Umhverfismál

Að selja landið
Við lifum á tímum þar sem það blasir við hverjum sem sjá vill að mannkynið hefur gengið illa um náttúruna. Í græðgislegri þörf sinni fyrir velmegun hefur það mengað umhverfi sitt, jafnvel svo mjög að lífi á jörðinni stafar hætta af.

Dómari taldi heilsu fólks vega þyngra en rétturinn til að ferðast með bíl
Ákvörðun borgarstjórnar Madridar um að fella bílabann í miðborginni úr gildi var ógilt fyrir dómstóli í dag.

Skráning Vatnajökulsþjóðgarðs sögð stórt skref í náttúruvernd
Vatnajökulsþjóðgarður er þriðji staðurinn á Íslandi sem kemst á heimsminjaskrá UNESCO en þar eru fyrir Þingvellir og Surtsey.

Farþegastyrkir WOW air skiluðu sér aldrei í ár: „Landvernd átti von á nokkrum milljónum“
Styrkir farþega WOW air skiluðu sér aldrei til umhverfisverndarsamtakanna Landverndar fyrir árið 2018 til 2019.

Vatnajökulsþjóðgarður kominn á heimsminjaskrá UNESCO
Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Leggja til lengri gjaldskyldutíma og gjaldtöku á sunnudögum
Hingað til hefur gjaldskylda takmarkast við 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga.

Sektar WOW air um fjóra milljarða: „Sá borgar sem mengar“
Umhverfisstofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW Air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018.

Óverjandi að bíða ekki með framkvæmdirnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir óverjandi að VesturVerk skuli ekki hafa beðið með framkvæmdir í Hvalá.

Raforkunotkun fyrir Bitcoin á við Sviss
Þrátt fyrir að fjöldi viðskipta með bitcoin sé aðeins brot af hefðbundnum fjármálahreyfingum fer meiri raforka í að knýja þau viðskipti en færslur allra banka heimsins, að sögn sérfræðings.

Sveitarstjóri segir starfsmanni hafa orðið fótaskortur á tungunni
„Ég harma það að þessum ágæta starfsmanni hafi orðið fótaskortur á tungunni. Við munum fara yfir það betur hvernig á að svara íbúum, en þetta eru þó mistök sem allir geta gert og ég veit að hann sér mjög eftir því hvernig hann svaraði þessu.“

Ótvírætt að rafbílar séu umhverfisvænni en bensín- og díselbílar
Það er mýta að rafbílar séu óumhverfisvænni en hefðbundnir bensín- og dísilbílar. Þó að kolefnisfótspor rafbíla við framleiðslu sé hærra þá eru bensín- og dísilbílar fljótir að fara fram úr þeim.

Umfang landgræðslu og skógræktar tvöfaldast
Áætlað er að árlegt umfang landgræðslu muni tvöfaldast frá 2018 til 2022 með aðgerðum um land allt sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra kynntu á blaðamannafundi í Elliðaárdalnum nú síðdegis.

Attenborough fagnaði plastleysi Glastonbury
Nú stendur yfir tónlistarhátíðin Glastonbury í bænum Pilton í Somerset í suðvestur Englandi. Talið er að yfir 200.000 manns hafi sótt hátíðina sem lýkur í kvöld en hófst miðvikudaginn 26. júní og aðalnúmerin voru hljómsveitirnar the Killers, the Cure og rapparinn Stormzy.

Hannaði kolefnisjöfnunarreiknivél til að losna við flugviskubit
Íslenskur doktorsnemi í tölvunarfræði hefur gert forrit sem reiknar út hve mörgum trjám ferðalangar þurfa að planta til að kolefnisjafna flugferðir sínar.

Kópavogslækur reglulega hvítur að lit: Íbúar telja að málning rati í lækinn
Mikið dýralíf er í læknum og vinsælt að veiða síli.

Drottning íslenskra fjalla nú hluti af Vatnajökulsþjóðgarði
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, undirritaði í dag reglugerð sem stækkar Vatnajökulsþjóðgarð um 560 ferkílómetra.

Risastórar radísur og núvitund í vinsælum matjurtargörðum
Grænmeti sem selt er í verslunum á ekki roð í heimaræktað grænmeti að sögn forskrappa matjurtagarðaverkefnis Akureyrarbæjar. Um 250 einstaklingar rækta grænmeti af miklum móð rétt innan við Akureyri.

Tekjutap fyrir björgunarsveitir ef flugeldasýningum verði hætt
Björgunarsveitir yrðu af tekjum ef bæjarfélög hætta með flugeldasýningar, segir talsmaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Reykjavíkurborg íhugar að hætta með flugeldasýningu á menningarnótt vegna umhverfisáhrifa.

Veiddu 40 tonn af netum úr Kyrrahafinu
Hópur bandarískra umhverfissinna gerði fyrr í mánuðinum út bát frá Honolulu í Hawaii og hófust handa við að leggja sitt að mörkum með því að hreinsa upp hluta Kyrrahafsins.

Kynslóðin sem neitar að hætta að djamma
Þegar kynslóðirnar á undan okkur horfðu til framtíðar sáu þau fyrir sér langt líf með fjölskyldu sinni, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum.

Hvert er fyrsta skrefið í átt að sjálfbæru háskólasamfélagi?
Öll þurfum við að leggja okkar af mörkum ef árangur í loftslagsmálum á að nást.

„Þú hefðir til dæmis aldrei orðið ráðherra ef ekki hefði verið fyrir fólk með mótmælaspjöld“
Eva Pandora, fyrrverandi alþingiskona, gerði Sigríði Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, grein fyrir mikilvægi mótmæla.

Fjórar milljónir sparast við að hætta við flugeldasýningu menningarnætur
Flugeldasýning á menningarnótt í Reykjavík í sumar gæti orðið sú síðasta. Innan borgarkerfisins er til umræðu að hætta að skjóta upp flugeldum vegna umhverfisáhrifa þeirra. Engin ákvörðun hefur verið tekin.

Vinnuskólakrakkar mótmæla í hádeginu
Hópur nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur tekur frí frá hefðbundnum störfum á morgun til að taka þátt í mótmælum. Móðir segir koma á óvart að hafa ekki verið látin vita. Skólastjóri segir að enginn sé hvattur til að taka þátt.

Domino's fjármagnar umhverfissjóð með bréfpokum
Domino‘s Pizza á Íslandi hefur ákveðið að gera breytingar á umhverfisstefnu fyrirtækisins, minnka plastnotkun í verslunum sínum samhliða því að kolefnisjafna rekstur sinn.

Leitin að kjarna málsins
Þjóðskáldin hafa lýst því hvernig okkur Íslendingum er illmögulegt að ræða kjarna mála.

Gróðurskemmdir eftir mótorhjólamenn í Bolungarvík
Pálmi Gestsson segir ekki gaman að skamma sveitunga sína en svona sé þetta nú samt.

Telur óþarft að óttast komu nytjaverslunar í Smáralind
Opnun markaðstorgsins Extraloppunnar samræmist vel umhverfissjónarmiðum Smáralindar og þróuninni sem er að eiga sér stað á neysluvenjum fólks, að sögn markaðsstjóra verslunarmiðstöðvarinna

Stöðvaði gröfu VesturVerks
Landeigandi á Seljanesi á Ströndum, Elías S. Kristinsson, stillti sér upp fyrir framan beltagröfu á Ófeigsfjarðarvegi á þriðjudag og stöðvaði þannig framkvæmdir verkamannsins sem starfaði þar í umboði VesturVerks.

Schwarzenegger reyndi að plata bílakaupendur upp úr skónum
Bandaríski leikarinn og ríkisstjórinn fyrrverandi Arnold Schwarzenegger tekur nú þátt í auglýsingaherferð sem ætluð er til þess að hvetja bílakaupendur í Kaliforníu-ríki til þess að fjárfesta í rafbílum í staðinn fyrir bensínháka.