
Guðni Freyr Öfjörð

Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs
Sú vegferð sem ég óttaðist að Sjálfstæðisflokkurinn myndi hefja er nú að verða að veruleika. Flokkurinn er byrjaður að leggja jarðveg fyrir einkavæðingu Bjargs íbúðafélags og Félagsbústaða, og beita sér markvisst gegn mikilvægri uppbyggingu þessara nauðsynlegu húsnæðislausna.

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Ég heyri stundum pólitíkusa, sérstaklega þá sem tilheyra öfgahægrinu, tala um að Evrópa sé í hnignun og að vestræn siðmenning sé að hrynja. Þegar saga þessarar orðræðu er skoðuð kemur þó í ljós að hún er alls ekki ný.

Píratar til forystu
Framsóknarflokkurinn hefur lengi verið þekktur fyrir að sveiflast milli pólitískra stefna eins og vindhani í íslensku roki. Nýjasta uppátæki þeirra, að slíta meirihlutasamstarfinu í Reykjavík, er enn eitt dæmið um óstöðugleika og stefnuleysi sem hefur einkennt flokkinn í gegnum tíðina.

„Forðastu múslímana,“ sögðu öfgahægrimenn mér
„Forðastu múslímana,“ sögðu þeir og bentu á menningu þeirra sem ógn við jafnrétti og siðferði. En á sama tíma, á Alþingi, kusu þeir gegn réttindum hinsegin fólks og gegn frumvarpi sem tryggði konum rétt til þungunarrofs.

Opið bréf til Guðlaugs Þórs umhverfisráðherra
Umræðan um þéttingu byggðar í Reykjavík hefur verið áberandi í aðdraganda kosninga, þar sem þétting byggðar er oft gerð að blóraböggli fyrir húsnæðisvandann á landinu.

Fasismi er að trenda – erum við að sofna á verðinum?
Réttindi kvenna, innflytjenda og hinsegin fólks sæta vaxandi árás, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Þrátt fyrir alvarleika þessarar þróunar fær ógnin frá öfgahægri ekki nægilega umfjöllun, hvorki hér á landi né annars staðar.

Flokkarnir sem vilja senda okkur aftur í torfkofana
Það fer hrollur um mig þegar ég hlusta á suma stjórnmálamenn tala um að endurskoða samninga eins og EES-samninginn. Nýleg dæmi eru Anton Sveinn, nýkjörinn formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Eru sumir íslenskir stjórnmálamenn að bergmála áróður Kremlar?
Á undanförnum árum hefur hugmyndin um hnignun vestrænnar menningar og árásir á hefðbundin gildi orðið áberandi í stjórnmálaumræðu víða um heim. Þetta er ekki tilviljun, heldur afleiðing markvissrar áróðursherferðar frá rússneskum stjórnvöldum, samkvæmt ýmsum rannsóknum og fréttum.

Maðurinn sem gerði tilraun til valdaráns í Bandaríkjunum
Í aðdraganda væntanlegra forsetakosninga í Bandaríkjunum hefur því verið haldið fram að Trump hafi verið friðarsinni og bent á að hann hafi ekki verið upphafsmaður neinna stríða í sinni fjögurra ára forsetatíð.

Heimur samsæriskenningana
Samsæriskenningar hafa verið til í aldir og fangað huga margra. Þetta eru engin ný eða óvenjuleg fyrirbæri; mannkynið hefur glímt við þær frá örófi alda, sér í lagi á óstöðugum tímum. Samsæriskenningar veita okkur leið til að reyna skilja flókna atburði og finna einhverja öryggistilfinningu í heimi sem kann að vera fullur af óreiðu.

Árið 2016 þegar hatrinu var gefin rödd
Árið 2016 virtist heimurinn vera að færast nær heimsfriði innan um Pokémon Go æðið sem sveif um heiminn. En fljótt skipaðist veður í lofti og sólin flúði þegar hún sá gráa og drungalega ský feðraveldisins nálgast hratt.

Bara það besta um Borgarlínu
Eftir flokksfund um helgina kom út platan „Bara það besta um borgarlínuna“ sem inniheldur klassísk lög eins og „Verkefnið er of dýrt og óþarft“, „Enginn vill reka þetta!“, „Er létt borgarlína ekki bara málið?“, „Það mun enginn nota þetta!“, „Forsendur eru brostnar“, „Gæluverkefni Dags“, „Fjölgum bara akreinum fyrir bíla!“, „Hver á að borga fyrir þetta?“, „Þetta mun ekki virka,“ „Bætum bara strætó“, og hið tímalausa uppáhald, „Það er verið að þrengja að einkabílnum!“

Ertu anti-woke eða er þetta rétt í nösunum á þér?
Hugtakið ,,woke“ hefur verið til í mörg ár. Það vísar til þess að vera meðvitaður um og ögra kerfisbundnum kynþáttafordómum, kynjamisrétti, misréttlæti gegn fólki með andleg veikindi, hinsegin fóbíu og annars konar kúgun. Að vera woke snýst um að viðurkenna að þessi kerfi eru til og að þau hafi neikvæð áhrif á líf fólks. Þetta snýst líka um að vera reiðubúinn að grípa til aðgerða til að taka þessi kerfi í sundur.

Hætturnar við að stöðva alþjóðavæðingu
Ástæða þessarar greinar er aukning þjóðernispopúlisma og þau slæmu áhrif sem hann hefur á alþjóðavæðinguna út um allan heim. Ég held að mjög margir átti sig hreinilega ekki á því hversu gífurleg áhrif það myndi hafa á líf þeirra ef alþjóðavæðingin myndi stöðvast.

Frændhyggja í íslenskum stjórnmálum
Ísland, þekkt fyrir stórkostlegt landslag og líflega menningu, hefur einstakt félagslegt og pólitískt landslag. Með næstum 400.000 íbúa hefur eyþjóðin í gegnum tíðina einkennst af nánum samfélögum og sterkum skyldleikaböndum.

Að hylja eigin skitu með þjóðernispopúlisma
Á undanförnum árum hefur popúlismi komið fram sem öflugt afl í stjórnmálum og heillað fjöldann með einfeldningslegri orðræðu sinni og loforðum um skjótar lausnir. Hins vegar er undir yfirborðinu hættulegt vopn sem getur sundrað samfélögum og viðkvæmum hópum.

Allt er breytingum háð - fögnum tilkomu rafmagnshlaupahjólanna
Eftir því sem borgir um allan heim verða aðþrengdari af bílaumferð, og mengun orðið stöðugt meira íþyngjandi fyrir íbúa, hefur það orðið sífellt mikilvægara að finna og bjóða upp á vistvæna og skilvirka ferðamáta. Rafmagnshlaupahjól hafa komið fram sem lausn á þessu vandamáli. Þau eru vinsæl ogveitia margvíslegan ávinning fyrir samfélagið, lýðheilsu íbúa, umhverfið og dýralífið.

Kæru börn eruð þið alltaf að flytja? Það eru til forvarnir
Kæru börn og unglingar, viti þið hvað það þýðir að leigja íbúð? Þegar þú leigir íbúð borgar þú peninga til eigandans svo þú getir átt heimili. Það gerir fólk að leigusala, en stundum dregur það fram það versta í fólki, þeir sem eiga eina eða fleiri íbúði notfærir sér fólk í neyð eins og foreldra þína til að græða óhóflega mikið.

Stefnan „stríðið gegn fíkniefnum“ er stórhættuleg, lærum af Portúgal!
„Stríðið gegn fíkniefnum“ hefur verið alþjóðleg stefnu í nokkra áratugi, en hún hefur ekki náð markmiðum sínum. Frekar en að draga úr fíkniefnaneyslu og skaða tengt eiturlyfjum hefur það leitt til margvíslegra neikvæðra afleiðinga, þar á meðal fjöldafangelsisvistunnar, aukið ofbeldi, aukin dauðsföll, og útbreiðslu smitsjúkdóma.