Tónleikar á Íslandi

Tvö féllu í yfirlið og allur varningur seldist upp
Tæplega tíu þúsund manns mættu á IceGuys í tónleika í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina og segir einn skipuleggjanda tónleikanna aldrei séð aðra eins eftirspurn eftir miðum. Að minnsta kosti tvö féllu í yfirlið á tónleikunum og fengu aðstoð sjúkraliða á staðnum.

Logi Bergmann í banastuði á sveittum tónleikum Auðuns
Auðunn Lúthersson er mættur til landsins og tróð upp fyrir fullu húsi í Iðnó á laugardagskvöldið. Fremstur í flokki tónleikagesta var sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann sem skemmti sér konunglega.

Folar fagna stórafmæli
Gísli Örn Garðarsson leikari og Herbert Guðmundsson tónlistarmaður standa á tímamótum í dag. Þeir fagna stórafmæli sínu hvor með sínum hætti. Annar í Brasilíu en hinn með nýbakaðri tebollu og því að gera það sem hann gerir best - að skemmta fólki.

Blöndal og Gröndal í Fitzgerald-jólaham
Rebekka Blöndal og Ragnheiður Gröndal koma fram saman á jólaháskólatónleikum á stað og í streymi á morgun.

Boðskapur jólaplötu Mariuh Carey eigi sjaldan betur við en nú
Kristján Hrannar Pálsson, organista og kórstjóra Grindavíkurkirkju, rak í rogastans þegar hann áttaði sig á dýpt jólaplötu tónlistarkonunnar Mariah Carey. Platan verður flutt á söfnunartónleikum fyrir fjölskyldur úr Grindavík sem haldnir verða næstkomandi miðvikudagskvöld í Bústaðakirkju.

Varð fyrir ælu á Baggalút
Jólatónleikatímabilið er farið af stað með allri sinni gleði og einstaka uppkasti eins og gestur á tónleikum Baggalúts í Háskólabíó fékk að kynnast í gærkvöldi. Víða var tekið á því á köldu föstudagskvöldi.

Evrópuferðalagið í leka húsbílnum endar við Reykjavíkurtjörn
Strákarnir í rokkhljómsveitinni Vintage Caravan leggja í kvöld lokahnykkinn á Evrópuferðalag sitt, á tónleikum í Iðnó. Óskar Logi Ágústsson segir að líklega muni hann leggjast í dá að kvöldinu loknu en segist spenntur fyrir því að fara loksins á svið fyrir íslenska áhorfendur.

Frumsýning á Vísi: „Fram í rauðan dauðann“
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á myndbandi við lagið Fram í rauðan dauðann eftir tónlistarmanninn JóaPé. Lagið er að finna á samnefndri plötu en myndbandið er einnig hluti af stuttmynd sem JóiPé frumsýnir í kvöld.

Þetta er Purrkur Pillnikk
Purrkur Pillnikk, sú goðsagnakennda pönksveit sem margir muna úr kvikmyndinni Rokki í Reykjavík og margir telja reyndar eina bestu hljómsveit þess merka tímabils í tónlistarsögunni, eru að senda frá sér heildarsafn verka sinna og nýtt efni að auki. Þeir stíga á stokk á laugardaginn komandi.

Breyttu nafninu til að vera sem minnst spurð út í það
Íslenska hljómsveitin ex.girls var að senda frá sér breiðskífuna Verk. Lagið 90 oktan af plötunni var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.

Tónlistarveisla til heiðurs Agli Ólafssyni
Fjölmennt var á tónleikum til heiðurs Agli Ólafssyni í menningarhúsinu Hofi á Akureyri liðna helgi. Þar var farið yfir glæstan tónlistarferil Egils með sérstakri áherslu á Þursaflokksárin.

GusGus kom, söng og sigraði
Tveir hljóðfæraleikarar eru að spila í krá í villta vestrinu, annar á kontrabassa og hinn á píanó. Inn á krána gengur illilegur náungi með alvæpni. Bassaleikarinn segir þá við píanóleikarann: „Það er vondur maður að koma... spilaðu í molltóntegund!“

Ástarlag til löngu strætóferðanna
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Mikaels Mána við lagið Bus Song. Lagið er ástarlag til Strætó en strætóferðir hans á táningsárum mótuðu tónlistarsmekk hans og líf.

Hvað stoltust af því að vera lesbía
„Ég held að það að vera hinsegin sé eitthvað sem ég er hvað stoltust af í lífinu,“ segir tónlistarkonan Margrét Rán sem er hvað þekktust fyrir að vera meðlimur í tveimur stórum íslenskum hljómsveitum, Vök og GusGus.

Auður heldur tónleika hér á landi í fyrsta sinn í rúm tvö ár
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, Auður, mun halda tónleika í Iðnó í desember. Þetta er í fyrsta sinn sem hann heldur tónleika hérlendis frá því að hann dró sig úr sviðsljósinu eftir að hafa verið sakaður um kynferðisbrot gagnvart nokkrum konum fyrir rúmum tveimur árum.

Ásgeir Trausti og fíllinn í postulínsbúðinni
Ásgeir Trausti kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Anthony Weeden á Airwaves í Eldborginni í Hörpu á föstudagskvöldið. Það var svona og svona.

Syngja um samfarir á eldhúsborðinu
Lista- og poppteymið Kvikindi var að senda frá sér glænýtt lag sem ber þann ögrandi titil Ríða mér. Kvikindi hreppti nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins og kemur fram á tónlistarhátíðinni Airwaves í kvöld.

Zara Larsson með tónleika í Höllinni
Sænska tónlistarkonan Zara Larsson mun halda stórtónleika í Laugardalshöllinni laugardaginn 16. mars 2024.

„Þetta var hans einlæga ósk“
„Við köllum okkur vini Ragga Bjarna. Við eigum það sameiginlegt að hafa unnið með honum á einhverjum tímapunkti í lífi hans,“ segir leikarinn Björgvin Franz Gíslason. Hann er einn þeirra listamanna sem stendur að baki viðburði sem haldinn verður í Lindakirkju á morgun, fimmtudaginn 26. október.

Níðþunga dómsdagsrokkssveit rekur á strendur landsins
Dómsdagsrokkssveitin Bongripper leikur fyrir hausaskaki fimmtudaginn 26. október á Gauknum, í fyrsta sinn á Íslandi.

Umdeild auglýsing tekin úr birtingu: „Ég skammast mín ekkert fyrir hana“
Stórsöngvarinn Geir Ólafsson sér ekki eftir umdeildri auglýsingu sinni sem tekin var úr birtingu. Hann segist ekki hafa ætlað að móðga neinn og segir auglýsinguna, sem er fyrir Las Vegas-jólatónleika hans, byggja á sannsögulegum atburðum.

Myndaveisla: Skáluðu fyrir sorginni í Sky Lagoon
Einstök stemmning skapaðist á góðgerðartónleikunum, Sungið með sorginni, í Sky Lagoon í gærkvöldi þegar tónlistarfólkið Guðrún Ýr Eyfjörð, eða GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson, Salka Sól Eyfeld, Karl Olgeirsson og DJ Dóra Júlía skemmtu gestum.

Heimurinn að farast en maður tekur ekkert eftir því
Í fyrstu kvikmyndinni um Tortímandann, með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki, er atriði þar sem tónlist kemur við sögu. Ung kona með afskaplega hallærislega hárgreiðslu þess tíma, 1984, er að útbúa sér nætursnarl. Hún er í skýjunum eftir að hafa stundað villt kynlíf með kærasta sínum.

Viðtal við 80's goðsagnir í fullri lengd: Hrifnir af Íslandi og hafa engu gleymt
Í gærkvöldi sveif andi níunda áratugarins yfir vötnum í Hörpu þegar Todmobile hélt tvenna afmælistónleika í röð en gestir hljómsveitarinnar voru ekki af verri endanum.

Átrúnaðargoðin úr áttunni ætla að trylla lýðinn með Todmobile
Þrjár helstu goðsagnirnar níunda áratugarins eru mættar á klakann og ætla að hjálpa Todmobile að fagna rækilega 35 ára afmæli hljómsveitarinnar með tónlistarveislu annað kvöld í Hörpu. Níundi áratugurinn verður í algjörum forgrunni en tvennir tónleikar fara fram annað kvöld.

„Íslendingar virðast oft eiga heimsmet í skammsýni“
„Okkur þykir einstaklega vænt um að vera partur af hátíð sem þessari þar sem okkur er svo innilega annt um umhverfi okkar og þá náttúruperlu sem hálendi okkar Íslendinga er,“ segir hljómsveitin Celebs, sem kemur fram á Hálendishátíðinni á miðvikudagskvöld í Iðnó.

Björgvin Franz búinn að taka fram leðurbuxurnar
„Það er ótrúlegur heiður að fá að fá að syngja þessi lög og heiðra minningu söngvara sem ég hef elskað síðan ég var 14 ára,“ segir Björgvin Franz Gíslason sem um helgina bregður sér í hlutverk Jim Morrisson.

„Húmorinn hefur bjargað lífi mínu oftar en einu sinni“
„Upphaflega var stefnan að spila í tvö skipti yfir eina helgi en þau plön breyttust. Við störtuðum algjöru mambó-æði sem gekk yfir landið næstu tvö ár,“ segir Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font, einn af stofnendum Milljónamæringanna.

Köld Reykjavík, sætar stelpur og svefnleysi innblástur
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Spacestation hefur hlotið góðar viðtökur. Ætlunin er að endurvekja rokkhljóm sjöunda áratugarins og skapa „tónlist fyrir fallegt fólk“.

Nylon saman á ný
Tæp tuttugu ár eru síðan stúlknasveitin Nylon steig fyrst á svið. Eftir að hafa slegið í gegn á Íslandi starfaði sveitin í Bretlandi en eftir að ein söngkonan hætti fluttust hinar þrjár til Los Angeles þar sem þær komu fram allt til ársins 2015. Í fyrsta sinn síðan árið 2007 steig hinn upprunalegi Nylon hópur á svið á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt. Þar fluttu þær lagið Einu sinni enn, sem nú er hægt er að nálgast á Spotify.