Íslenskt fyrirtæki á lista Financial Times yfir framúrskarandi fyrirtæki Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 25. desember 2023 15:58 Treble Technologies var stofnað árið 2020. Treble Íslenska tæknifyrirtækið Treble Technologies, sem sérhæfir sig í hljóðhermun, er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki sem þóttu skara fram úr á árinu.
Treble hlaut tilnefningu í flokki fyrirtækja sem þjónusta framleiðslu- og byggingariðnað en tilnefnt var í níu flokkum. Fjögur fyrirtæki hlutu tilnefningu í flokki þjónustu við framleiðslu- og byggingariðnað og norski viðarframleiðandinn Kebony bar sigur út býtum. Tilnefningar og sigurvegara í öllum flokkum má nálgast á síðu Financial Times. Í ár skoðaði Financial Times sérstaklega hvernig fyrirtæki í Evrópu hafa tekið áskorunum og tækifærum sem byltingkenndar tækninýjungar hafa í för með sér, líkt og gervigreind, til að leysa raunveruleg vandamál og skapa jákvæðar breytingar. Listi tilnefndra fyrirtækja var settur saman af hópi sérfræðinga frá Finanicial Times, samstarfsaðilum og óháðum dómurum úr tækniiðnaðinum, háskólum og hinu opinbera. Í ár skoðaði hópurinn hvernig fyrirtæki í Evrópu hafa tekið áskorunum og tækifærum sem byltingkenndar tækninýjungar hafa í för með sér til að mynda gervigreind. „Byltingarkennd tækni Treble hefur notagildi víða, m.a. við hljóðhönnun bygginga, bíla, hátalara og til sköpunar á hinum ýmsu sýndarupplifunum. Með tækni Treble er hægt að herma hvernig hljómtækjabúnaður á borð við sjónvarp eða hátalarar munu hljóma áður en framleiðsla hefst,“ segir í fréttatilkynningu frá Treble. „Að auki er tækni Treble notuð til þess að þjálfa gervigreind sem er í nýrri kynslóð hátalara, í fjarfundarbúnaði og í snjallhátölurum. Treble vinnur með mörgum af stærstu tæknifyrirtækjum heims, en fjögur af tíu stærstu tæknifyrirtækjum heims eru nú þegar að nýta tækni Treble,“ segir jafnframt.
Nýsköpun Tækni Gervigreind Byggingariðnaður Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira