Elín Íris Fanndal

Réttlát leiðrétting veiðigjalda
Það er ástæða fyrir réttmætri leiðréttingu veiðigjalda. Ástæðan er einfaldlega þú og allur almenningur í landinu.

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Fyrirsögnin vísar til fleygra orða Forrest Gump í samnefndri kvikmynd. Fólki með margþættan geðrænan vanda áskotnast því miður oft moli með óbragði. Langvarandi geðfötlun er vandi alls samfélagsins , ekki bara þeirra sem lifa með henni. Í þessum efnum hefur skort úrræði frá upphafi.

Málþóf og/eða lýðræði?
Undirrituð er óðum að munstra sig í hlutverk sitt á háttvirtu Alþingi okkar Íslendinga. Ég kem inn í annað sinn sem varaþingmaður fyrir minn góða flokk, Flokk fólksins. Nú þegar líður að sumarfríi þá taka þingmál að dragast á langinn. Þetta er eitthvað sem að jafnaði fylgir þessum tíma árs.

Sigrar og raunir íslenska hestsins
Íslenski hesturinn hefur frá örófi alda verið samofin sögu þjóðarinnar. Hesturinn hefur verið nýttur sem vinnudýr, fararskjóti og landinn át jafnvel sjálfdauð hross í laumi sökum hungurs eftir kristnitöku, sem á þeim tíma boðaði heljarvist þeim sem það gerðu.

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Samkvæmt frumvarpi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem nú er til afgreiðslu á Alþingi er lagður grunnur að því að fleiri nemendur fái hluta námslána sinna breytt í styrk en nú er.

Er nauðsynlegt að velta þessu fjalli?
Kæru vinir. Flokkur fólksins hefur lagt hjarta sitt í þessa kosningabaráttu, þar er allt undir. Ég hef lagt mig alla fram undanfarnar vikur, sem og mínir dásamlegu vinir og félagar á listanum. Ásthildur Lóa Þórsdóttir sem með þrautseigju sinni og elju hefur unnið stórsigur, Sigurður Helgi Pálmason í öðru er fullkomnlega verðugur fulltrúi Reykjanesbæjar, bæjar sem rær lífróður og þarf nauðsynlega að fá sína rödd inn á Alþingi.

Flokkur fólksins á meðal fólks
Undirrituð lagði á dögunum upp í ferðalag með samflokksmönnum sem skipa efstu fjögur sætin í framboði okkar í Suðurlandskjördæmi.

Íslensk verðtrygging á mannamáli!
Það er alkunna hér að ungu fólki er refsað grimmilega af bankastofnunum, taki það ákvörðun að mennta sig á háskólastigi. Hérlendis er því reyndar haldið fram af mörgum að öll verðtrygging sé af hinu góða og kannski einnig bráðnauðsynleg.