Handbolti

Tapaði fyrir Þóri í úr­slita­leik EM og er líka hættur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesper Jensen gaf Þóri Hergeirssyni kveðjugjöf á blaðamannafundinum eftir úrslitaleik EM. Þórir var þá að stýra norska landsliðinu í síðasta skiptið.
Jesper Jensen gaf Þóri Hergeirssyni kveðjugjöf á blaðamannafundinum eftir úrslitaleik EM. Þórir var þá að stýra norska landsliðinu í síðasta skiptið. Getty/Andrea Kareth

Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans.

Jensen átti eitt ár eftir af samningi sínum en hann vildi hætta ári fyrr.

„Við erum virkilega vonsvikin með það að Jesper Jensen vilji ekki vera landsliðsþjálfari lengur. Við höfðum hlakkað til áframhaldandi samstarfs en við virðum líka ákvörðun hans að þurfa á tilbreytingu að halda eftir fimm ár í starfinu,“ sagði Morten Henriksen, íþróttastjóri danska sambandsins.

Danska landsliðið hefur verið að gera mjög góða hluti undir stjórn Jensen síðustu ár. Liðið hefur unnið tvenn silfurverðlaun og þrenn silfurverðlaun á stórmótum sinum frá því fyrsta undir hans stjórn árið 2020.

Liðið fór alla leið í úrslitaleikinn á síðasta Evrópumóti en tapaði þá fyrir norska landsliðinu.

Þórir Hergeirsson var þá að stýra norska landsliðinu í síðasta sinn en nú er líka ljóst að þetta var síðasti leikur danska liðsins á stórmóti undir stjórn Jensen.

„Ég vissi það fyrir Evrópumótið að ég vildi hætta með liðið,“ sagði Jesper Jensen í viðtali við danska ríkisútvarpið.

Hann segist sakna þess að vera þjálfari félagsliðs. Hann hringdi í íþróttastjóri danska handboltasambandsins stuttu eftir EM og sagði frá ákvörðun sinni.

„Þetta var erfið ákvörðun því ég hef haft svo gaman af því að vera landsliðsþjálfari,“ sagði Jansen.

Hann mun leita sér að félagsliði til að þjálfa og segist þegar hafa heyrt af áhuga.

Danska handboltasambandið hefur jafnframt hafið leit að nýjum landsliðsþjálfara en liðið hefur þegar tryggt sér sæti á HM í desember þökk sé því að liðið komst í undanúrslit á EM. Jensen mun aðstoða landsliðskonurnar efrir fremsta megni þar til að nýr þjálfari finnst.


Tengdar fréttir

Af­henti Þóri gjöf á blaða­manna­fundi eftir leik

Það er engum blöðum um það að fletta að Þórir Hergeirsson nýtur mikillar virðingar í handboltaheiminum. Það kom berlega í ljós á blaðamannafundi eftir úrslitaleik Noregs og Danmerkur á Evrópumótinu í dag.

Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir

Þórir Hergeirsson var heiðraður samtímis á tveimur verðlaunahófum í gærkvöld, á Íslandi og í Noregi. Ein af stjörnunum sem hann þjálfaði svo lengi í norska handboltalandsliðinu, Stine Oftedal Dahmke, þakkaði Þóri fyrir allt í verðlaunaræðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×