
Byggingariðnaður

Horfast þurfi í augu við efnahagslegar afleiðingar kjarasamninga
Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi félagsmálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins situr nú í forstjórastóli BM Vallár og horfir á pólítíkina og vinnumarkaðinn utan frá. Hann segir íslenska vinnumarkaðslíkanið ónýtt. Ekki hjálpi til að aukin harka hafi færst í samskipti milli aðila vinnumarkaðarins undanfarin ár, ekki síst með tilkomu nýrrar forystu í verkalýðsfélögunum.

Keflavíkurflugvöllur: Búið að grafa upp tæpa 50 þúsund rúmmetra fyrir viðbyggingu
Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.

Tvö tilboð bárust í þetta skiptið vegna viðbyggingar við Akureyrarflugvöll
Tvö tilboð bárust Isavia Innanlandsflugvöllum í viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Tilboðin bárust frá verktakafyrirtækjunum Húsheild og Hyrna, en þetta var í annað sitt sem verkið var boðið út.

Meira byggt í Bolungarvík en sést hefur í seinni tíð
Óvenju mikil umsvif eru í húsbyggingum í Bolungarvík, bæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Ráðamenn bæjarins segjast í seinni tíð ekki hafa séð annan eins fjölda umsókna um lóðir undir nýjar íbúðir.

Bjóða viðskiptavinum að sleppa við afgreiðslukassann
Húsasmiðjan hefur tekið í notkun sérstakt sjálfsafgreiðsluapp þannig að viðskiptavinir geti greitt fyrir vörur um leið og þær eru skannaðar ofan í körfu í verslun. Viðskiptavinir þurfa því ekki að greiða við kassann.

Slegist um nýjar íbúðarlóðir á Hellu
Hella er að verða einn vinsælasti staðurinn á Suðurlandi til að búa á því rúmlega eitt hundrað lóðarumsóknir bárust um sautján lóðir, sem var úthlutað í vikunni. Í nokkrum tilfellum vorum fjórtán umsóknir um sömu lóðina.

Dagur segir næstu tíu ár verða áratug Reykjavíkur
Næstu tíu ár verða áratugur Reykjavíkur í uppbyggingu íbúðarhúsnæði að sögn borgarstjóra. Nægt framboð sé af lóðum og þúsundir íbúða verði byggðar á næstu mánuðum og árum.

Bein útsending: Uppbygging íbúða í Reykjavík
Árviss kynningarfundur borgarstjóra Reykjavíkur um uppbyggingu íbúða í borginni verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur milli klukkan 9 og 11. Hægt er að horfa á fundinn á Vísi.

Sementsskortur á landinu sem gæti komið byggingaiðnaðinum illa
Sementsskortur er yfirvofandi á landinu, sem valdið hefur steypuframleiðendum verulegum vandræðum. Framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar segir að fyrirtækið geti nú aðeins þjónustað helming viðskiptavina sinna og gæti skorturinn haft veruleg áhrif á byggingariðnað á landinu.

Tíu milljarða króna sementsverkefni í Ölfusi
Stefnt er að því að flytja milljón tonn af íblöndunarefni í sement úr landi frá Þorlákshöfn.

Gervigreind byltir byggingabransanum
Upplýsingar um styrk og hita berast í rauntíma frá þráðlausum nemum sem settir eru út í steypuna.

Endurreisum Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins!
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins (Rb) stofnuð 1965, var formlega tekin af lífi þann 1. júlí síðastliðinn. Til verksins var fenginn ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar. Félagsmálaráðuneytið undir stjórn barnamálaráðherra sá um jarðsetninguna.

Afturkalla kyrrsetningarbeiðnir vegna uppbyggingar á Kirkjusandi
Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) og 105 Miðborg slhf. hafa náð samkomulagi um að afturkalla kyrrsetningarbeiðnir gagnvart hvort öðru og að uppgjöri vegna ágreiningsmála þeirra verði lokið með hefðbundnum hætti fyrir dómstólum.

Bein útsending: Stafrænn byggingariðnaður – áskoranir og ávinningur
Hvernig getur notkun stafrænnar tækni og upplýsingalíkana í mannvirkjagerð mætt áskorunum í byggingariðnaði?

ÍAV vilja fá 3,8 milljarða eftir að þeim var úthýst á Kirkjusandi
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) fara fram á að 105 Miðborg slhf. og Íslandssjóðir hf. greiði félaginu 3,8 milljarða króna í tengslum við deilur um uppbyggingu á svokölluðum Kirkjusandsreit.

Bein útsending: Umhverfisvæn steypa
Ólafur Wallevik, prófessor við iðn- og tæknifræðideild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um kolefnisspor steypu og hvernig má þróa hana svo hún verði með vistvænustu byggingarefnum sem Íslendingar eiga kost á. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12 og verður hægt að fylgjast með í spilaranum hér fyrir neðan.

Allt á suðupunkti í deilum um byggingar á Kirkjusandi
105 Miðborg í stýringu Íslandssjóða hefur ráðið nýjan verktaka til að ljúka framkvæmdum á kirkjusandsreitnum eftir að hafa rift samningi við Íslenska aðalverktaka um byggingu þriggja húsa upp á um tíu milljarða króna.

Íslenskum aðalverktökum úthýst á Kirkjusandi
Verktakafyrirtækið Íslenskir Aðalverktakar mun ekki ljúka uppbyggingu svæðisins við Kirkjusand þar sem tvö stór fjölbýlishús og 7000 fermetra skrifstofubygging er að rísa.