
Fíkniefnabrot

Á annað kíló af kókaíni falin í höfuðpúða og úlpu
Svissneskur karlmaður á miðjum þrítugsaldri sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var gripinn með á annað kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli en efnin voru falin með sérstökum hætti.

Taldi sig vera að flytja peninga í töskum sem reyndust fullar af kókaíni
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega tveimur kílóum af kókaíni og um sjötíu grömmum af metamfetamíni í ferð sinni með Norrænu til Íslands í september síðastliðinn.

Fjögur stórfelld fíkniefnabrot í nóvember
707 hegningarlagabrot voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nóvember en brotum fækkaði talsvert milli mánaða. Fjögur stórfelld fíkniefnabrot voru skráð í nóvember.

Blindur maður fórnarlamb mansals og vistaður á Hólmsheiði
Erlendur blindur karlmaður hefur setið í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði í um það bil mánuð. Hann talar hvorki íslensku né ensku. Í dag var honum afhent tæki sem gerir dvölina aðeins auðveldari. Formaður Afstöðu, félags fanga og annarra áhugamanna um fangelsismál og betrun, þakkar starfsmönnum á Hólmsheiði og samföngum mannsins kærlega fyrir að auðvelda honum lífið á meðan hann hefur dvalið í fangelsinu.

Tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

Handtekinn vegna kannabisræktunar á Tálknafirði
Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit á Tálknafirði í gær og stöðvaði kannabisræktun sem þar fór fram. Einn maður var handtekinn.

„Ungt fólk gert að glæpamönnum og fyrir það eitt að rækta arfa sem má reykja“
Bubbi Morthens tónlistarmaður getur ekki leynt furðu sinni vegna dóms yfir Vigni Þór Liljusyni sem dæmdur var í 15 mánaða fangelsi vegna ræktunar 15 kannabisplantna í íbúðarhúsi á Akureyri.

Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun á Akureyri
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni, sem sakfelldur var fyrir að hafa staðið að ræktun fjórtán kannabisplantna í íbúðarhúsi á Akureyri. Þrír aðrir einstaklingar voru sakfelldir fyrir aðild sína að brotinu en þau leituðu ekki endurskoðunar héraðsdóms.

Fjörutíu og níu handteknir og hald lagt á 30 tonn af kókaíni
Lögregluyfirvöld í fjórum Evrópuríkjum og Sameinuðu arabísku furstadæmunum réðust í aðgerðir dagana 8. til 19. nóvember síðastliðinn, þar sem 49 voru handteknir í tengslum við umfangsmikinn innflutning á kókaíni til Evrópu.

Flutti inn kókaín frá Mallorca í skósólum
Litháenskur karlmaður hefur verið dæmdur til sjö mánaðar fangelsisvistar fyrir innflutning á kókaíni. Efnin voru falin í skósólum skópars í ferðatösku, en maðurinn kom til landsins frá Mallorca á Spáni í september síðastliðnum.

Níu handteknir í höfuðborginni fyrir vörslu og/eða sölu fíkniefna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók níu einstaklinga í nótt sem eru grunaðir um vörslu og/eða sölu fíkniefna. Þá voru höfð afskipti af nokkrum til viðbótar þar sem lagt var hald á ætluð fíkniefni.

Sagðist í fyrstu skýrslutöku hafa átt að fá greiddar 30 milljónir
Karlmaður á sjötugsaldri sem sætir ákæru í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar viðurkenndi í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði átt að fá þrjátíu milljónir króna fyrir sinn hlut í innflutningnum. Í næstu yfirheyrslum dró hann úr framburði sínum og sagði óljóst hve há greiðslan hefði átt að vera.

97 fíkniefnabrot í október
Þrjú stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í október. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2022.

Koma af fjöllum vegna kókaíns í kaffivél sem lögregla vissi af
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar innflutning á tæpum tveimur kílóum af kókaíni sem falin voru í kaffivél. Hinir grunuðu virðast hafa gengið í gildru lögreglu sem vissi af sendingunni. Fjölskyldufaðir, sem er með stöðu sakbornings í málinu, virðist hafa blandað bæði föður sínum og syni í málið. Annar sakborningur er grunaður um að sitja á tugum milljóna sem lögregla telur hann ekki geta útskýrt. Þeir báðir segjast ekkert vita um umræddan pakka.

Gripinn með fullar ferðatöskur af ofskynjunarefnum
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa fyrir rúmum tveimur árum verið gripinn með rúmlega 32 kíló af sterku ofskynjunarlyfi við komuna til landsins. Mál hans verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Þrjár brasilískar konur fluttu inn 1,8 kíló af kókaíni
Þrjár brasilískar konur hafa verið ákærðar af héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konurnar eru grunaðar um að hafa flutt saman til landsins 1.785 grömm af kókaíni með flugi frá París.

Sakborningar í stóra kókaínmálinu spjölluðu allir við dómara á Skype
Sakborningarnir fjórir í stóra kókaínmálinu tóku allir afstöðu til ákærunnar í gegnum fjarfundabúnaðinn Skype þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir sæta ákæru fyrir innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni hingað til lands. Þeir voru handteknir í ágúst síðastliðnum.

Stóra kókaínmálið: Liðsstjóri landsliðs og timbursali meðal sakborninga
Enginn fjögurra sakborninga í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar á að baki sakaferil að ráði og í hópi þeirra eru timbursali og fyrrverandi liðsstjóri hjá íslensku landsliði í rafíþróttum. Málið verður þingfest á miðvikudag.

„Hún velur svolítið hvaða lögum hún er að fylgja“
Þingmaður Pírata segir lögreglu forgangsraða tíma sínum rangt með því að eltast við fólk vegna neysluskammta. Húsleit sé íþyngjandi aðgerð sem lögregla beiti langt fram úr meðalhófi í slíkum málum. Aðgerðir lögreglu, sem gagnrýndar voru í vikunni, sýni brýna þörf á afglæpavæðingu.

Fíkniefnaleitarhundurinn Buster tekur við á Vestfjörðum
Nýr fíkniefnaleitarhundur, sem nefndur er Buster, hefur verið afhentur lögreglunni á Vestfjörðum. Buster tekur við af fíkniefnaleitarhundinum Tindi sem lýkur starfsskyldu sinni á næsta ári.

Faldi metamfetamín í kleinuhring
Landamæralögreglan í Bæjaralandi fann metamfetamín í kleinuhring manns sem hún stöðvaði við landamæraeftirlit. Eiturlyfin voru falin í miðju kleinuhringsins, þar sem sultan er alla jafna.

Þriðji fíkniefnasmyglarinn látinn á árinu á Grænlandi
Karlmaður á sextugsaldri er látinn eftir að hafa reynt að smygla fíkniefnum innvortis til Grænlands. Hann er sá þriðji síðan í júní sem hefur látist af þeim völdum.

Fjórir ákærðir í stóra kókaínmálinu
Héraðssaksóknari hefur ákært fjóra menn í langstærsta kókaínmáli sem upp hefur komið á Íslandi. Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum í dag.

Gripin með mikið magn af OxyContin í leggöngunum
Pólsk kona var gripin í Leifsstöð með tæplega fimm hundruð töflur af ávana- og fíknilyfinu OxyContin í leggöngunum í apríl síðastliðnum. Fíkniefnasmyglið fór fram í félagi við annan mann og voru þau bæði dæmd í nokkurra mánaða fangelsi.

Dómar þyngdir vegna stórtæks lyfjasmygls
Landsréttur þyngdi í dag fangelsisdóma yfir þremur sakborningum, einum karlmanni og tveimur konum sem fluttu inn mikið magn fíkniefna. Efnin fluttu þau frá Wroclaw í Póllandi. Hlaut maðurinn þriggja ára fangelsisdóm og konurnar tveggja ára fangelsisdóm.

Telur ólíklegt að höfuðpaurarnir sleppi mikið betur í Landsrétti
Afbrotafræðingur telur ólíklegt að þungir dómar höfuðpaura í sögulegu fíkniefnamáli verði mildaðir að ráði. Þá telur hún ekki ástæðu til að rýmka refsirammann, þó að umfang og tíðni fíkniefnabrota færist í aukana. Næstum tvöfalt fleiri fíkniefnabrot hafa verið skráð á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári en allt árið í fyrra.

Dómar í saltdreifaramálinu þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli
Þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli hér á landi féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Það voru tveir sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða sem hlutu dómana, sem hljóða upp á tólf ára fangelsi. Þrír aðrir voru dæmdir í fangelsi og verjendur hafa þegar ákveðið að áfrýja dómnum.

Þungir dómar í saltdreifaramáli
Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða fengu þyngstu mögulegu refsingu í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar dómur í málinu var kveðinn upp í dag. Tveir hlutu tólf ára fangelsi sem er þyngsti dómur sem fallið hefur í fíkniefnamáli hér á landi. Refsiramminn var því verið fullnýttur.

Var stöðvaður með kíló af kókaíni í farangrinum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt austurrískan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpu kílói af kókaíni til landsins með flugi frá Amsterdam.

Reyndu að smygla um tvö þúsund OxyContin-töflum í nærbuxunum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo pólska karlmenn í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla samtals 1.914 töflum af ávana- og fíknilyfinu OxyContin, 80 mg, með flugi til landsins í maí síðastliðinn. Mennirnir fluttu töflurnar í nærbuxum sínum.