Bandaríkin

Pompeo frestar ferð til Úkraínu vegna átaka í Írak
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur ákveðið að fresta ferð sinni til Úkraínu og fjögurra annarra ríkja vegna árásar sem gerð var á sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad í Írak.

David Stern látinn
David Stern, fyrrum yfirmaður NBA-deildarinnar til þrjátíu ára, er látinn en NBA-deildin greindi frá þessu nú undir kvöld.

Drónar komu í stað flugelda í Sjanghæ
Ríflega milljón manns söfnuðust saman á Times-torgi í New York á miðnætti og fylgdust með kristalskúlunni frægu falla. K

Fórnarlamb sveðjuárásar gæti verið lamað það sem eftir er ævinnar
Maður sem var særður í árás á heimili rabbína í Bandaríkjunum þann 29. desember síðastliðinn er talinn hafa hlotið varanlegan heilaskaða og gæti verið lamaður að hluta það sem eftir er ævinnar.

Höfuðlaust lík reyndist af morðingja á flótta
Líkið fannst árið 1979.

Vita ekki enn af hverju maður hóf skothríð í kirkju í Texas
Árásarmaðurinn var skotinn til bana af sjálfboðaliða í varðsveit kirkjunnar. Sá vinnur við að kenna fólki á skotvopn.

Reyndu að fá Trump til að skipta um skoðun á Úkraínu
Ákvörðun Trump forseta um að stöðva aðstoð til Úkraínu olli titringi og togstreitu innan ríkisstjórnar hans í sumar og haust. Tveir ráðherrar og þjóðaröryggisráðgjafi reyndu að tala um fyrir honum en án árangurs.

Boðar frekari aðgerðir vegna tíðra árása á gyðinga
Borgarstjóri New York borgar hefur tilkynnt um ýmis úrræði sem ætlað er að takast á við það sem hann kallar neyðarástand þegar kemur að árásum á gyðinga í borginni.

Mátti vart tæpara standa í flughálku á jóladag
Það mátti vart tæpara standa þegar ökumaður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum í hálku er hann ók eftir hraðbraut í Alaska í Bandaríkjunum á jóladag.

Skotárás í kirkju í Bandaríkjunum
Tveir létust og einn er alvarlega særður eftir skotárás í kirkju í Fort Worth í Texas-ríki í Bandaríkjunum.

Bandaríkjamenn sameinist gegn gyðingaandúð
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt samlanda sína til þess að sína samstöðu í kjölfar stunguárásar á heimili rabbína í New York-fylki í gær.

Gagnrýndur fyrir að endurtísta tíst með nafni meints uppljóstrara
Donald Trump sætir nú mikilli gagnrýni af hálfu leiðtoga Demókrata og fleiri eftir að hann endurtísti tíst sem innihélt nafn meints uppljóstrara, kvörtun hvers leiddi til ákæruferlis þingsins gegn forsetanum.

Læknir sakaður um 25 morð kærir vinnuveitendur fyrir meiðyrði
Læknir sem sakaður er um að hafa valdið dauða 25 sjúklinga með því að fyrirskipa að þeim yrði gefinn of stór skammtur af verkjalyfjum hefur kært sjúkrahúsið fyrir meiðyrði.

Fjöldamorð aldrei verið skráð fleiri í Bandaríkjunum
Alls voru skráð 41 atvik sem flokkast sem fjöldamorð þar sem alls 211 týndu lífi.

Fimm særðir eftir sveðjuárás á heimili rabbína í New York
Gestir höfðu safnast saman til að fagna ljósahátíðinni Hanukkah þegar árásarmaðurinn ruddist inn.

Íþróttafréttakona á meðal þeirra sem fórust í flugslysi
Fimm fórust þegar lítil flugvél brotlenti í borginni Lafayette í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum í dag.

Birtist úr þokunni og þeyttist inn á slysstað
Mildi þykir að ekki fór verr þegar ökumaður missti stjórn á flutningabíl sínum í Texasríki í Bandaríkjunum á föstudag og ók inn á vettvang umferðarslyss.

Lögmaður fórnarlamba Weinstein fær hærri greiðslu en fórnarlömbin
Lögmaður meintra fórnarlamba Harvey Weinstein gæti fengið allt að tíu sinnum hærri greiðslu en fórnarlömbin sjálf ef að umdeilt samkomulag um sáttagreiðslur verður samþykkt.

Átta skotnir við tökur á tónlistarmyndbandi í Houston
Tveir eru látnir og að minnsta kosti sex særðir eftir skotárás á hóp manna sem voru við tökur á tónlistarmyndbandi á bílastæði í Houston í Texas í gærkvöldi.

Leikkonan sem fór með titilhlutverkið í Lolitu er látin
Bandaríska leikkonan Sue Lyon er látin.

Sex látnir eftir þyrluslys á Hawaii
Líkamsleifar sex manna hafa fundist eftir að þyrluslys varð í fjallshlíðum á eyjunni Kauai á Hawaii. Eins er enn leitað.

Metfjöldi morða á árinu í Baltimore
342 morð hafa verið framin á árinu og hafa aldrei verið framin jafn mörg morð miðað við höfðatölu á einu ári í borginni.

Mikki, Mína og Andrés áreitt í Disney-garðinum
Gestir í Disney World-garðinum í Flórída gerast fjölþreifnir og ágengir við starfsmenn í búningum.

Rússar segjast fyrstir til að taka hljóðfráar eldflaugar í notkun
Fyrsta herdeildin hafi tekið á móti eldflaugunum, sem eru af Avangard-gerð, eftir margra ára rannsókna- og tilraunaferli.

Banna bandarískum þingmönnum að koma til Filippseyja
Stjórnvöld í Manila eru ósátt við refsiaðgerðir sem Bandaríkjaþing samþykkti vegna handtöku filippseysks stjórnarandstæðings.

Rannsaka breska samverkakonu Epstein og fleiri
FBI er talin beina spjótum sínum að einstaklingum sem gætu hafa gert Jeffrey Epstein kleift að fremja glæpi sína.

Nashyrningskálfur kom í heiminn á aðfangadagskvöld
Fátítt er að svartir nashyrningar fæðist í haldi. Tegundin er talin í bráðri útrýmingarhættu.

Óttuðust hefndaraðgerðir eftir að þeir sökuðu yfirmann þeirra um stríðsglæpi
Bandarískir sérsveitarmenn sem tilheyrir hinum víðfrægu Selum sjóhers Bandaríkjanna (Navy Seals) voru mjög stressaðir þegar þeir sökuðu Edward Gallagher, yfirmann þeirra, um morð og stríðsglæpi. Einhverjir þeirra brustu í grát.

Trump sakar Trudeau ranglega um að hafa klippt sig úr Home Alone 2
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virtist saka Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, í gær um að hafa fyrirskipað að Trump yrði klipptur úr útgáfu af Home Alone 2: Lost in New York, sem sýnd var í Kanada.

Ósátt við ummæli McConnell um samstarf við Hvíta húsið
Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður Alaska fyrir Repúblikanaflokkinn, segir ummæli Mitch McConnell um samstarf við Hvíta húsið í ákæruferlinu gegn Trump óhugnanleg.