
Bandaríkin

Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir stórstjörnuna Taylor Swift ekki lengur vera „heita“. Forsetinn vakti athygli á þessu á samfélagsmiðli sínum í dag og spurði hvort einhver hefði tekið eftir því að það væri hans vegna sem þessi breyting hefði átt sér stað.

Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á
Justin Bieber hefur nú opinberlega staðfest að hann sé ekki meðal þeirra sem hafa sakað Sean „Diddy“ Combs um kynferðisbrot. Réttarhöld yfir Diddy hófust í síðustu viku og standa enn yfir.

Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum
James B. Comey, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið sakaður um að kalla eftir því að Donald Trump, forseti, verði myrtur. Yfirmaður leyniþjónustumála segir að Comey ætti að vera í fangelsi en ásakanirnar eru til komnar vegna myndar af skeljum sem Comey birti á Instagram í gær, fimmtudag.

Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár
Fyrstu beinu friðarviðræðurnar í rúm þrjú ár á milli fulltrúa Rússlands og Úkraínu fara fram í Tyrklandi í dag. Takmarkaðar væntingar ríkja um árangur viðræðnanna, en hvorki Pútín Rússlandsforseti né Selenskí Úkraínuforseti taka beinan þátt í viðræðunum. Trump Bandaríkjaforseti segist vilja hitta Pútín eins fljótt og hægt er.

Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns
Læknar á sjúkrahúsi í Georgíu í Bandaríkjunum hafa sagt aðstandendum heiladauðrar konu að þeir þurfi að halda henni í öndunarvél nógu lengi til þess að hægt sé að koma fóstri sem hún gekk með í heiminn. Ástæðuna segja þeir stranga þungunarrofslöggjöf í ríkinu.

Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum
Ísland hefur alla burði til að geta orðið fyrirmyndaríki í heiminum með innleiðingu á áfallamiðaðri nálgun í fangelsismálum. Þetta segir framkvæmdastjóri Compassion Prison Project sem hefur heimsótt öll fjögur fangelsi landsins.

Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy
Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, hefur í dag þurft að svara spurningum lögmanna Diddy, eftir að hafa svarað saksóknurum síðustu tvo daga. Lögmennirnir hafa meðal annars látið hana lesa upp kynferðisleg skilaboð sem hún sendi á Diddy í gegnum árin.

Joe Don Baker látinn
Bandaríski leikarinn Joe Don Baker, sem lék meðal annars tvær ólíkar persónur í kvikmyndum um breska njósnarann James Bond, er látinn, 89 ára að aldri.

Yfirmaður herafla NATO á Íslandi
Christopher Cavoli, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (SACEUR), heimsótti Ísland í vikunni. Hér fundaði hann meðal annars með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra.

Vill gera Gasa að „frelsissvæði“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í morgun vilja gera Gasaströndina að „frelsissvæði“. Það gæti gerst ef Bandaríkin myndu taka yfir stjórn svæðisins, eins og hann hefur áður talað um.

Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna
Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag kemst ekki inn í tölvupóstinn sinn og bankareikningar hans hafa verið frystir vegna refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar. Félagasamtök hafa hætt að vinna með dómstólnum og starfsmenn hans eiga yfir höfði sér handtöku ef þeir ferðast til Bandaríkjanna.

Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er ekki á leið til Tyrklands á fund Volodímír Selenskí en hinn síðarnefndi bauð honum til friðarviðræðna í eigin persónu í Instanbul á morgun.

Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp
Einn fjögurra klettaklifrara sem féllu rúmlega hundrað metra til jarðar gekk og ók í að minnsta kosti hálfan sólarhring, í myrkri, með höfuðáverka og innvortis blæðingar, svo hann gæti kallað eftir aðstoð. Hinir þrír létu lífið í fallinu um helgina.

Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar
Donald Trump og fjölskylda hans eiga í umfangsmiklum viðskiptum í Mið-Austurlöndum og vill forsetinn þar að auki taka við lúxusþotu í gjöf frá konungsfjölskyldu Katar. Flugvélin er metin á um 53 milljarða króna. Hann hefur brugðist reiður við gagnrýni á gjöfina og segist ekkert vita um viðskipti sona sinna á svæðinu.

Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð
Nærri því hálfri öld eftir að Jeanette Ralston fannst látin í bíl sínum í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur 69 ára maður verið handtekinn og ákærður fyrir að myrða hana. Það var eftir fingrafar sem tekið var árið 1977, af sígarettukartoni, var greint á nýjan leik.

Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn
Bandaríski leikstjórinn Robert Benton, sem leikstýrði meðal annars Óskarsverðlaunamyndinni Kramer vs. Kramer og skrifaði handritið að Bonnie and Clyde, er látinn. Hann varð 92 ára.

Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“
Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, bar í gær vitni í réttarhöldunum gegn tónlistarmanninum umdeilda. Þar sagði hún meðal annars frá ofbeldi sem hann beitti hana, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, og að hann hafi þvingað hana til að taka þátt í dagalöngum kynlífspartíum.

Íslenskt sund í New York
Þrír ungir Íslendingar í New York eru að vinna að því að opna baðstað að íslenskri fyrirmynd á Manhattan í New York undir merkjunum Sund. Allt það helsta sem finna má í íslenskum sundlaugum og landsmenn kunna að meta verður í boði, nema sjálf sundlaugin.

Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti í morgun Ahmed al-Sharaa bráðabirgðaforseta Sýrlands, á fundi í Sádi-Arabíu.

Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn
Dómari í Los Angeles hefur stytt dóm yfir Menendez bræðrunum sem nú afplána lífstíðardóm fyrir að hafa myrt foreldra sína árið 1989 í Beverly Hills. Vegna þess að dómurinn var styttur eiga þeir nú möguleika á því að sækja um reynslulausn sem þeir gátu ekki gert á meðan þeir afplánuðu lífstíðardóm.

Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps
Þingmenn Repúblikanaflokksins lögðu í gær fram gífurlega umfangsmikið lagafrumvarp um skattheimtu og málefni innflytjenda. Frumvarp þetta felur í sér skattalækkanir, fjármagnaðar með niðurskurði innan velferðarkerfisins og á grænum verkefnum og með því að fella úr gildi niðurfellingu Joes Biden á námslánum.

Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín
Í fleiri löndum heimsins ríkir jákvæð sýn gagnvart Kína en til Bandaríkjanna og algjört hrun hefur orðið á ímynd Bandaríkjanna á heimsvísu frá því í fyrra. Þá mælist ímynd Donalds Trump Bandaríkjaforseta neikvæð í 82% landa um allan heim, en ímynd bæði Pútíns Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína mælist betri á heimsvísu.

Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli
Málverk sem danskur listamaður málaði af því hvernig Nuuk gæti litið út ef Donald Trump nær að taka yfir Grænland hefur vakið mikla athygli. Eftirprentanir af myndinni voru til sölu í Nuuk á sama tíma og Friðrik Danakonungur heimsótti höfuðstað Grænlands fyrir tveimur vikum. Greinarhöfundur bandaríska stórblaðsins Wall Street Journal segir myndina dæmi um það hvernig yfirlýsingar Trumps hafa slegið til baka.

Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“
Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur undirbúið lögfræðiálit um að forseti þeirra megi þiggja lúxusþotu sem er metin á milljarða króna að gjöf frá emírnum í Katar þrátt fyrir að stjórnarskrá banni að forseti taki við gjöfum eða mútum frá erlendum ríkjum. Forsetinn sjálfur er áfjáður í að þiggja þotuna.

Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið
Bandaríkin og Kína hafa komist að samkomulagi í tollastríði landanna. Eftir samningaviðræður sem fram fóru í Sviss alla helgina er niðurstaðan sú að lækka ofurtollana sem komnir voru á innflutning á milli landanna um 115 prósent næstu níutíu dagana.

Hækkanir á Asíumörkuðum
Nokkrar hækkanir urðu á Asíumörkuðum í nótt en svo virðist sem fjárfestar bindi vonir við að samningaviðræður Bandaríkjanna og Kína um tolla og innflutning muni skila árangri og lægja ófriðaröldurnar sem dunið hafa á fjármálakerfum heims.

Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps
Kínverskir embættismenn hafa sífellt meiri áhyggjur af áhrifum tolla Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, á hagkerfi þeirra. Einnig hafa þeir áhyggjur af aukinni einangrun þeirra á alþjóðasviðinu þar sem viðskiptafélagar þeirra eiga í viðræðum við Bandaríkjamenn.

Vilja leggja réttarríkið til hliðar
Embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, eru að skoða leiðir til að leggja rétt fólks á vernd gegn fangelsun án dóms og laga til hliðar. Það vilja þeir gera svo auðveldara verði fyrir þá að flytja fólk sem sakað er um að vera í Bandaríkjunum ólöglega úr landi.

„Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið
Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst.

Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt.