

Cristiano Ronaldo getur ekki spilað fyrsta leikinn með Al-Nassr alveg strax. Koma hans mun kosta annan leikmann starfið.
Flestir efast um að Cristiano Ronaldo tali gegn mannréttindabrotum í Sádí Arabíu á tíma sínum sem leikmaður Al-Nassr. Hann ætlar aftur á móti að hjálpa kvennafótboltanum í landi sem bannaði konum að mæta á kappleiki.
Cristiano Ronaldo er nýgenginn til liðs við Al Nassr í Sádi Arabíu þar sem hann fær 200 milljónir dollara í árslaun. Ronaldo vildi endurnýja kynni sín við gamla liðsfélaga en varð ekki að ósk sinni.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo er á leið í læknisskoðun hjá sádíska félaginu Al-Nassr í aðdraganda skipta sinn til liðsins. Sádar gera sér vonir um að ganga frá samningum fyrir áramót.
Cristiano Ronaldo er við það að ganga frá stærsta samningi fótboltamanns í sögunni við Sádi-Araba. Sjö ára samningur muni skila honum yfir 560 milljónum króna á viku.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir það hafa verið ákvörðun Ronaldo að yfirgefa félagið. Ten Hag hefði sjálfur verið til í að hafa Ronaldo lengur hjá félaginu, þangað til hann fór í viðtalið umdeilda við Piers Morgan.
Systir Cristianos Ronaldo hefur grátbeðið hann um að hætta í portúgalska landsliðinu.
Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik með Manchester United en hann og enska félagið tilkynntu um það í gær að þau hefðu komist að samkomulagi um starfslok.
Cristiano Ronaldo sendi frá sér stuttorða yfirlýsingu fyrr í kvöld eftir að hann og Manchester United komust að samkomulagi að því að rifta samningi leikmannsins. Hann segist enn elska félagið og stuðningsmennina, en að tími hafi verið kominn á breytingar.
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hefur leikið sinn síðasta leik fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United.
Cristiano Ronaldo var mættur á blaðamannafund portúgalska landsliðsins í morgun. Það virðist hafa komið mörgum á óvart því tiltölulega fáir blaðamenn voru mættir til að spyrja hann spurninga.
Anthony Elanga tók upp hanskann fyrir Cristiano Ronaldo í viðtali eftir landsleik Svíþjóðar og Mexíkó í vikunni. Gagnrýni Ronaldo gagnvart ungum leikmönnum í viðtali hans hjá Piers Morgan hefur vakið töluverða athygli.
Manchester United vinnur nú að því að reka Cristiano Ronaldo frá félaginu. Portúgalinn gerði sem kunnugt er allt vitlaust með viðtalinu umtalaða við Piers Morgan.
Cristiano Ronaldo heldur því fram í viðtalinu umtalaða við Piers Morgan að hann hafi verið „mjög ánægður“ hjá Manchester United í sumar og séð fram á spennandi leiktíð.
Seinni hluti viðtals Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var sýnt í kvöld. Þar sagði Ronaldo meðal annars að hann yrði ánægður að sjá Arsenal vinna deildina og þá ræddi hann einnig um virðinguna sem hann ber fyrir Lionel Messi.
Gary Neville fékk sinn skerf af gagnrýni frá Cristiano Ronaldo í viðtalinu umtalaða við Piers Morgan. Neville segir að Ronaldo eigi ekki afturkvæmt hjá United og segist ekki vera á móti Portúgalanum.
Landslið Argentína og Portúgals hafa innan borðs goðsagnakennda leikmenn á tímamótum og mæta á heimsmeistaramótið í Katar til að reyna að færa hetjum sínum langþráðan heimsmeistaratitil.
Cristiano Ronaldo segir að Manchester United hafi staðnað og lítið breyst síðan hann yfirgaf félagið árið 2009. Hann segir að Ole Gunnar Solskjær hefði þurft meiri tíma með liðið og að hann hafi aldrei litið á Ralf Rangnick sem stjórann.
Cristiano Ronaldo segir í viðtalinu umtalaða við fjölmiðlamanninn Piers Morgan að litlu hafi munað að hann myndi ganga til liðs við Manchester City sumarið 2021. Alex Ferguson var sá sem náði að sannfæra hann um að ganga frekar til liðs við Manchester United.
Katia Aveiro, systir portúgalska knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo, hefur komið bróður sínum til varnar eftir að hann settist niður í umdeilt viðtal við þáttastjórnandann Piers Morgan. Hún segir að bróðir sinn gæti klórað sér í pungnum það sem eftir er af ferlinum og það myndi ekki hafa nein áhrif á arfleifðina sem hann skilur eftir sig.
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo og kærasta hans, Georgina Rodriguez, eignuðust tvíbura í vor, dreng og stúlku. Drengurinn lést í fæðingu og Ronaldo hefur nú opnað sig um málið í viðtali sínu við þáttastjórnandann umdeilda, Piers Morgan.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, fundaði með forráðamönnum félagsins í gær eftir að brot úr umdeildu viðtali við Cristiano Ronaldo fóru að birtast. Hann vill losna við Portúgalann frá félaginu.
Viðtalið umtalaða sem Cristiano Ronaldo fór í, þar sem hann setti út á ýmislegt varðandi Manchester United, virðist hafa fallið illa í kramið hjá liðsfélaga hans í United og portúgalska landsliðinu, Bruno Fernandes.
Annar hluti af drottningarviðtali Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var birtur í kvöld. Þar segir Ronaldo að Glazer-fjölskyldunni, eigendum Manchester United, sé sama um félagið. Þá gagnrýnir hann Gary Neville og aðra fyrrum leikmenn Manchester United.
Manchester United mun ekki tjá sig opinberlega um viðtalið sem Cristiano Ronaldo fór í fyrr en félagið hefur ráðfært sig við lögfræðinga. Þetta kemur fram á Sky Sports.
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að Cristiano Ronaldo hafi skorað sjálfsmark með viðtali sínu við Piers Morgan. Hann segir að nær allir stuðningsmenn United myndi styðja Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins, frekar en Ronaldo.
Eftir að Cristiano Ronaldo fékk að vita að hann yrði ekki í byrjunarliði Manchester United gegn Fulham sagðist hann vera veikur.
Ráðamenn og leikmenn Manchester United eru reiðir og telja sig illa svikna vegna viðtalsins sem Cristiano Ronaldo fór í. Brot úr viðtalinu fóru að birtast skömmu eftir leik við Fulham í gær sem Ronaldo sagðist of veikur til að ferðast í.
Cristiano Ronaldo skýtur föstum skotum að sínum gamla samherja Wayne Rooney, sem gagnrýnt hefur Ronaldo, í viðtalinu við Piers Morgan sem vakið hefur mikla athygli.
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo segir að sér finnist Manchester United hafa svikið sig eftir að hann gekk aftur í raðir félagsins. Hann segir að félagið hafi reynt að bola sér út og að hann beri enga virðingu fyrir Erik ten Hag, knattspyrnustjóra félagsins.