Átök í Ísrael og Palestínu

Tvö börn sögð hafa látið lífið í árás Íran á Pakistan
Pakistanar segja að tvö börn hafi látið lífið og að þrír séu særðir eftir að Íranir gerðu loftárásir innan landamæra nágrannaríkisins í gær.

Samkomulag í höfn um aukna mannúðaraðstoð á Gasa
Ísrael og Hamas hafa náð samkomulagi um aukið innflæði hjálpargagna til Gasa. Þetta segja katörsk yfirvöld sem hýst hafa viðræðurnar auk Frakka.

Fagfélögin flagga palestínska fánanum
Fagfélögin fordæma yfirstandandi árás Ísrael á Gasa og skora á íslensk stjórnvöld að leita allra leiða til að þrýsta á að endir verði bundinn á hörmungarnar. Þetta kemur fram sameiginlegri yfirlýsingu fagfélaganna en þau samanstanda af MATVÍS, RSÍ, VM og Byggiðn.

Ísraelskur fótboltamaður handtekinn í Tyrklandi
Ísraelski knattspyrnumaðurinn Sagiv Jehezkel var handtekinn í Tyrklandi í gær eftir að hafa vakið athygli á stríðinu á milli Ísraels og Hamas-samtakanna.

Er einhver fullorðinn á svæðinu?
Sjáum fyrir okkur skólabekk. Það er enginn fullorðinn á svæðinu (kannski fullorðinn í aldri). Það eru einn eða tveir krakkar sem leggja skotmörkin sem þeim finnast auðveldust í einelti. Allir í bekknum leyfa því að viðgangast. Flestir taka stöku sinnum þátt, bæði til að velja „rétt lið” og þannig kaupa sér vinsældir, en líka til að fyrirbyggja að þau sjálf verði skotmörk síðar meir.

Hátt í tvö þúsund manns mættu í samstöðugöngu
Fjölmenn samstöðuganga fyrir Palestínu var gengin niður Laugaveg í dag. Skipuleggjendur telja að hátt í tvö þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni, sem endaði með samstöðufundi á Austurvelli.

Ísraelar verja sig fyrir alþjóðadómstólnum
Sendinefnd Ísraelsmanna fór í dag með mál sér til varnar í máli sem skotið var til alþjóðadómstólsins í Haag af Suður-Afríku á dögunum. Í umleitaninni sem Suður-Afríka lagði fram saka þeir Ísraela um þjóðarmorð í innrás sinni á Gasa og biðla til dómstólsins að skipa Ísraelum að láta af öllum árásum.

Munu svara árásum Breta og Bandaríkjamanna
Hútar í Jemen hafa lofað því að bregðast við loftárásum Breta og Bandaríkjamanna af hörku. Þá hafa þeir einnig lofað því að áfram árásum sínum á skip í Rauðahafinu sem þeir segja til stuðnings Palestínumönnum gegn Ísraelum.

Skutu á sextíu skotmörk í Jemen í nótt
Bandaríkjamenn og Bretar gerðu í gærkvöld og í nótt umfangsmilkar árásir á Húta í Jemen. Hersveitir vesturveldanna vörpuðu sprengjum á tugi staða, sem notaðir eru af Hútum.

Gera loftárás á Húta í Jemen í nótt
Bretland og Bandaríkin undirbúa nú loftárásir á hendur Húta í Jemen og sagt er að þær verði gerðar í nótt. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands ráðfærði sig við ríkisstjórn sína varðandi árásirnar fyrr í dag.

Án aðgerða verði útrýming palestínsku þjóðarinnar algjör
Málflutningur hófst í dag í máli Suður-Afríku gegn Ísrael, sem rekið er fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Suður-Afríka sakar Ísrael um þjóðarmorð á Palestínumönnum og biðlar til dómstólsins að skipa Ísraelsmönnum að hætta tafarlaust hernaði í Gasa. Dómsmálaráðherra Suður-Afríku sparaði ekki orðin í ræðu sinni.

Ásakanir Suður-Afríku gegn Ísrael teknar fyrir í dag
Alþjóðadómstóllinn mun í dag taka fyrir umleitan Suður-Afríku um að dómstólinn grípi til aðgerða vegna meints þjóðarmorðs Ísraela á Palestínumönnum á Gasa.

Reykjavík eignist nýja vini í Palestínu
Árið 1944 tóku enska borgin Coventry og Stalíngrað í Sovétríkjunum upp vinaborgasamband. Sú fyrrnefnda hafði farið verst allra borga á Bretlandseyjum út úr loftárásum Þjóðverja og sú síðarnefnda mátti heita rústir einar eftir langvinnt og blóðugt umsátur í stríðinu.

Finnskir tónlistarmenn hvetja til sniðgöngu Eurovision
Yfir 1300 tónlistarmenn í Finnlandi hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem þess er krafist að finnska ríkisútvarpið sniðgangi Eurovision söngvakeppnina í Malmö í ár taki Ísrael þátt í keppninni.

Bandaríkjamenn og Bretar skjóta niður dróna og flaugar Húta
Yfirvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa staðfest að herir þeirra hafi gripið til varna í einni umfangsmestu árás Húta á skotmörk á Rauða hafi. Ekkert hefur heyrst um slys á fólki né tjón á skipum í tengslum við árásina.

Blóðsúthellingar í nafni friðar
Samkvæmt nýjustu tölum hafa rúmlega 23.000 manns látið lífið síðan að styrjöld braust út á Gaza, þann 7. október á síðasta ári.

Felldu annan háttsettan á leið í jarðarför
Yfirmaður drónadeildar Hesbollah-samtakanna í Suður-Líbanon var felldur í líklegri loftárás Ísraela í dag. Maðurinn hét Ali Hussein Barji og er talinn hafa verið að sækja jarðarför annars leiðtoga samtakanna sem felldur var í loftárás í gær, þegar bíll hans varð fyrir sprengju.

Mun hvetja Ísraelsmenn til að draga úr aðgerðum og horfa til framtíðar
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er mættur til Tel Aviv í Ísrael þar sem hann er sagður munu freista þess að þrýsta á stjórnvöld að draga úr þunga aðgerða sinna á Gasa og hefja viðræður um stjórnun svæðisins þegar átökum lýkur.

Ísland gegn þjóðarmorði
Opið bréf til Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra, og Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.

Drápu háttsettan leiðtoga Hesbollah
Ísraelar felldu í morgun einn af yfirmönnum Hesbollah-samtakanna í loftárás í suðurhluta Líbanon. Wissam Tawill stýrði úrvala hópi vígamanna og er æðsti leiðtogi Hesbollah sem felldur er af Ísraelum frá því átökin hófust fyrir botni Miðjarðarhafsins í október.

Bandaríkjamenn ítreka að Palestínumenn eigi að fá að snúa heim
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú í opinberri heimsókn í Mið-Austurlöndum og hefur meðal annars notað tækifærið til að ítreka þá afstöðu stjórnvalda vestanhafs að Palestínumenn eigi að fá að snúa aftur heim eftir að átökum á Gasa lýkur.

Meirihluti þjóðarinnar ósáttur við afstöðu Íslands varðandi Gasa
Meirihluti þjóðarinnar er ósáttur við opinbera afstöðu Íslands almennt varðandi Gasa samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem gerð var rétt fyrir áramót eða 50,5 prósent.

Segir heiminn blindan þegar kemur að ástandinu á Gasa
Heimurinn er blindur þegar kemur að ástandinu á Gasa segir fréttaritari, sem er búsettur þar og missti son sinn í loftárás sem gerð var á svæðið í dag. Forstjóri spítala á Gasasvæðinu kallar eftir aukinni vernd alþjóðasamfélagsins.

Myndi sleppa baráttunni ef vonin væri ekki til staðar
Á fjórða tug aðgerðasinna gistu í tjöldum á Austurvelli í nótt, til að ítreka kröfu Palestínumanna hér á landi um að stjórnvöld láti fjölskyldusameiningar, sem þegar hafa verið samþykktar, verða að veruleika.

Blaðamenn drepnir í loftárás Ísraels
Ísraelsk árás á borgina Rafah í suðurhluta Gasasvæðisins drap tvo palestínska blaðamenn sem voru að fjalla um stríðið samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á svæðinu.

Biðlar til stjórnvalda að setja sig í spor Palestínumanna
Hin sautján ára Asil al-Masri sem kom til landsins frá Palestínu fyrr í vikunni biður Alþingismenn um að setja sig í spor Palestínumanna.

Enn eykst mannfall á Gasa og átök milli Hezbollah og Ísrael harðna
Ísrael og líbönsku hernaðarsamtökin Hezbollah hafa skipst á loftárásum í dag í hörðustu landamæraátökum milli landanna í nokkrar vikur. Í Gaza einbeitir Ísraelsher árásum sínum nú að suðurhlutanum þar sem 2,3 milljónir Palestínubúa hírast á litlu svæði.

„Við verðum að sýna samstöðu í verki“
Íslenskir aðgerðasinnar ætla að slást í hóp þeirra Palestínumanna sem varið hafa nóttinni í tjöldum fyrir framan Alþingi síðan seint í desember. Samstöðufundur með Palestínumönnum var á Austurvelli.

Íslenskir aðgerðasinnar tjalda með Palestínumönnum
Íslenskir aðgerðasinnar ætla sér að sýna Palestínumönnum samstöðu með því að tjalda á Austurvelli eins lengi og þarf. Mótmæli við utanríkisráðuneytið og samstöðufundur á Austurvelli fara fram í dag.

Hezbollah gerir umsvifamikla loftárás á Ísrael
Forsvarsmenn Hezbollah í Líbanon segja að hernaðarsamtökin hafi gert umsvifamikla loftárás á útsýnisaðstöðu ísraelska hersins í Ísrael í morgun.