
Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum
Þórir Hergeirsson, sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar, hefur frá mörgu að segja og 1. mars heldur þessi frábæri þjálfari tvo áhugaverða fyrirlestra hér á Íslandi.
Evrópumótið í handbolta kvenna fer fram 28. nóvember til 15. desember 2024 í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.
Þórir Hergeirsson, sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar, hefur frá mörgu að segja og 1. mars heldur þessi frábæri þjálfari tvo áhugaverða fyrirlestra hér á Íslandi.
Þórir Hergeirsson hefur ekki áhuga á því að taka við þjálfun danska kvennalandsliðinu í handbolta en hann staðfesti það í viðtali í norsku dagblaði.
Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans.
María Þórisdóttir sendi föður sínum fallega kveðju eftir að Þórir Hergeirsson endaði þjálfaraferil sinn hjá norska kvennalandsliðinu í handbolta með því að vinna sitt ellefta stórmót með norska landsliðinu.
Danskir fjölmiðlar fóru engum silkihönskum um kvennalandsliðið í handbolta eftir að það tapaði fyrir Noregi í úrslitaleik EM.
Tárin runnu niður kinnar Noru Mørk þegar Þórir Hergeirsson mætti í viðtal hjá Viaplay eftir sigur Noregs á Danmörku í úrslitaleik EM.
Glæsilegum ferli Þóris Hergeirssonar með norska kvennalandsliðið í handbolta lauk í gær þegar Noregur varð Evrópumeistari í sjötta sinn undir stjórn Selfyssingsins.
Þórir Hergeirsson vann sinn sjötta Evróputitil með Noregi í gær á sama tíma og Erling Haaland þurfti að sætta sig við tap í Manchesterslag í ensku úrvalsdeildinni. Þórir reyndi að sannfæra Haaland um að velja handboltann framyfir fótboltann á sínum tíma.
Það er engum blöðum um það að fletta að Þórir Hergeirsson nýtur mikillar virðingar í handboltaheiminum. Það kom berlega í ljós á blaðamannafundi eftir úrslitaleik Noregs og Danmerkur á Evrópumótinu í dag.
Þórir Hergeirsson kveður norska landsliðið í handknattleik með Evrópumeistaratitli en Noregur vann öruggan sigur á Dönum í úrslitaleik í Vínarborg í dag. Þetta er ellefti stóri titill norska liðsins undir stjórn Þóris.
Ungverjar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Frakka að velli í æsispennandi leik um bronsverðlaunin á EM kvenna í handbolta í dag. Lokatölur 25-24 eftir dramatískan endi.
Í dag lýkur Evrópumóti kvenna í handbolta og um leið fengu Íslendingar að vita hver verður mótherji Íslands í baráttunni um að komast á næsta stórmót; HM 2025 í Þýskalandi og Hollandi.
Það er kannski til marks um þá miklu liðsheild sem Þórir Hergeirsson hefur skapað hjá norska landsliðinu að aðeins einn fulltrúi er úr liðinu í stjörnuliði EM kvenna í handbolta sem kynnt var í dag.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hef ég ekki tölu á hve margir úrslitaleikirnir eru orðnir,“ sagði Þórir Hergeirsson við NRK í gærkvöld, eftir að hafa stýrt Noregi til öruggs sigurs á Ungverjum í undanúrslitum EM kvenna í handbolta.
Danmörk og Noregur mætast í úrslitaleik Evrópumóts kvenna í handbolta en þetta varð ljóst eftir að Danir unnu Frakka í seinni undanúrslitaleik kvöldsins.
Þórir Hergeirsson kom í kvöld norska kvennalandsliðinu í handbolta í enn einn úrslitaleikinn á stórmóti.
Svíþjóð vann Holland, 33-32, í leiknum um 5. sætið á EM í handbolta kvenna í dag. Emma Lindqvist var hetja Svía en hún skoraði þrjú af síðustu fjórum þeirra, þar á meðal sigurmarkið.
Reynsluboltinn Camilla Herrem og þjálfari hennar hjá norska handboltalandsliðinu, Þórir Hergeirsson, eru sammála um að það verði miklar tilfinningar í gangi á sunnudaginn. Þá er síðasti leikurinn undir stjórn Þóris sem verið hefur aðalþjálfari Noregs í 15 ár.
Norska kvennalandsliðið endaði milliriðilinn á stórsigri á Sviss í kvöld.
Danmörk varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum á Evrópumóti kvenna í handbolta.
Nora Mörk segist skilja gagnrýni Þóris Hergeirssonar á það að þessi stjarna norska handboltalandsliðsins skuli starfa sem sérfræðingur í sjónvarpi á EM í ár. Hún hrósar Þóri í hástert og segir að kveðjustundin á sunnudag verði erfið.
Kristín Þorleifsdóttir og félagar hennar í sænska kvennalandsliðinu í handbolta tryggðu sér í kvöld sæti í leiknum um fimmta sætið á EM.
Heimsmeistarar Frakka og Ólympíumeistarar Norðmanna mætast ekki fyrr en í fyrsta lagi í úrslitaleiknum á Evrópumóti kvenna í handbolta.
Noregur vann Þýskaland af öryggi í gær og Ólympíumeistararnir hans Þóris Hergeirssonar komust því á flugi í undanúrslit EM. Eitt marka Þýskalands í leiknum þótti hins vegar skorað með afar óheiðarlegum hætti.