
Hoppukastalaslys á Akureyri

Dómari þarf ekki að víkja þrátt fyrir að hafa lýst persónulegri skoðun sinni
Hlynur Jónsson, dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, þarf ekki að víkja sæti í hoppukastalamálinu svokallaða. Landsréttur staðfesti í lok síðasta mánaðar úrskurð héraðsdóms, Hlyns sjálfs, þess efnis.

Hundraðasta ferð ársins á Esjuna tileinkuð Klöru
Vaskir göngugarpar arka nú upp Esjuna og einn þeirra í hundraðasta sinn á árinu. Ferð þessi er tileinkuð ungri hetju sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysi.

Mögulega meiri vindur en talið var þegar kastalinn fór á loft
Nýtt mat sýnir að vindur var mögulega meiri en talið var í fyrstu þegar hoppukastalaslysið var á Akureyri fyrir rúmum tveimur árum. Fimm eru ákærðir í málinu en fjögur börn slösuðust, þar af eitt fyrir lífstíð.

Viðsnúningur í hoppukastalamálinu
Landsréttur hefur fyrirskipað dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra að kalla til tvo matsmenn til að reyna að svara betur þeim spurningum hvað varð til þess að hoppukastali fullur af börnum tókst á loft á Akureyri í júlí 2021.

Hoppukastalamálinu ekki vísað frá
Dómari í Hoppukastalamálinu svokallaða féllst ekki á frávísun málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra nú síðdegis. Málið verður því tekið til efnismeðferðar.

Áskorun um að víkja vegna ákæru
Þetta gengur ekki, það er ljóst. Hér með skora ég á Heimi Örn Árnason forseta bæjarstjórnar Akureyrar að víkja úr embættum sínum á meðan ákæran vegna líkamsmeiðinga af gáleysi er til meðferðar hjá yfirvöldum. Það er sjálfsagt að hver maður verji sig fyrir dómi.

Neita sök í hoppukastalamáli
Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnarinnar á Akureyri, neitaði sök þegar hoppukastalamálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Það sama gerðu hinir fjórir sakborningarnir í málinu. Allir fimm krefjast þess að málinu verði vísað frá.

Harma að sjálfboðaliðar séu dregnir fyrir dóm
Forsvarsmenn Knattspyrnufélags Akureyrar harma að ákæruvaldið hafi ákveðið að ákæra sjálfboðaliða sem fengnir voru til að sinna miðasölu og umsjón með risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Sér í lagi þar sem eigandi hoppukastalans hafi ítrekað lýst ábyrgð sinni í fjölmiðlum. Forseti bæjarstjórnar er annar sjálfboðaliðanna sem sætir ákæru. Meirihlutinn á Akureyri lýsir yfir fullu trausti við störf hans.

Forseti bæjarstjórnar á Akureyri ákærður vegna hoppukastalaslyssins
Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar á Akureyri, er meðal fimm ákærðra í máli vegna slyss í hoppukastala á Akureyri fyrir einu og hálfu ári síðan. Sakborningarnir eru taldir hafa sýnt af sér aðgæsluleysi og vanrækslu.

Safnaði nærri tvö hundruð þúsund krónum fyrir stelpu sem hún þekkir ekki
Ellefu ára stelpa, sem hljóp í dag tíu kílómetra til stuðnings Klöru litlu, sem lenti í hoppukastalaslysi á Akureyri síðasta sumar, segist stolt af árangrinum. Hún þekkir ekki til Klöru en hefur safnað nærri tvö hundruð þúsund krónum fyrir hana.

Hlaupa til styrktar sjö ára stúlku sem slasaðist í hoppukastalaslysinu
Áfram Klara er nýstofnað góðgerðarfélag sem ætlað er að styðja við bakið á Klöru, sjö ára stúlku sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysi á Akureyri síðasta sumar. 29 níu manns hafa skráð sig til að hlaupa fyrir styrkjum henni til handa í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn.

Enn langt í að niðurstaða fáist í hoppukastalaslysið á Akureyri
Saksóknari hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra telur líklegt að óskað verði eftir dómkvöddum matsmanni til að meta hvernig hoppukastali, sem tókst á loft með hrikalegum afleiðingum á Akureyri í fyrrasumar, var festur. Rannsókn málsins er sögð á lokastigi. Eftir niðurstöðu matsmanns fer málið til ákærusviðs lögreglu sem mun gefa sér tíma til að meta hvort gefin verði út ákæra.

Taka þátt í krefjandi þrautum til styrktar stúlkunni sem slasaðist alvarlega í hoppukastalanum
Aðstandendur stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysinu á Akureyri í sumar hafa hafið söfnun til styrktar stúlkunnar og fjölskyldu hennar.

Hoppukastalaslysið enn til rannsóknar þremur mánuðum eftir slysið
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á hoppukastalaslysi á Akureyri stendur enn yfir. Sex ára gamalt barn slasaðist alvarlega þegar kastalinn tókst á loft.

Foreldrar íhuga að leita réttar síns vegna hoppukastalaslyss
Foreldrar barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri síðasta fimmtudag íhuga að leita réttar síns og fara fram á skaðabætur, samkvæmt heimildum fréttastofu. Sjötíu börn voru í kastalanum þegar hann tókst á loft. Þar af var eitt þeirra flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur og sex send til aðhlynningar á sjúkrahús á Akyreyri. Eitt barn slasaðist alvarlega og er haldið sofandi á sjúkrahúsi.

Einhverju hafi verið ábótavant við festingar
Verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna segir alveg skýrt að eitthvað hafi verið ábótavant við festingar eða frágang þegar hoppukastali tókst á loft á Akureyri í fyrradag. Það vanti skýrari reglur í kring um starfsleyfi slíkra tækja hér á landi.

Verklagsreglur varðandi uppsetningu Skrímslisins á Akureyri í ólestri
Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra segir að aldrei hafi komið til kasta eftirlitsins þegar hoppukastalinn var settur upp í bænum.

Sex ára barn á gjörgæslu eftir hoppukastalaslysið
Sex ára gamalt barn er á gjörgæslu á Landspítala eftir að hoppukastali tókst á loft á Akureyri á þriðja tímanum í gær.

Engir fullorðnir starfsmenn við Skrímslið: „Það greip um sig alger ringulreið“
Foreldri sem varð vitni að því þegar hoppukastali, Skrímslið svokallaða, tókst á loft á Akureyri í dag segir að mikil ringulreið hafi gripið um sig meðal foreldra þegar vindhviða feykti kastalanum á loft. Hann segist hissa á því að enginn fullorðinn starfsmaður hafi verið á staðnum og segir unglingsstráka um 15 ára aldur hafa verið einu starfsmennina á staðnum.

„Ég ber ábyrgð á því sem er að gerast þarna“
„Í fyrsta lagi er ég gjörsamlega miður mín, og ég skil ekkert í þessu. Við fylgjum þeirri reglu að það er bara lokað í vindi. Hann er ekki blásinn upp í vindi,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar.

Bæjarstjóranum brugðið vegna Skrímslisins sem tókst á loft
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri segist ekki vita mikið um stöðu mála sem stendur en mikill viðbúnaður er í bæjarfélaginu vegna hoppukastalans, sem ber nafnið Skrímslið, sem hófst á loft og í honum 108 börn.

Fjöldi barna í risastórum hoppukastala sem tókst á loft á Akureyri
Fjöldi barna var í risastórum hoppukastala sem tókst á loft við Skautahöllina við Naustaveg á Akureyri á þriðja tímanum í dag. Sex voru flutt til skoðunar á sjúkrahús á Akureyri og eitt með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur.