Bandaríkin

Stöðvaður með stærðarinnar naut í farþegasætinu
Lögreglunni í Norfolk í Nebrasaka barst í gær tilkynning um mann sem var að keyra niður þjóðveg með „kú í bílnum,“ eins og það var orðað. Þegar umræddur maður var stöðvaður kom í ljós að hann var með stórt Watusi naut í farþegasætinu.

Fraus aftur í miðri setningu
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi.

Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum
Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna.

Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna
Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik.

Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks
Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit.

Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui
Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna.

Kanada gefur út viðvörun vegna ferða hinsegin fólks til Bandaríkjanna
Stjórnvöld í Kanada hafa gefið út ferðaviðvörun til hinsegin fólks sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan eru ný lög og reglur í sumum ríkjum Bandaríkjanna, sem gætu mögulega haft áhrif á hinsegin ferðalanga.

Fellibylurinn Idalia ógnar íbúum Flórída
Íbúar Flórída í Bandaríkjunum búa sig nú undir að fellibylurinn Idalia nái að strönd ríkisins.

Hafi orðið heyrnarlaus af of miklu Viagra áti
Hugh Hefner, stofnandi, útgefandi og aðalritstjóri Playboy-tímaritsins varð heyrnarlaus á öðru eyra af því að hann tók of mikið af stinningarlyfinu Viagra. Þetta segir Crystal Hefner, ekkja ritstjórans.

Reiði beinist að DeSantis
Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina.

Kettir Ásu fjarlægðir og komið fyrir í „dauðaathvarfi“
Lögreglan í New York-ríki Bandaríkjanna tók tvo ketti Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, og kom þeim fyrir á dýraathverfi þar sem dýrin eru drepin finni þau ekki nýjan eiganda. Heuermann er grunaður raðmorðingi, en það var í húsleit lögreglu á heimili hans og Ásu þar sem kettirnir voru fjarlægðir.

„Almenningur á rétt á að þetta mál sé tekið fyrir hratt og örugglega“
Réttarhöldin í máli sérstaks saksóknara dómsmálaráðuneytisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, munu hefjast þann 4. mars á næsta ári. Þetta er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og tveimur sem Jack Smith, áðurnefndur saksóknari, hefur höfðað gegn honum.

Græddi tæpan milljarð á fangamyndinni
Myndin sem tekin var af Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann gaf sig fram í Fulton sýslu á fimmtudag, hefur með varningssölu skilað 7,1 milljón Bandaríkjadala í kosningasjóð Trump.

Myrti þrjá svarta með riffli skreyttum hakakrossum
Ungur bandarískur karlmaður myrti þrjár svartar manneskjur í verslun í Jacksonville í Flórída í gær áður en hann svipti sig lífi. Lögreglan í borginni segir skotárásina hafa verið hatursglæp framinn vegna haturs mannsins á svörtu fólki.

Fjórir látnir eftir skotárás í Flórída
Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir skotárás í verslun í Jacksonville í Flórída í dag. Ekki er búið að nafngreina skotmanninn en hann ku vera látinn og hafði ritað stefnuyfirlýsingu um áætlanir sínar áður en hann framkvæmdi árásina.

Sjónvarpsþáttakynnirinn Bob Barker látinn
Bob Barker, sem var þáttastjórnandi The Price is Right í 35 ár, er látinn, 99 ára að aldri. Hann lést af náttúrulegum orsökum á heimili sínu í dag.

Reyndi að brjótast út eins og fórnarlamb hans
Karlmaður, sem sakaður er um að hafa rænt konu og haldið henni fanginni í klefa á heimili hans í Oregon í Bandaríkjunum, reyndi að brjótast út úr fangelsi á fimmtudagskvöld. Lögregla gómaði manninn eftir að konunni tókst að brjóta niður hurð klefans með berum höndum.

Kelis hristir mjólkurhristingana ei meir fyrir Murray
Ástarsambandi Hollywood-leikarans Bill Murray og söngkonunnar Kelis er lokið eftir aðeins tvo mánuði.

Kevin Hart í hjólastól og segist heimskastur í heimi
Kevin Hart segist vera illa farinn eftir að hafa slasað sig í spretthlaupi með fyrrverandi NFL leikmanninum Stevan Ridley. Hann kveðst vera heimskasti maður í heimi en hann notar hjólastól tímabundið vegna meiðslanna.

Óvíst að upplýsingar um þyngd og hæð séu réttar
Óvíst er að upplýsingar um þyngd og hæð Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem skráðar voru þegar hann gaf sig fram í fangelsinu í Fulton-sýslu í Atlanta í gær séu réttar, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post.

Trump handtekinn í tugthúsinu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið formlega handtekinn í Fulton-sýslu í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar hefur hann og átján bandamenn hans verið ákærðir vegna tilrauna þeirra til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020.

Stuðningsmenn Trumps bíða við fangelsið í Fulton-sýslu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun gefa sig fram við lögreglu í Fulton-sýslu í Georgíu í kvöld. Mikill fjöldi stuðningsmanna forsetans hefur þegar komið sér fyrir við fangelsið þar sem Trump ætlar að gefa sig fram á tólfta tímanum í kvöld.

Isavia sótti 25 milljarða króna til bandarískra fjárfesta
Isavia hefur gefið út skuldabréf í lokuðu útboði að fjárhæð 175 milljóna evra til bandarískra fjárfesta. Það jafngildir rúmum 25 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða fyrstu skuldabréfaútgáfu Isavia.

Flestir frambjóðendur myndu styðja Trump þrátt fyrir sakfellingu
Aðeins einn frambjóðandi í forvali Repúblikana sagðist ekki munu styðja framboð Donalds Trump til forseta Bandaríkjanna þrátt fyrir að hann yrði sakfelldur í einhverju af málunum fjórum sem höfðuð hafa verið á hendur honum. Allir frambjóðendur nema Trump, sem er með mikið forskot í skoðanakönnunum, mættust í kappræðum í gærkvöldi.

Óttast að móðir þeirra hafi verið síðasta fórnarlambið
Ættingjar og vinir konu sem hefur verið saknað um árabil óttast að hún hafi verið fórnarlamb Rex Heuermann, sem er grunaður um að myrða fjölda kvenna. Lögreglan vestanhafs rannsakar nú hvort mál konunnar og Heuermann tengist, og þá hvort hún hafi verið síðasta fórnarlamb hans.

Starfsmaður Trumps dró framburð sinn til baka eftir að hann skipti um lögmann
Starfsmaður í Mar-a-Lago, heimili og sveitaklúbbi Donalds Trump í Flórída, dró vitnisburð sinn í einu af fjórum sakamálum gegn Trump til baka. Það gerði hann eftir að hann skipti um lögmann og hefur hann bendlað Trump og tvo aðstoðarmenn hans við að reyna að hindra framgang réttvísinnar.

Sagði lögregluþjónum að hunskast út degi áður en hún lést
Hin 98 ára gamla Joan Meyer var verulega ósátt við lögregluþjóna sem framkvæmdu húsleit heima hjá henni og syni hennar fyrr í mánuðinum. Myndband úr öryggismyndavél sýnir að Meyer var í uppnámi þegar lögregluþjónarnir réðust til atlögu og krafðist hún þess á einum tímapunkti að lögregluþjónarnir hunskuðu sér út en hún lést degi síðar.

Dýrustu sprengjuþoturnar í lágflugi með tilheyrandi látum
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorninu fengu að kynnast látunum sem fylgja B-2 sprengjuflugvélum eftir hádegið í dag.

Segja Bankman-Fried lifa á vatni og brauði í tugthúsinu
Verjandi Sam Bankman-Fried, stofnanda fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, sagði að hann lifði aðeins á vatni og brauði í fangelsi vegna þess að honum væri ekki boðið upp á veganfæði þar. Bankman-Fried neitaði sök þegar saksóknarar lögðu fram uppfærða ákæru á hendur honum í dag.

Hilary lék Kaliforníu grátt
Óveðrið Hilary sem skall á Kaliforníu og Mexíkó í morgun lék svæðið grátt. Gífurleg rigning fylgdi óveðrinu sem leiddi til flóða og aurskriða. Hilary stefnir nú til norðurs en þrátt fyrir að óveðið hafi misst mikinn kraft er enn óttast að því geti fylgt hættuleg og mannskæð flóð.