Halla Tómasdóttir

Halla Tómasdóttir rétt kjörin forseti Íslands
Halla Tómasdóttir hefur verið löglega kjörin forseti og fullnægir skilyrðum stjórnarskrár lýðveldisins um kjör forseta Íslands. Það staðfesti Landskjörstjórn á fundi sínum í dag. Landskjörstjórn úrskurðaði á fundi sínum í dag um 117 ágreiningsseðla í þremur kjördæmum.

Úr buffi í klút
Á Íslandi hefur lengi verið við lýði að þjóðhöfðingjar landsins komi hversdagslegar fyrir en á mörgum öðrum stöðum í heiminum. Það er til dæmis sjaldgæft að lífverðir fylgi forseta hvert fótmál eða að hann keyri lítið sem ekkert sjálfur, eins og sjá má í Bandaríkjunum. Þetta og fleira hefur veitt Íslandi sérstöðu meðal vestrænna ríkja, eflt mjúkt vald okkar og er ein af ótal mörgu ástæðum þess að fólk lítur jákvæðum augum til landsins.

Flestir ánægðir með kjör Höllu Tómasdóttur
Sextíu og þrjú prósent svarenda eru ánægð með kjör Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun Prósents. Tuttugu og fjögur prósent segjast hvorki vera ánægð né óánægð og 13 prósent eru óánægð. Könnunin var framkvæmd dagana 6. til 12. júní.

Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar
Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast.

Flestir vilja kalla Björn „forsetaherra“
Skiptar skoðanir eru á því hvað fólk vill kalla Björn Skúlason, eiginmann Höllu Tómasdóttur og þar af leiðandi fyrsta eiginmann forseta Íslands. Lesendum Vísis líst best á að kalla hann forsetaherra eða hreinlega eiginmann forseta.

Kínaforseti óskar Höllu til hamingju með sigurinn
Xi Jinping, forseti Kína, óskaði Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta Íslands, til hamingju með sigur hennar í nýafstöðnum kosningum.

Guðni og Halla fagna saman
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Halla Tómasdóttir verðandi forseti mættust í stúkunni á leik Íslands og Austurríkis í undankeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu sem fer fram á Laugardalsvelli.

„Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun
Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. En hver er þessi kraftmikla kona sem tókst að heilla þjóðina í annað sinn og nú nægilega mikið til þess að koma sér á Bessastaði? Halla hefur flutt inn fótboltastráka, unnið hjá Pepsi og stýrt umtöluðu partýi í Mónakó. Hennar stærstu mistök voru að taka við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs.

Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta?
Nú þegar ljóst er orðið að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins þá liggur líka fyrir að eiginmaður hennar, Björn Skúlason, verði fyrsti eiginmaður forseta Íslands.

Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum
Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti.

Klútabyltingin: Finndu þinn eigin Höllu-klút
Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, er að takast að gera hálsklúta að heitasta klæðnaði dagsins. Halla var fyrst með klút í fyrstu kappræðunum í byrjun maí. Síðan hefur klúturinn orðið eins konar einkennismerki stuðningmanna Höllu sem mættu margir með litla silkiklúta um hálsinn á kosningavöku hennar sem fór fram í Grósku síðastliðið laugardagskvöld.

Annasamir dagar framundan hjá Höllu
Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands segir annasama daga bíða Höllu Tómasdóttur nýkjörins arftaka hans þrátt fyrir að hún taki ekki formlega við embættinu fyrr en í ágústbyrjun. Að ýmsu þurfi að huga þangað til að hinn örlagaríki fyrsti ágúst renni upp og innsetning sjöunda forseta lýðveldisins fer fram með pompi og prakt.

Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju
Forseti Úkraínu, Vólódímír Selenskí, óskaði nýkjörnum forseta Íslands Höllu Tómasdóttur til hamingju með sigurinn á samfélagsmiðlinum X í dag.

Fínt að það séu ekki bara „kallaforsetar“
Fólki á förnum vegi líst almennt vel á nýkjörinn forseta, og yngri kynslóðin hefur ekki síður sterkar skoðanir á ungangengnum kosningum. Elín Margrét Böðvarsdóttir ræddi við nokkra kjósendur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í dag.

Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“
Guðni Th Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands hefur sent Höllu Tómasdóttur verðandi forseta Íslands bréf þar sem hann óskar henni til hamingju með kjörið.

Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur
Halla Tómasdóttir nýkjörinn forseti Íslands ávarpaði þjóðina frá svölunum á heimili sínu við Klapparstíg nú fyrir skemmstu og hlaut mikil fagnaðarlæti.

Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða
Eva Heiða Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir tvennt vekja athygli hennar í forsetakosningunum sem fóru fram í gær. Fjöldi kvenna sem fengu góða kosningu og svo mikið fylgi nýkjörins forseta.

Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti
Landskjörstjórn hafa borist niðurstöður talningar frá yfirkjörstjórnum Norðvesturkjördæmis, Norðausturkjördæmis, Suðurkjördæmis, Suðvesturkjördæmis, Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður. Kjörsókn var mikil, 80,8 prósent.

Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika”
Björn Skúlason er eiginmaður Höllu Tómasdóttur til tuttugu ára. Björn er uppalin í Grindavík og starfar sem kokkur. Björn spilaði lengi fótbolta og æfir í dag Crossfit. Björn og Halla eiga saman tvö börn, Tómas Björn og Auði Ínu.

Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum
Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, mun ávarpa stuðningsmenn sína af svölum heimilis hennar í miðbæ Reykjavíkur klukkan 16.

Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur
Könnun sem Maskína gerði daginn fyrir kjördag staðfesti að allar líkur væru á að Halla Tómasdóttir myndi bera sigur úr bítum í kosningunum. Maskínu þótti hins vegar ekki rétt að birta könnun á kjördag.

Var nálægt því að draga framboð sitt til baka
„Mér líður furðu vel fyrir utan svefnleysið. Mér er hlýtt í hjarta og hjarta mitt er fullt af þakklæti fyrir ótrúlegan stuðning og ótrúlega gleði, alla leiðina í framboðinu,“ segir Halla Tómasdóttir nýkjörin forseti Íslands. Hún þakkar þjóðinni fyrir traustið og upplýsir að snemma í maí hafi hún verið á mörkum þess að draga framboðið til baka.

„Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“
Þeir eru hálf dasaðir áhugamenn um þjóðmálin sem tjá sig á Facebook í dag en hvergi nærri af baki dottnir. Þar er sigur Höllu Tómasdóttur skoðaður frá ýmsum vinklum. Þar keppast menn við að benda á að ekkert sé að taktískum sigri.

Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu
Varla er um það deilt að sigur Höllu Tómasdóttur er ekki síst taktískur. Þegar fyrir lá að baráttan stóð á milli hennar og Katrínar Jakobsdóttur sveiflaðist fylgið til hennar sem aldrei fyrr.

Batt á sig klút til heiðurs Höllu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord.

Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu
Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni.

Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta
„Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“

Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum
Það er mikil spenna fyrir úrslitum forsetakosninganna og spennan er ef til vill mest í kosningavökum frambjóðendanna.

Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti
Katrín Jakobsdóttir segist ekki tilbúin að lýsa yfir ósigri í forsetakosningunum, hins vegar bendi allt til þess að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins. Hún segir að mikið þyrfti að gerast svo þau úrslit breytist.

Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til
Halla Tómasdóttir leiðir í Suðvesturkjördæmi eftir að fyrstu atkvæðin hafa verið talin með 27,66 prósent atkvæðum. Katrín Jakobsdóttir er þar rétt á eftir með 25,93 prósent atkvæða og er um að ræða minnsta muninn þeirra á milli á landsvísu.