Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 15 ›
Sendir Biden háðsglósur á fyrsta kosningafundi eftir banatilræðið Í gær hélt Donald Trump fyrsta kosningafund sinn eftir að honum var ráðið banatilræði á kosningafundi í Pennsylvaníuríki á laugardaginn síðasta. Einn lést og tveir særðust ásamt því að eitt skotið hæfði Trump í hægra eyrað og særði hann lítillega. Fundurinn var haldinn í Michiganríki. Erlent 21.7.2024 10:41
Horfir nýjum augum á frambjóðendur eftir eigið framboð Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að framboð sitt til forseta hafi breytt sýn hans á alla frambjóðendur. Hann telji sig skilja betur það sem þeir gangi í gegnum. Innlent 20.7.2024 15:29
Sagði guðlega forsjá hafa bjargað sér og lofaði stuðningsmenn sína Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var fagnað eins og rokkstjörnu þegar hann steig á svið á landsþingi Repúblikanaflokksins í gær. Hann sagði guðlega forsjá hafa bjargað sér frá banatilræði um helgina og lofaði hugrekki stuðningsmanna sinna. Erlent 19.7.2024 06:43
Selenskí tilbúinn að vinna með Trump Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir það gæti orðið erfitt að vinna með Donald Trump, verði hann endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, en hann óttist ekki erfiði. Hann kveðst tilbúinn til að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum. Erlent 18.7.2024 23:52
Myndir: Gestir á landsþingi Repúblikana skarta sárabindum á eyranu Landsþing Repúblikanaflokksins fer fram þessa dagana í Milwaukee í Bandaríkjunum. Donald Trump var formlega útnefndur forsetaefni flokksins og hann tilkynnti þá um varaforsetaefni sitt, hann J.D. Vance. Erlent 18.7.2024 14:54
Forysta Demókrataflokksins farin að þrýsta á Biden Forysta Demókrataflokksins virðist vera farin að setja þrýsting á Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stíga til hliðar í forsetakosningunum og hleypa öðrum að. Erlent 18.7.2024 11:30
Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Árásarmaðurinn sem særði Donald Trump og myrti áhorfanda á kosningafundi í Pannsylvaníu á laugardag datt inn á radar lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) um klukkustund áður en hann lét til skarar skríða. Erlent 18.7.2024 07:16
Hét því að endurvekja bandaríska drauminn „Ég heiti hverjum Bandaríkjamanni því, hvaða flokk sem þú kýst, að gefa allt sem ég hef. Að þjóna ykkur og gera þetta land að stað þar sem þeir draumar sem þú átt fyrir sjálfan þig, fjölskyldu þína og landið þitt geta orðið að raunveruleika.“ Erlent 18.7.2024 06:47
Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Joe Biden Bandaríkjaforseti er að leggja lokahönd á tillögur að breytingum á lögum um hæstarétt, sem munu meðal annars fela í takmörk á skipunartíma dómara. Erlent 17.7.2024 12:48
Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Nikki Haley, fyrrverandi keppinautur Donald Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir foretakosningarnar í Bandaríkjunum, fór fögrum orðum um manninn þegar hún steig á svið á landsþingi flokksins í gær. Erlent 17.7.2024 07:51
Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Sérfræðingar í utanríkismálum eru uggandi eftir að Donald Trump tilkynnti um val sitt á varaforsetaefni. Valið bendi til þess að einangrunarhyggja muni mögulega ráða för í utanríkispólitík Bandaríkjanna ef Trump nær kjöri. Erlent 17.7.2024 07:02
Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum. Erlent 17.7.2024 00:11
Hver er J.D. Vance? Á landsþingi Repúblikanaflokksins í Wisconsinfylki í gær var tilkynnt að J.D. Vance yrði varaforsetaefni Trumps í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Vance er ekki ýkja þekktur á heimsvísu en hefur verið þekkt stærð í bandarískum stjórnmálum síðan hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður árið 2022, 38 ára að aldri. Erlent 16.7.2024 11:15
Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði Auðjöfurinn Elon Musk hyggst leggja kosningabaráttu Donald Trump til 45 milljónir dala á mánuði en hann hefur þegar gefið umtalsverðar upphæðir til framboðsins. Erlent 16.7.2024 06:32
„Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Stjórnmálafræðiprófessor segir fátt hafa getað verið Donald Trump hagfelldara en atburðarásin á kosningafundi hans á laugardag. Hann sé kominn í dauðafæri í baráttunni um forsetaembættið og hann þurfi að geiga verulega til að klúðra því. Erlent 15.7.2024 23:58
Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna James David Vance, tilvonandi varaforsetaefni Donalds Trump, hefur ekki verið í fylkingu forsetans fyrrverandi um langt skeið, en virðist í dag einn af hans dyggustu stuðningsmönnum. Stjórnmálamenn velta því upp hvort Vance, sem sagði meðframbjóðanda sinn asna og vítaverðan opinberlega fyrir átta árum, sé drifinn af tækifærismennsku. Erlent 15.7.2024 22:57
J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tilkynnti fyrir skömmu að J.D. Vance yrði varaforsetaefni í framboði hans. James David Vance er öldungadeildarþingmaður frá Ohio og er 39 ára gamall Erlent 15.7.2024 19:10
Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Donald Trump hefur enn ekki greint frá því hvern hann hyggst útnefna sem varaforseta efni sitt en hann er sagður hafa farið fram og til baka, líkt og árið 2016. Erlent 15.7.2024 12:12
„Ég ætti að vera dauður“ „Ég á að vera dauður,“ sagði Donald Trump við New York Post í gær, þegar hann ræddi við miðilinn um banatilræðið sem hann lifði af. Hann sagði upplifunina hafa verið „afar súrrealíska.“ Erlent 15.7.2024 07:58
Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði bandarísku þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi og hvatti til samstöðu gagnvart sundrung og reiði. Hann sagði of mikinn hita og reiði einkenna pólitíska orðræðu í landinu og hvatti menn til að „kæla hana niður“. Erlent 15.7.2024 06:49
Ástand hinna særðu sagt stöðugt Tveir karlmenn, einn á sextugsaldri og annar á áttræðisaldri, voru fluttir á sjúkrahús alvarlega særðir eftir skotárásina á kosningafundi Donalds Trump í gær, þegar einn lést og árásarmaðurinn var skotinn til bana. Ástand mannanna tveggja er sagt stöðugt. Erlent 14.7.2024 23:53
Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Formaður utanríkismálanefndar segir skautun í stjórnmálum áhyggjuefni hér á landi sem og í útlöndum. Blammeringar gagnvart íslenskum ráðamönnum fyrir að óska Donald Trump góðs bata í kjölfar skotárásarinnar í gær séu í anda skautunar og hana beri að varast. Erlent 14.7.2024 21:53
Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins Erlendir miðlar greina frá því að sprengjur hafi fundist í bíl Thomasar Crooks, sem og á heimili hans. Bíllinn fannst nálægt svæðinu þar sem kosningafundurinn fór fram í gær. Erlent 14.7.2024 16:56
„Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ „Ég hugsa nú til ykkar, mínir kæru Bandaríkjamenn. Við höfum alltaf verið sérstakt bandalag. Núna hriktir í grunnstoðum landsins okkar, en hugrekkið og skynsemin verða að rísa og sameina okkur á ný.“ Þetta eru upphafsorð yfirlýsingar sem Melania Trump gaf frá sér í dag, í kjölfar skotárásarinnar á eiginmann hennar Donald Trump. Þar sagði hún að mikilvægt væri að sýna fólki virðingu og að ástin væri ofar öllu. Erlent 14.7.2024 16:36
Árásin komi til með að auka stuðning við Trump Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, telur líklegt að morðtilræðið gegn Donald Trump í gærkvöldi komi til með að styrkja kosningabaráttu hans, að minnsta kosti til skemmri tíma. Erlent 14.7.2024 14:00
Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gær hét Thomas Matthew Crooks og var tvítugur. Leyniþjónusta Bandaríkjanna drap Crooks skömmu eftir að hann hleypti af nokkrum skotum sjálfur. Erlent 14.7.2024 07:38
Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti var fluttur á sjúkrahús í snarhasti eftir að skotum var hleypt af á kosningafundi í Pennsylvaníuríki í kvöld. Þátttakandi á fundinum lét lífið og annar var fluttur á sjúkrahús alvarlega særður. Byssumaðurinn var skotinn til bana af leyniþjónustumönnum eftir árásina. Erlent 13.7.2024 22:23
„Biden á langa sögu af mismælum“ Joe Biden forseti Bandaríkjanna sýndi að hann hefur góða þekkingu og innsýn í utanríkis- og varnarmál á blaðamannafundinum sem hann hélt í gær. Þetta er mat Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa og áhugamanns um bandarísk stjórnmál, sem var álitsgjafi í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ætli Biden sér að vinna kosningarnar þurfi hann hins vegar að standa sig vel í öðrum málum. Hann segir Biden eiga langa sögu af mismælum, en nú sé auðvelt fyrir andstæðinga að nota mismælin gegn honum. Erlent 12.7.2024 23:48
„Já ég veit muninn... annar er saksóknari hinn er glæpamaður“ Þrír bættust í hóp þeirra þingmanna Demókrataflokksins sem kalla nú eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar í forsetakosningunum vestanhafs eftir blaðamannafund forsetans í gærkvöldi. Erlent 12.7.2024 07:22
56 prósent Demókrata vilja að Biden stígi til hliðar Tveir af hverju þremur Bandaríkjamönnum segir Joe Biden Bandaríkjaforseta eiga að draga sig í hlé í forsetakosningunum vestanhafs. Alls eru 56 prósent Demókrata sama sinnis og sjö af hverjum tíu óháðum. Erlent 11.7.2024 11:54