
Viðey

Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar
Um 1.200 komu saman í Viðey í kvöld til að fylgjast með tendrun friðarsúlunnar. Kveikt var á friðarsúlunni í kvöld í 18. sinn.

Blæs á gagnrýni á bjartari Friðarsúlu
Friðarsúlan í Viðey mun skína skærar eftir að viðgerð á henni lýkur í september. Ristjóri Stjörnufræðivefsins gagnrýnir breytinguna en borgarfulltrúi segir verkið eiga enn meira erindi nú en áður og fólk hljóti að geta lifað með skærari geisla.

Friðarsúlan skín skærar
Útilistaverkið Friðarsúlan eftir Yoko Ono hefur verið magnað tákn um mikilvægi friðar frá því verkið var opinberað 2007.

Hefja gagngerar endurbætur á Friðarsúlunni í Viðey
Framkvæmdir við gagngerar endurbætur á Friðarsúlu í Viðey eru hafnar. Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, segir í samtali við fréttastofu að Friðarsúlan sé þörf áminning um friðarboðskap, sérstaklega vegna þróun heimsmála undanfarin ár.

Og Viðey hverfur sjónum
Í dag, 23. ágúst, lýkur kynningu á breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis, sem unnt er að nálgast gegnum www.skipulagsgatt.is Klettagarðar. Kynningin er fyrir svokallaða hagaðila og aðra þá sem láta sig málið varða.

Sex um borð þegar bátur strandaði í Viðey
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út af Landhelgisgæslunni í dag vegna vélavana báts rétt norðan við Viðey.

Vélarvana bátur strandaði við Viðey
Bátur varð vélarvana með sex manns um borð og rak hægt og rólega í áttina að Viðey þangað til að hann strandaði við eyjuna.

Gríðarlega gefandi að fá að hitta aðra í sömu sporum
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, heldur sumargleði í Viðey í kvöld. Verkefnastjóri hjá félaginu segir gríðarlega mikilvægt að félagsmenn fái tækifæri til að vera í kringum hvern annan, og starfsemi Krafts gefi þeim það tækifæri.

Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey
Litlu mátti muna að illa færi þegar skemmtiferðarskip lagði úr Sundahöfn í Reykjavík 26. maí árið 2023. Mikill vindhraði gerði það að verkum að stjórnendur misstu stjórn á skipinu. Um er að ræða skipið Norweigian Prima, sem siglir undir flaggi Bahamaeyja. Skipið er 140.000 tonn og um 300 metrar á lengd.

Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn
Bandaríski listamaðurinn Richard Serra er látinn 85 ára gamall. Hann var þekktastur fyrir listaverk sín úr stáli sem finna má um heima allan meðal annars í Viðey.

Leika listir sínar við Viðey
Hnúfubakar hafa leikið listir sínar örskammt frá landi í Reykjavík undanfarna daga. Þeir virðast njóta athygli vegfarenda í botn.

Loka kaffihúsinu á Árbæjarsafni
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hætta rekstri kaffihúss á Árbæjarsafni á næsta ári. Dregið verður úr þátttöku Borgarsögusafns í kostnaði á Safnanótt og Menningarnótt auk þess sem dregið veður úr dagskrá og aðgengi í Viðey.

Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar aflýst annað árið í röð
Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey, mánudaginn 9. október, hefur verið aflýst vegna veðurs. Sama viðburði var einnig frestað í fyrra vegna veðurs.

Emilíana Torrini syngur og Yoko Ono býður fría siglingu
Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 17. sinn mánudaginn, 9. október klukkan 20. Boðað er til friðsælrar athafnar en 9. október er fæðingardagur Johns Lennon. Friðarsúlan varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur hans.

Aflýsa viðburði við tendrun Friðarsúlunnar vegna veðurs
Engin athöfn verður í Viðey þegar Friðarsúlan verður tendruð á sunnudag en ákveðið var að aflýsa viðburðinum vegna veðurs. Friðarsúlan verður tendruð klukkan 20 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Hverfur í Viðey í ágúst árið 1956
Reykjavík – glæpasaga eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Ragnar Jónasson rithöfund kemur út þann 25. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veröld bókaútgáfu.

Forseti Lettlands: Ísland breytti sögunni
Í Höfða var þess minnst með hátíðarsamkomu að þennan dag árið 1991 var skrifað undir yfirlýsingar um stjórnmálasamband Íslands við Eistland, Lettland og Litháen og var sjálfstæði þeirra viðurkennt.

Vill sjá borgarstjórn bregðast við: „Þeir losna ekkert við mig“
Ekkert aðgengi er fyrir fólk í hjólastól að Viðey þrátt fyrir ítrekuð áköll um úrbætur. Formaður MND félagsins segir það svíða að geta ekki komist allt eins og aðrir og krefst viðbragða frá borginni.

Sárt að vera skilinn eftir á bryggjunni
Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, kallar eftir því að Reykjavíkurborg ráðist í úrbætur á aðgengi að Viðey fyrir fólk sem notast við hjólastól. Metnaðarleysið og sýndarmennskan sé alger.

Drógu tvo vélarvana báta að landi og björguðu örmagna göngumönnum
Tvisvar þurfti að kalla út björgunarskip Landsbjargar í dag, Gísli Jóns var kallaður út frá Ísafirði vegna vélarvana strandveiðibáts og Sjöfn í Reykjavík var kölluð út vegna vélarvana skemmtibáts við Viðey. Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að bjarga örmagna göngumönnum á Sprengisandsleið og aðstoða mann sem hrasaði við Hengifoss.