Fíkniefnabrot

Sex í gæsluvarðhaldi í tengslum við kókaíninnflutning
Á síðustu tveimur vikum hafa níu verið handteknir í tengslum við fjögur mál tengdum innflutningi á kókaíni. Sex sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málanna.

Gripin með hálft kíló af kókaíni innvortis
Erlend kona hefur verið dæmd í sjö mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla hálfu kílói af kókaíni til landsins þann 18. júní síðastliðinn. Konan kom til landsins með flugi frá París í Frakklandi.

Töluðu um gott innbrot eftir þjófnað á Rólex og Louis Vuitton
Pólskir bræður hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfelld fíkniefnabrot og þjófnað. Meðal rannsóknaraðferða lögreglu var uppsetning eftirlitsmyndavélar og notkun eftirfarar- og hlerunarbúnaðar á bifreið sakbornings.

Tvö burðardýr fá þunga dóma
Maður og kona af erlendum uppruna fengu í dag þunga dóma í Héraðsdómi Reykjaness. Fólkið hafði flutt inn kókaín en var hvorki eigandi þess né hafði skipulagt dreifinguna.

Sagðist ekki vilja drepa hann áður en hún seldi honum banvænan skammt
Leandro DeNiro Rodriguez, barnabarn Robert DeNiro, lést af völdum ofskömmtunar eftir að hann tók fentanýlblandaðar morfínpillur. Sú sem seldi honum töflurnar sagði fyrir söluna að hún vildi ekki drepa hann.

Mikil fækkun fíknifanga í íslenskum fangelsum
Aðeins 26,7 prósent fanga sátu inni fyrir fíkniefnabrot á síðasta ári. Ári áður var hlutfallið 37,4 prósent og um 60 prósent um aldamótin.

Sveddi tönn ákærður í Brasilíu
Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefur verið ákærður af ríkissaksóknara í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Þann 3. júlí síðastliðinn var fyrirtaka í málinu hjá dómstól í Rio de Janeiro þar sem sönnunargögn voru lögð fram.

Frakki í fangelsi í fjórtán mánuði fyrir fíkniefnasmygl
Franskur karlmaður var í síðustu viku dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Hann hafði rúmlega kíló af sterku metamfetamíni meðferðis til landsins frá París.

Tekinn með fimm hundruð töflur af Oxycontin innan klæða
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað fimm hundruð töflur af Oxycontin, 80 milligramma, til landsins með flugi í apríl síðastliðinn.

Hvíta húsið rýmt vegna efnis sem reyndist kókaín
Hvíta húsið var rýmt um tíma í gærkvöldi eftir að hvítt duft fannst við reglubundið eftirlit. Greining leiddi í ljós að um var að ræða kókaín og er málið nú í rannsókn.

Tekinn með 7,5 kíló af maríjúana í töskunni
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir að smygla 7,5 kílóum af maríjúana til landsins.

Langt síðan lögreglan hefur lagt hald á viðlíka magn af hassi
Lögreglan hefur staðfest að fíkniefnin sem lagt var hald á í skútu undan Suðurnesjum á laugardag voru hass. Grímur Grímsson segir langt síðan lögreglan hefur lagt hald á slíkt magn af hassi.

Enn eitt skútumálið komið upp hér á landi
Enn eitt skútumálið er komið upp hér á landi eftir að umfangsmiklar aðgerðir lögreglu með aðstoð fjölmargra aðila leiddi til handtöku þriggja karlmanna snemma morguns laugardag vegna smygls á miklu magni fíkniefna. Ráðist var til aðgerða undan vestarlega við suðurströnd Íslands.

Handteknir um borð í skútu með mikið magn fíkniefna
Tveir voru handteknir um borð í skútu undan suðurströnd Íslands um helgina eftir að mikið magn fíkniefna fannst þar um borð. Þá var þriðji einstaklingurinn handtekinn í landi vegna málsins.

Smyglaði amfetamíni í vínflöskum og hlaut þungan dóm
Pólsk kona var í dag sakfelld í Landsrétti fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpum fjórum lítrum af amfetamínbasa frá heimalandinu. Landsréttur mildaði dóm hennar verulega, úr fimm og hálfu ári í fjögur ár.

Dómar í saltdreifaramálinu mildaðir um tvö ár
Dómar þeirra Halldórs Margeirs Ólafssonar og Ólafs Ágústs Hraundal fyrir hlut þeirra í saltdreifaramálinu svokallaða voru mildaðir um tvö ár í Landsrétti í dag. Í héraði voru þeir dæmdir til þyngstu mögulegu refsingar, tólf ára fangelsisvistar. Aðrir dómar í málinu voru einnig mildaðir um tvö ár og einn var skilorðsbundinn.

Par vildi ekki kannast við að eiga mikið magn fíkniefna
Par var á dögunum dæmt til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, fyrir að hafa haft mikið magn fíkniefna í vörslum sínum á heimili þeirra. Auk fíkniefna fannst hálfsjálfvirk haglabyssa og 1,5 milljón króna í reiðufé. Konan þarf að þola upptöku fjárins, þrátt fyrir segjast hafa aflað þess með barnapössun og kökusölu.

Páll timbursali: „Hefði sætt mig við fjögur til fimm ár“
Páll Jónsson, tæplega sjötugur timbursali sem hlaut nýverið tíu ára fangelsisdóm fyrir stærsta kókaínmál Íslandssögunnar, segist sjá ólýsanlega eftir þeirri ákvörðun sinni að flytja inn fíkniefni. Hann segir dvölina í fangelsinu á Hólmsheiði óbærilega og að hann sé við það að gefast upp. Þá gagnrýnir hann rannsókn lögreglunnar á málinu harðlega og telur spillingu ríkja innan fíkniefnadeildarinnar. Hann telur sig jafnframt vita hver kom lögreglu á sporið.

Tvö og hálft ár fyrir fíkniefnabrot og þjófnað
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í fyrradag karlmann í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og þjófnað, brot sem framin voru á þessu ári.

Þjarma að heilbrigðisráðherra um skaðaminnkun
Píratar munu krefja heilbrigðisráðherra svara við spurningum um skaðaminnkun, sem snýr að því að mæta vímuefnaneytendum á þeirra forsendum, í sérstakri umræðu um málefnið á þingfundi í dag.

Krefst þyngingar á þyngstu fíkniefnadómum sögunnar
Saksóknari krefst þess að dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svokallaða verði þyngdir. Tveir sakborningar hlutu tólf ára fangelsisdóm í málinu sem eru þyngstu dómar sem fallið hafa í í fíkniefnamáli hér á landi.

Framsal ekki mögulegt í tilfelli Svedda tannar
Sverrir Þór Gunnarsson hefur neitað að tjá sig í yfirheyrslum brasilísku alríkislögreglunnar í tengslum við umfangsmikla sakamálarannsókn þar í landi. Sem stendur er hann vistaður í fangelsi í Rio de Janeiro. Ekki kemur til greina að framselja Svedda til Íslands.

Sneri við blaðinu og fékk þriggja ára dóm skilorðsbundinn
Árni Khanh Minh Dao var í dag sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa flutt inn rétt tæplega tvö kíló af sterku metamfetamíni, sem er í daglegu tali kallað spítt, í ferðatösku sem hann tók með sér í áætlunarflug árið 2019. Athygli vekur að fullnustu refsingar hans var frestað til fimm ára.

Tókust harkalega á um hvort fíkn væri smitsjúkdómur
Þingmenn tókust á um hvort að fíkniefnaneysla sé smitsjúkdómur eða ekki í þættinum Sprengisandi í morgun. Yfirlæknir SÁÁ sagði ekki pláss fyrir refsingu á fíkniefnaneyslu.

Stefnan „stríðið gegn fíkniefnum“ er stórhættuleg, lærum af Portúgal!
„Stríðið gegn fíkniefnum“ hefur verið alþjóðleg stefnu í nokkra áratugi, en hún hefur ekki náð markmiðum sínum. Frekar en að draga úr fíkniefnaneyslu og skaða tengt eiturlyfjum hefur það leitt til margvíslegra neikvæðra afleiðinga, þar á meðal fjöldafangelsisvistunnar, aukið ofbeldi, aukin dauðsföll, og útbreiðslu smitsjúkdóma.

Grunaðir um að hafa smyglað dópi til Íslands í bílapörtum
Hollenskir bræður eru grunaðir um að hafa sett upp smyglleið á fíkniefnum til Íslands frá Hollandi. Málið teygir anga sína víðar og er hluti af rannsókn hollenskra yfirvalda sem hófst árið 2020.

Einn deyr úr ofneyslu á tíu klukkustunda fresti í San Francisco
Alls létust 200 einstaklingar af völdum ofneyslu fíkniefna í San Francisco fyrstu þrjá mánuði ársins en um er að ræða 41 prósent aukningu frá fyrra ári. Þetta jafngildir því að einstaklingur látist úr ofneyslu á um tíu klukkustunda fresti.

Willum Þór með afglæpavæðinguna á ís
Willum Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra upplýsti á þinginu fyrr í dag að hann hefði ákveðið að leggja ekki fram fyrirhugað frumvarp um afglæpavæðingu að svo stöddu.

Ekki verður af afglæpavæðingu neysluskammta
Heilbrigðisráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta, líkt og áður hafði verið boðað. Hann segist frekar munu leggja áherslu á skaðaminnkandi úrræði.

Tekinn af lífi fyrir samsæri um innflutning á kílói af kannabis
Tangaraju Suppiah, 46 ára, hefur verið tekinn af lífi í Singapúr fyrir samsæri um smygl á kílói af kannabis. Tangaraju var hengdur í morgun, þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna og aðgerðasinna.