

EM kvenna í handbolta 2024
Evrópumótið í handbolta kvenna fer fram 28. nóvember til 15. desember 2024 í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.
Leikirnir

Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum
Þórir Hergeirsson, sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar, hefur frá mörgu að segja og 1. mars heldur þessi frábæri þjálfari tvo áhugaverða fyrirlestra hér á Íslandi.
Fréttir í tímaröð

Þórir hefur ekki áhuga
Þórir Hergeirsson hefur ekki áhuga á því að taka við þjálfun danska kvennalandsliðinu í handbolta en hann staðfesti það í viðtali í norsku dagblaði.

Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur
Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans.

„Ég er svo ótrúlega stolt af þér pabbi“
María Þórisdóttir sendi föður sínum fallega kveðju eftir að Þórir Hergeirsson endaði þjálfaraferil sinn hjá norska kvennalandsliðinu í handbolta með því að vinna sitt ellefta stórmót með norska landsliðinu.

Danska pressan óvægin: „Vandræðalegt, Danmörk!“
Danskir fjölmiðlar fóru engum silkihönskum um kvennalandsliðið í handbolta eftir að það tapaði fyrir Noregi í úrslitaleik EM.

Grét þegar Þórir mætti í settið: „Besti þjálfari í heimi“
Tárin runnu niður kinnar Noru Mørk þegar Þórir Hergeirsson mætti í viðtal hjá Viaplay eftir sigur Noregs á Danmörku í úrslitaleik EM.

Skrifaði fallegan pistil um Þóri: „Yfirvegaður, klár og þolinmóður maður“
Glæsilegum ferli Þóris Hergeirssonar með norska kvennalandsliðið í handbolta lauk í gær þegar Noregur varð Evrópumeistari í sjötta sinn undir stjórn Selfyssingsins.

Þórir vildi Haaland í handboltann
Þórir Hergeirsson vann sinn sjötta Evróputitil með Noregi í gær á sama tíma og Erling Haaland þurfti að sætta sig við tap í Manchesterslag í ensku úrvalsdeildinni. Þórir reyndi að sannfæra Haaland um að velja handboltann framyfir fótboltann á sínum tíma.

Afhenti Þóri gjöf á blaðamannafundi eftir leik
Það er engum blöðum um það að fletta að Þórir Hergeirsson nýtur mikillar virðingar í handboltaheiminum. Það kom berlega í ljós á blaðamannafundi eftir úrslitaleik Noregs og Danmerkur á Evrópumótinu í dag.

Þórir kvaddi norska liðið með Evróputitli
Þórir Hergeirsson kveður norska landsliðið í handknattleik með Evrópumeistaratitli en Noregur vann öruggan sigur á Dönum í úrslitaleik í Vínarborg í dag. Þetta er ellefti stóri titill norska liðsins undir stjórn Þóris.

Fyrstu verðlaun Ungverja í tólf ár
Ungverjar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Frakka að velli í æsispennandi leik um bronsverðlaunin á EM kvenna í handbolta í dag. Lokatölur 25-24 eftir dramatískan endi.

Ísland keppir við Ísrael um sæti á HM
Í dag lýkur Evrópumóti kvenna í handbolta og um leið fengu Íslendingar að vita hver verður mótherji Íslands í baráttunni um að komast á næsta stórmót; HM 2025 í Þýskalandi og Hollandi.

Aðeins ein úr liði Þóris í stjörnuliði EM
Það er kannski til marks um þá miklu liðsheild sem Þórir Hergeirsson hefur skapað hjá norska landsliðinu að aðeins einn fulltrúi er úr liðinu í stjörnuliði EM kvenna í handbolta sem kynnt var í dag.

„Eflaust fullur eftirsjár þegar þessu lýkur“
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hef ég ekki tölu á hve margir úrslitaleikirnir eru orðnir,“ sagði Þórir Hergeirsson við NRK í gærkvöld, eftir að hafa stýrt Noregi til öruggs sigurs á Ungverjum í undanúrslitum EM kvenna í handbolta.

Danmörk í úrslitaleikinn á móti Noregi
Danmörk og Noregur mætast í úrslitaleik Evrópumóts kvenna í handbolta en þetta varð ljóst eftir að Danir unnu Frakka í seinni undanúrslitaleik kvöldsins.

Síðasti leikur Þóris með þær norsku verður úrslitaleikur á EM
Þórir Hergeirsson kom í kvöld norska kvennalandsliðinu í handbolta í enn einn úrslitaleikinn á stórmóti.

Svíar tóku fimmta sætið
Svíþjóð vann Holland, 33-32, í leiknum um 5. sætið á EM í handbolta kvenna í dag. Emma Lindqvist var hetja Svía en hún skoraði þrjú af síðustu fjórum þeirra, þar á meðal sigurmarkið.

„Það falla mörg tár á sunnudag“
Reynsluboltinn Camilla Herrem og þjálfari hennar hjá norska handboltalandsliðinu, Þórir Hergeirsson, eru sammála um að það verði miklar tilfinningar í gangi á sunnudaginn. Þá er síðasti leikurinn undir stjórn Þóris sem verið hefur aðalþjálfari Noregs í 15 ár.

Fjörutíu marka kvöld hjá stelpunum hans Þóris
Norska kvennalandsliðið endaði milliriðilinn á stórsigri á Sviss í kvöld.

Dönsku stelpurnar í undanúrslitin
Danmörk varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum á Evrópumóti kvenna í handbolta.

Segir Þóri hafa verndað sig: „Verður ótrúlega sorglegt“
Nora Mörk segist skilja gagnrýni Þóris Hergeirssonar á það að þessi stjarna norska handboltalandsliðsins skuli starfa sem sérfræðingur í sjónvarpi á EM í ár. Hún hrósar Þóri í hástert og segir að kveðjustundin á sunnudag verði erfið.

Sænsku stelpurnar spila um fimmta sætið
Kristín Þorleifsdóttir og félagar hennar í sænska kvennalandsliðinu í handbolta tryggðu sér í kvöld sæti í leiknum um fimmta sætið á EM.

Heimsmeistararnir unnu heimakonur og sendu þær í leik á móti Noregi
Heimsmeistarar Frakka og Ólympíumeistarar Norðmanna mætast ekki fyrr en í fyrsta lagi í úrslitaleiknum á Evrópumóti kvenna í handbolta.

Greip gæsina en sökuð um óheiðarleika
Noregur vann Þýskaland af öryggi í gær og Ólympíumeistararnir hans Þóris Hergeirssonar komust því á flugi í undanúrslit EM. Eitt marka Þýskalands í leiknum þótti hins vegar skorað með afar óheiðarlegum hætti.