlent 8.2.2023 19:43
Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda. Lakari horfur í efnahagsmálum stafi einkum af meiri launahækkunum en reiknað hefði verið með, gengissigi krónunnar og minna aðhalds í fjárlögum. Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir í 6,5 prósent í morgun og hafa ekki verið hærri í tæp þrettán ár. Viðskipti innlent 8.2.2023 12:03
Íslenska hvalkjötið komið í höfn í Japan Norska flutningaskipið Silver Copenhagen kom til hafnar í Japan í morgun eftir sjö vikna siglingu frá Íslandi. Farmurinn var 2.576 tonn af frystum hvalaafurðum. Innlent 8.2.2023 09:49
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 6,5 prósent. Viðskipti innlent 8.2.2023 08:31
Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Innlent 6.2.2023 21:50
Seðlabankinn í klemmu milli þess að sýna festu eða yfirvegun Meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 50 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Skiptar skoðanir eru á því hvort bankinn eigi að sýna yfirvegun eða festu í því að hemja þensluna í hagkerfinu. Innherji 6.2.2023 09:20
SA segja stöðuna í kjaradeilunni skelfilega Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skelfilegt að verið sé að boða til enn frekari verkfalla á sama tíma og málaferli standi yfir bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi. Hann og formaður Eflingar eru hins vegar bæði viss um sigur fyrir Félagsdómi þar sem málflutningur fór fram síðdegis. Innlent 3.2.2023 19:30
Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar. Viðskipti innlent 3.2.2023 10:54
Efling vill að skipaður verði nýr sáttasemjari Formaður Eflingar segir félagið ekki treysta ríkissáttasemjara til að leiða frekari viðræður við Samtök atvinnulífsins og vill að nýr einstaklingur verði fundinn í hans stað. Félagið gafst einnig upp á biðinni eftir úrskurði vinnumarkaðsráðherra á stjórnsýslukæru vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara og kærði tillöguna til Héraðsdóms í dag. Innlent 2.2.2023 19:30
Ekki innistæða fyrir gagnrýni á Seðlabankann Fjármálaráðherra segir ekki hægt að kenna gjaldahækkunum ríkissjóðs um áramótin um aukna verðbólgu eins og Neytendasamtökin og fleiri hafa gert. Allir þurfi að horfast í augu við raunveruleikann og standa með Seðlabankanum og öðrum sem gripið hafi til aðgerða til að ná verðbólgunni niður. Innlent 1.2.2023 19:22
Spá að verðbólga hjaðni um tæp sjö prósent á næstu tveimur árum Verðbólga mun hjaðna úr þeim tæpum 10 prósent sem hún nemur núna niður í 2,8 prósent árið 2025 gangi ný Þjóðhagsspá Íslandsbanka eftir. Þá spáir greiningardeild bankans að atvinnuleysi muni standa í stað á árinu. Viðskipti innlent 1.2.2023 10:03
Verðbólga í boði Stjórnvalda og Seðlabankans Nú liggur fyrir að helsti drifkraftur verðbólgu, sem nú mælist, eru gjaldskrárhækkanir hins opinbera og stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Skoðun 31.1.2023 16:30
Sólveig Anna vonar að SA komist niður á jörðina Formaður Eflingar vonar að niðurstaða atkvæðagreiðslu um verkföll á sjö hótelum sem og nýboðaðar viðbótaraðgerðir verði til þess að koma Samtökum atvinnulífsins niður á jörðina. Eflingarfólki sé alvara með að samið verði við það á þeirra forsendum en því ekki gert að þiggja mylsnu af borði annarra. Innlent 31.1.2023 13:41
Væntingar um 50 punkta vaxtahækkun farnar að myndast Sérfræðingar á skuldabréfamarkaði eru byrjaðir að gera ráð fyrir 50 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í febrúar. Verðbólgan er orðin víðtæk, krónan hefur átt erfitt uppdráttar og einkaneysla verður líklega meiri en spár Seðlabankans hafa gert ráð fyrir. Innherji 31.1.2023 13:30
Verðbólgukippur í boði hins opinbera kúvendir ekki horfunum Megnið af hækkun vísitölu neysluverðs í janúar má rekja til gjaldskrárhækkana hins opinbera en verðbólgumælingin setur þrýsting á peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hækka vexti enn frekar. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í bréfi sem Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, sendi á viðskiptavini í dag. Innherji 30.1.2023 15:58
Verðbólga mælist 9,9 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða er enn á uppleið. Mælist hún nú 9,9 prósent en stóð í 9,6 prósent í síðasta mánuði og 9,3 próent í mánuðinum þar á undan. Viðskipti innlent 30.1.2023 09:16
Ríkissáttasemjari vísar deilu um kjörskrá Eflingar til héraðsdóms Ríkissáttasemjari hefur óskað eftir liðsinni Héraðsdóms til að fá kjörskrá Eflingar afhenta í tengslum við atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins. Fjölmenn stéttarfélög opinberra starfsmanna og stjórn Starfsgreinasambandsins hafa ályktað gegn framlagningu miðlunartillögu og segja hana grafa undan rétti stéttarfélaga. Innlent 27.1.2023 18:31
Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu í algjöru uppnámi Ríkissáttasemjari segir engan lagalegan vafa leika á um skýra heimild hans til að leggja fram miðlunartillögu og aðgang hans að kjörskrá Eflingar. Efling ætlar ekki að afhenda Advania fyrir hönd ríkissáttasemjara félagatal sitt svo hægt verði að framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans. Innlent 27.1.2023 12:21